Fréttablaðið - 26.09.2006, Qupperneq 18
26. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR18
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
FRÉTTAVIÐTAL
AUÐUNN ARNÓRSSON
audunn@frettabladid.is
Vopnaðar
árásir
Lögreglan segir vopnaburð hafa
aukist mjög. Mun oftar sé gripið til
hnífa eða annarra tóla í átökum.
Nýleg dæmi eru um mjög alvar-
legar árásir með hnífum og hafa
verið uppi umræður um að herða
þurfi viðurlög við vopnaburði til
að reyna að stemma stigu við
þróuninni. Geir Jón Þórisson er
yfirlögregluþjónn í Reykjavík.
Þarf að taka harðar á brotum
á vopnalögum? Það má ef til vill
endurskoða vopnalöggjöfina, það
þarf að taka alvarlegar á málum
þar sem fólk ræðst að öðru með
vopnum.
Hvað er hægt að gera? Vopna-
lögin eru afar klár og skýr eins
og þau eru. Hins vegar verður að
auka eftirlit, til dæmis með aðstoð
dyravarða. Þeir gætu oftar athugað
hvort fólk sé með vopn á sér áður
en það fær að fara inn á skemmti-
staði. Við viljum auka samstarfið
við þá og teljum það helst geta
hjálpað okkur.
Hvernig getur almenningur
brugðist við? Við viljum að
almenningur láti okkur vita af
því að fólk sé með vopn. Það er
algerlega bannað að bera hnífa á
almannafæri sama hversu stórir
þeir eru.
SPURT & SVARAÐ
VOPNABURÐUR
GEIR JÓN ÞÓRISSON
Norræna ráðherranefndin
hefur opnað upplýsinga-
skrifstofu í Kaliníngrad,
rússnesku hólmlendunni við
suðaustanvert Eystrasalt.
Per Unckel, framkvæmda-
stjóri nefndarinnar, segir
opnun skrifstofunnar vera
mikilvægan áfanga að efl-
ingu samstarfs Norðurlanda
við þau héruð Rússlands
sem næst þeim liggja.
Í samtali við Fréttablaðið segir
Unckel að í samstarfi ríkja og fyr-
irtækja við Eystrasalt felist meiri
möguleikar en flestir geri sér
grein fyrir.
„Sem framkvæmdastjóri Nor-
rænu ráðherranefndarinnar hef
ég lagt metnað í að opna norrænt
samstarf fyrir alþjóðlegu sam-
starfi,“ segir Unckel. Hann bendir
á að mikilvægustu angar þess séu
annars vegar samstarfið yfir
Eystrasaltið, við Eystrasaltsríkin
þrjú auk Norðvestur-Rússlands,
og hins vegar samstarfið við Evr-
ópusambandið sem eigi sér marg-
ar hliðar. Norðurlöndin og Evr-
ópusambandið hafa á mörgum
sviðum stillt saman strengi í nálg-
un sinni að samstarfi við Rússland
og á Eystrasaltssvæðinu.
Tortryggni rússneskra ráðamanna
Unckel segir norrænu upplýsinga-
skrifstofurnar eiga sér sérstaka
sögu. „Fyrstu slíku skrifstofurnar
voru opnaðar í Eystrasaltslöndun-
um strax áður en þau hlutu form-
lega aftur sjálfstæði í byrjun
tíunda áratugarins, í framhaldinu
var skrifstofan í St. Pétursborg
opnuð og nú þessi hér í Kalinín-
grad,“ útskýrir hann.
Mörg ár eru síðan Norræna
ráðherranefndin leitaði fyrst eftir
því við rússnesk stjórnvöld að fá
að opna slíka skrifstofu í Kalinín-
grad, en samingaviðræður stóðu
með hléum allt frá árinu 2000 unz
samningar tókust loks snemma á
þessu ári. Spurður hverju þetta
sætti segir Unckel að vissulega
hefðu áformin mætt vissri tor-
tryggni meðal rússneskra ráða-
manna, sem hefði tekið sinn tíma
að eyða.
