Fréttablaðið - 26.09.2006, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 26. september 2006
Persona.is
EYGLÓ GUÐMUNDSDÓTTIR
SÁLFRÆÐINGUR SKRIFAR
Samskipti manna
Mikilvægi góðra samskipta ætti að
vera öllum augljós, en svo virðist
sem sumir eigi erfiðara en aðrir
að átta sig á hversu mikilvægt það
raunverulega er að leggja áherslu á
að umgangast samferðamenn sína
með hlýju, jákvæðni og virðingu.
Góð samskipti er eitthvað sem flest-
ir vilja eiga við aðra, eða allavega
vilja flestir að komið sé fram við þá
með ákveðinni virðingu og kurteisi.
Samskipti er eitthvað sem langflestir
sálfræðingar eru fremur uppteknir
af, þar sem hluti sálfræðinnar snýst
einmitt um samskipti.
Ég persónulega heillast mjög af
samskiptum og veit fátt dapurlega
en að eiga í leiðinlegum samskipt-
um, hvort sem er við maka minn,
börn, aðra fjölskyldumeðlimi, vini,
og svo hina „ókunnugu“ sem ég
hitti á leið minni í lífinu. Sjálf reyni
ég að vera þægileg í samskiptum
– það tekst kannski ekki alltaf, en
ég legg mig fram við að sýna öðrum
kurteisi og virðingu og skiptir þá
engu máli hver á í hlut. Þessvegna
hrekk ég svo í kút þegar ég hitti fyrir
fólk sem virðist hafa það sem mark-
mið að sýna frekar dónaskap og
óvirðingu í samskiptum sínum við
aðra. Ég tek það fram að nánasta
samferðafólk mitt – fjölskylda, vinir
og kunningjar – eru yfirleitt mjög
fær í mannlegum samskiptum,
en ef einhver skyldi eiga „slæman
samskiptadag“ þá er hægt að ræða
það og að sjálfsögðu fyrirgefa.
Hins vegar, þegar fólk mér ókunn-
ugt, t.d. fólk sem ég þarf að kaupa
þjónustu af, kemur illa fram við
mig finnst mér erfiðara að brosa
og labba í burtu án þess að benda
viðkomandi á að „kurteisi kostar
ekkert“!! Ástæða þess að ég ákvað
einmitt að skrifa um mikilvægi
góðra samskipta er einmitt sú að á
sama klukkutímanum upplifði ég
annars vegar mjög góð samskipti
og hins vegar mjög slæm samskipti,
og það á sama þjónustusvæðinu
– en ekki af sömu þjónustuaðilum.
Í fyrra skiptið var um að ræða unga
stúlku sem var að afgreiða mig
með mat og strax tók ég eftir því að
henni fannst líklega ekki gaman í
vinnunni eða kannski fannst henni
ég bara svona þreytandi að vera
panta mat hjá henni. Eftir að hafa
hent saman því sem ég pantaði og
rúllað því inní álpappír skutlaði hún
matnum nánast í mig og þá fannst
mér nóg boðið. Til að valda engum
misskilningi ætlast ég alls ekki til
að afgreiðslufólk rúlli fram rauðum
dregli þegar ég kem á staðinn eða
setji upp „Colgatebros“, en að sama
skapi kæri ég mig heldur ekki um
fýlusvip og hreinlega dónaskap! Ég
ákvað því að benda þessari tilteknu
stúlku á að næst mætti hún sýna
meiri kurteisi og að „skutla“ matn-
um til manns væri ekki vænlegt ef
maður vildi áframhaldandi viðskipti.
Því miður virtist viðkomandi alls
ekki átta sig á að hún hafði verið
dónaleg í framkomu og baðst því
ekki afsökunar á hegðun sinni
heldur sagðist hafa verið að „rúlla“
matnum í áttina til mín og fannst
sjálfsagt heldur ekkert athugavert
við fýlusvip sinn og óþjónustulund!!
Ég vil taka fram að með henni
voru fleiri starfsmenn sem sýndu
góða þjónustu, en þrátt fyrir það
bragðaðist maturinn ekki eins vel
og venjulega og mun ég líklega ekki
venja komur mínar á þennan stað
framar.
Á hinum staðnum voru hins vegar
þroskaðar konur að afgreiða og
þar fékk ég bæði bros, virðingu, og
þjónustulipurð, sem sýndi sig í því
að þessar konur voru tilbúnar til
að leggja aukalega á sig til að veita
mér þá þjónustu sem ég var að
sækja þar. Þangað mun ég sækja
þjónustu áfram!
Tilgangur þessa pistils er ekki að
gera lítið úr fólki sem á „slæma
samskiptadaga“, heldur benda á
að lítið bros og kurteisi er eitthvað
sem við ættum að alltaf að vera
aflögufær um að veita næsta manni.
Sérstaklega á þetta við fyrirtæki
sem eiga að veita viðskiptavinum
sínum þjónustu – sem viðskipta-
vinurinn kaupir og greiðir fyrir – því
þjónustulund starfsfólks er mikil-
vægur þáttur í að fá fólk til að vilja
eiga viðskipti aftur við viðkomandi
fyrirtæki.
Sýnum hvert öðru kurteisi og virð-
ingu í samskiptum, þá líður manni
svo miklu betur og hver veit nema
maður hafi bætt dag einhvers með
því að veita honum smá bros!
Gangi ykkur vel að brosa!
Eygló Guðmundsdóttir,
sálfræðingur
Vísindamenn halda því fram
að ódýrt sýklalyf hindri ekki
aðeins fílaveiki (Lymphatic
Filariasis) heldur dragi úr
einkennum hennar.
Um það bil 120 milljónir manna,
aðallega búsettar á hitabeltis-
svæðum, eru haldnar sjúkdómn-
um, sem lýsir sér í verulegum
bólgum á útlimum og kynfærum
karla.
Rannsóknarhópur á vegum
lyflæknisfræðiskóla í Liverpool,
sem sérhæfir sig í hitabeltissjúk-
dómum, komst að þeirri niður-
stöðu að sýklalyfið „doxycyline“
drægi úr sjúkdómseinkennum
þeirra sem eru þungt haldnir af
veikinni.
Það er einnig talið drepa orm-
inn sem á þátt í að orsaka sýking-
una, en hann berst með biti mosk-
ító-flugna.
Núverandi lyf drepa einungis
lirfur en ekki fullþroskaða orma
og stöðva ekki framrás sjúkdóms-
einkenna þegar hann hefur náð
ákveðnu stigi, þannig að doxycyl-
ine markar ákveðin þáttaskil í
baráttunni við fílaveikina. Auk
þess að draga úr veikindum bætir
hann lífsskilyrði sjúklinga, sem
verða oft hornreka vegna útlits-
afskræmingar í þriðja heims ríkj-
um þar sem fátækt og hjátrú eru
ríkjandi.
Lækning á fílaveiki
Sýklalyf hefur reynst vel í baráttunni
gegn fílaveiki. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Heilsustúdíó
ERUM FLUTT!!
Í Langarima 21-23 (Miðgarði)
Grennum, stinnum, losum þig við
appelsínuhúð, afeitrum líkamann,
Fakebake brúnkumeðferð,
leirvafningar, jurtavafningar
og margt fl eira.
4,6 og 8 vikna átak í boði!
Frábær opnunartilboð!
Þú nærð árangri hjá okkur!
Ókeypis prufutími og greining.
Pantaðu tíma í s. 587-3750
Líka fyrir karlmenn!
www.englakroppar.is
Langarima 21-23 (Miðgarði)
sími 587-3750