Fréttablaðið - 26.09.2006, Qupperneq 21
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Freyr Þórsson, bifvélavirki og nemi á
frumgreinasviði í Háskólanum í Reykja-
vík, stundar kletta- og ísklifur sér til
dægrastyttingar.
„Ég er mikill útivistarmaður í eðli mínu, fer á
skíði, í göngur og jeppaferðir,“ útskýrir Freyr
og vill ekki gera mikið úr klifrinu, segir það
einfaldlega falla undir áhugasviðið.
Freyr fór að klifra af einhverri alvöru
eftir að hann gekk til liðs við Björgunarsveit-
ina Ársæl fyrir fjórum árum síðan, sem fer
meðal annars í skipulagðar klifur-, jeppa- og
gönguferðir. Hann segir Valshamar í Hval-
firði mikið notaðan til klettaklifurs, en ísklif-
ur sé stundað í Eilífsdal. Sjálfur stundar hann
ísklifur á skriðjöklum og kleif síðasta vetur
fossa í Noregi.
Aðspurður um muninn á kletta- og ísklifri,
segir Freyr að í grundvallaratriðum sé um
sama hlutinn að ræða. „Helsti munurinn er
kannski sá, að í klettunum er maður sífellt að
leita að tilbúnum festum til að klifra upp á,“
segir hann. „Ísklifur snýst meira um að búa
til festur, með öxunum og broddunum. Það er
því frjálsara en klettaklifrið.“
Mikill munur er síðan á þeim búnaði sem
notaður er við kletta- og ísklifur að sögn
Freys. „Maður notar hjálm, sigbelti og línur í
báðum tilvikum,“ segir hann. „Svokallaðar
klifurtúttur eru síðan notaðar í klettaklifri,
það er að segja þröngir skór með gúmmítám,
og síðan kalkpoki til að þurrka hendurnar.
Við ísklifur er mun sérhæfðari búnaður not-
aður, ísaxir, broddar og svo framvegis.“
Freyr segir að klifur styrki og sé ekki
hættulegt, sé rétt að því staðið. „Ef maður er
kominn í einhverjar þrengingar, er bara um
að gera að snúa við, sem kallar aftur á ákveð-
ið hugrekki,“ segir hann. „Í heild er klifur
einstaklega skemmtileg íþróttagrein, þótt
hún sé að vísu svolítið dýr og tímafrek.“
roald@frettabladid.is
Klífur fossa og jökla
Freyr er haldinn mikilli útivistardellu og klifur er aðeins hluti af henni. Hann fær mikla útrás fyrir ástríðu sína í Björgunarsveitinni Ársæli sem hann hefur verið meðlimur í síðastliðin
fjögur ár. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
GÓÐAN DAG!
Í dag er þriðjudagurinn
26. september, 269. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 7.21 13.19 19.15
Akureyri 7.06 13.04 19.00 FYRIRLESTUR UM VERKEFNI TIL MEIST-
ARAPRÓFS Í NÆRINGARFRÆÐI VIÐ
MATVÆLAFRÆÐISKOR.
Ragnheiður Ásta Guðnadóttir flytur,
föstudaginn 29. september, fyrirlestur
um verkefni til meistaraprófs með
yfirskriftinni Neysluvenjur og fæðis-
meðferð ungra offeitra Evrópubúa.
Ragnheiður Ásta hóf í byrjun árs 2005
nám til meistaraprófs í næringarfræði
við Háskóla Íslands en hafði áður lokið
BS prófi í matvælafræði og prófi í
kennslufræðum til kennsluréttinda.
Verkefnið er hluti af evrópska verkefn-
inu SEAFOODplus YOUNG. Markmið
þess er að auka þekkingu á næringar-
fræðilegum áhrifum sjávarafurða til að
stuðla að auknu heilbrigði og koma í
veg fyrir sjúkdóma hjá ungum evrópskum fjölskyldum.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 15.00 í stofu VR-158 í VR-II byggingu
raunvísindadeildar Háskóla Íslands.
Neysluvenjur ungra
offeitra Evrópubúa
Neysluvenjur Evrópubúa
hafa breyst yfir árin.
Árbæjarþrek í Fylkishöllinni
býður upp á sex vikna skokk-
námskeið fyrir byrjendur.
Skokkað er á mánudögum og
miðvikudögum og hefst það 25.
september. Námskeiðið kostar
8.500 krónur og inni í því er
aðgangur að stöðinni.
www.threk.is
Fyrstu kettlingarn-
ir sem ekki valda
ofnæmi hjá mann-
fólki voru settir
á markaðinn í
Bandaríkjunum
á dögunum.
Biðlistar eru eftir
kettlingum þrátt fyrir
að hver köttur kosti hátt í 300
þúsund krónur.
Vísindamönnum hefur tekist
að gera mýs sólbrúnar án þess
að nota ljós, hvorki frá sól eða
lampa. Í staðinn notuðu þeir
krem sem setur af stað ferli í
húðfrumunum sem myndar
brúna litinn. Kremið hefur enn
ekki verið prófað á mönnum. Sjá
nánar www.doktor.is
www.hugo.is er vefur Hugos
Þórissonar sálfræðings sem gefur
börnum og foreldrum góð ráð.
Margir þekkja Hugo úr sjónvarp-
inu en annan hvern mánudag
mætir hann ferskur í Ísland í
bítið með ráð undir rifi hverju.
ALLT HITT
[HEILSA]
HUGAÐ AÐ FARAR-
TÆKI LÍKAMANS
Mikilvægt er að huga að
heilsu fótanna til að
koma í veg fyrir leiðin-
lega kvilla.
HEILSA 2
ÞURFA BARA INNLIT
OG HVATNINGU
Hanna Lára Steinsdóttir hefur
ákveðnar hugmyndir um úr-
ræði fyrir alzheimersjúklinga
og aðstandendur þeirra.
HEILSA 4