„Slík tortryggni var vissulega
fyrir hendi – ráðamenn í Moskvu
spurðu sig hvað heimamenn í Kal-
iníngrad vildu og hvaða markmið
norrænu ríkin hefðu með starf-
rækslu slíkrar skrifstofu þar –
þetta tengdist líka deilunum við
ESB um hvað yrði um Kaliníngrad
eftir ESB-inngöngu Litháens og
Póllands,“ segir Unckel. Þetta
hefði að mestu leyst með sam-
komulagi ESB og Rússlands um
ferðafrelsi Kaliníngrad-búa í
gegnum Litháen.
„Það voru semsé ýmsir sam-
verkandi þættir sem ollu því að
það tók svo langan tíma að ná samn-
ingum um þetta,“ segir Unckel.
„En nú er það leyst, og að baki.“
Gagnkvæmni og langtímasjón-
armið
Unckel segir aðspurður að Nor-
ræna ráðherranefndin leggi í Kal-
iníngrad mesta áherzlu á tvennt,
annars vegar skiptiáætlanir sem
geri sveitarstjórnarmönnum,
embættismönnum, námsmönnum
og fleirum tækifæri til að dvelja
við nám, starfsþjálfun og tengsla-
myndun á Norðurlöndum, og hins
vegar á stuðning við lítil og meðal-
stór fyrirtæki. Þá sé líka lögð
áherzla á rannsóknasamstarf og
stuðning við starfsemi frjálsra
félagasamtaka. Unckel leggur
áherzlu á, að allt þetta samstarf
byggi á gagnkvæmni. Hvert sam-
starfsverkefni byggi á því að allir
aðilar leggi sitt af mörkum, líka til
fjármögnunar verkefnanna.
Unckel viðurkennir að allt slíkt
samstarf hafi reynzt auðveldara í
Eystrasaltsríkjunum, þar sem
stjórnsýslan er gegnsærri en í
Rússlandi. En mikið sé í húfi fyrir
Norðurlönd að eiga gott samstarf
við Norðvestur-Rússland, og því
gegni upplýsingaskrifstofurnar í
St. Pétursborg og Kaliníngrad
mikilvægu hlutverki.
„Það sem fyrst og fremst ræður
nálgun okkar í þessu samstarfi er
skynsemi og langtímasjónarmið,“
segir Unckel. Það séu hagsmunir
Norðurlanda að þróun verði á nær-
svæðum þeirra í Rússlandi, og því
sé talsverðu til kostað – alls fari á
að gizka um 1.200 milljónir
íslenskra króna að andvirði í sam-
starfið við Norðvestur-Rússland,
og er þá meðtalinn rekstrarkostn-
aður upplýsingaskrifstofanna.
FRÁ KALINÍNGRAD Unckel segir Norðurlönd, Evrópusambandið og Rússland eiga sameiginlega hagsmuni af því að efnahagsþró-
un og aðrar framfarir, svo sem í umhverfisverndarmálum, verði í Kaliníngrad-héraði. LJÓSMYND/AUÐUNN
Norræn tengsl efld við Kaliníngrad
> Tungumálanám í framhaldsskólum haustin 1999 og 2005
Búlgaría og Rúmenía verða brátt fullgildir með-
limir í Evrópusambandinu, og vex sambandið
þá úr 25 aðildarlöndum í 27. En hvers vegna
er ESB að stækka og hvað geta þessi lönd fært
sambandinu?
HVÍ GANGA ÞESSI LÖND Í ESB?
Búlgaría og Rúmenía sóttu um aðild að ESB í
byrjun tíunda áratugarins, ásamt átta öðrum
fyrrum kommúnistaríkjum í Mið- og Austur-Evr-
ópu. Ríkisstjórnir hinna landanna gerðu hraðar
endurbætur á stjórnmálalegu og efnahagslegu
skipulagi sínu og því fengu þau lönd aðild að
ESB fyrir tveimur árum síðan. Þessi voru Tékk-
land, Eistland, Ungverjaland, Lettland, Litháen,
Pólland, Slóvakía og Slóvenía, en auk þeirra
fengu Kýpur og Malta aðild það ár. Endurbæt-
urnar hafa gengið hægar í Rúmeníu og Búlgaríu
og því er það fyrst núna sem ráðamenn ESB
telja nóg að gert til að mæta lágmarkskröfum
sambandsins. Gert er ráð fyrir að þau fái aðild í
ársbyrjun 2007.
ERU LÖNDIN TILBÚIN TIL AÐ
GANGA Í ESB?
Haft hefur verið eftir talsmönnum
Evrópusambandsins að löndin
tvö séu í raun ekki búin að upp-
fylla öll skilyrði sambandsins, en
telja þó að endurbótunum verði ekki flýtt, verði
löndum áfram meinuð aðild. Til dæmis var von-
ast til þess að búlgörsk yfirvöld tækju á spillingu
meðal ráðamanna og skipulagðri glæpastarf-
semi í sumar, en lítið var úr þeim aðgerðum.
Því hefur verið ákveðið að heimila Rúmeníu og
Búlgaríu aðild nú, en undir afar ströngu eftirliti
og verður gripið til refsiaðgerða ef fé frá ESB
hverfur eða ef glæpaklíkur fá áfram að starfa
óáreittar innan landanna tveggja. Búlgaría og
Rúmenía verða fátækustu aðildarlönd ESB, þótt
efnahagur beggja landa fari nú ört batnandi. Telja
önnur aðildarríki ESB að vaxandi
efnahagur og kappsamur starfskraftur
landanna muni verða sambandinu til
góðs í heild sinni. Eins telja talsmenn
framkvæmdastjórnar ESB að löndin
tvö geti betrumbætt utanríkis- og lög-
reglusamstarf sambandsins, þar sem
Rúmenía geti virkað sem tengill við lönd lengra
í austri, og Búlgaría við Balkanskaga- og Svarta-
hafslöndin.
ÖNNUR HUGSANLEG AÐILDARLÖND?
Tyrkland og Króatía sóttu um aðild árið 2005,
en jafnframt er gert ráð fyrir að Albanía, Bosnía,
Kósovó, Svartfjallaland og Serbía muni ganga í
ESB í framtíðinni.
FBL-GREINING: STÆKKUN EVRÓPUSAMBANDSINS
Ætlað að gera Evrópu öruggari
PER UNCKEL
Svíinn Per Unckel hefur gegnt stöðu
framkvæmdastjóra Norrænu ráð-
herranefndarinnar síðan í ársbyrjun
2003. Hann átti langan feril í sænsk-
um stjórnmálum að baki þegar hann
tók við stöðunni. Að eigin sögn hefur
hann í framkvæmdastjóratíð sinni
beitt sér fyrir frekari opnun norræns
samstarfs fyrir víðtækara fjölþjóð-
legu samstarfi í Evrópu, einkum í
austur (við Rússland) og í suður (við
Evrópusambandið).
Unckel er lögfræðingur að mennt, en pólitískan feril sinn hóf hann
árið 1971 er hann var kjörinn formaður ungliðahreyfingar Miðflokksins
sænska. Árið 1976 var hann kjörinn á þing. Hann var menntamálaráðherra í
ríkisstjórn Carls Bildt 1991-1994. Árið 1999 varð hann formaður þingflokks
Miðflokksins.
Unckel hefur sagt starfi sínu lausu frá komandi áramótum. Finni eða
Íslendingur eru taldir eiga mesta möguleika á að taka við stöðunni.
PER UNCKEL Framkvæmdastjóri
Norrænu ráðherranefndarinnar.
LJÓSMYND/AUÐUNN
Heimild: Hagstofa Íslands
4,
4%
12
,5
%
26
,7
%
2005 1999
18
,0
%
10
,1
%
8,
9%
2005 1999 2005 1999
Þýska Franska Spænska
LÆGRI
VEXTIR
LÆGRA
LÁNTÖKUGJALD
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI