Fréttablaðið - 26.09.2006, Side 24
26. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR4
Kristín Vala Ragnarsdóttir,
umhverfisjarðefnafræðingur
og prófessor í umhverfissjálf-
bærni, við Háskólann í Bristol
á Englandi flytur fyrirlestur í
Manni lifandi um áhrif matar-
æðis á krabbamein.
Fyrirlesturinn ber heitið „Matar-
æði til varnar og lækningu á
krabbameini“ og byggir á bókinni
„Your Life in Your Hands ... Und-
erstanding, Preventing and
Overcoming Breast Canc-
er“, eftir breska vinkonu
Kristínar að nafni Janet
Plant.
„Janet greindist sjálf
með krabbamein fyrir um
það bil tuttugu árum síðan,
sem illa gekk að ráða nið-
urlögum á. Loks voru með-
ferðirnar hættar að virka,
en þá var Janet búin að
undirgangast brjóstnáms-
aðgerð auk þess sem kirtlar
undir handarkrikum höfðu
verið fjarlægðir. Læknar
töldu hana eiga þrjá mán-
uði eftir ólifaða.“
Kristín segir að Janet,
sem er jarðfræðingur að mennt,
hafi upp úr því farið að skoða
heimsbréfabækurnar sínar til að
sjá hvernig útbreiðslu krabba-
meins væri háttað eftir löndum.
„Hún veitti því eftirtekt að tíðni
krabbameins var einstaklega lág í
Kína, en hækkaði í þeim borgum
þar sem Kínverjar höfðu tekið upp
vestræna lifnaðarhætti eins og í
Hong Kong.“
Þetta varð aftur til þess að
Janet fór að skoða muninn á lífs-
máta Kínverja og Vesturlandabúa
með hliðsjón af því hvort einhverj-
ir umhverfisþættir gætu haft
áhrif á krabbameinstíðnina. „Hún
uppgötvaði þá að enginn mjólkur-
iðnaður er í Kína,“ útskýrir Krist-
ín.
Að sögn Kristínar ákvað Janet
því að hætta neyslu á mjólkuaraf-
urðum til að sjá hvort það bæri
einhvern árangur. „Hún stokkaði
upp mataræðinu, sneyddi
hjá mjólkurafurðum og
gerviefnum og lagði sig
fram við að borða lífrænan
mat. Samfara því hélt Janet
áfram í krabbameinsmeð-
ferðinni.“
Krabbameinskýli sem
höfðu staðið eins og hálf-
egg út undan herðablöðum
Janet og voru hörð við-
komu linuðust smám
saman þar til þau hurfu,
eftir að hún breytti matar-
æðinu. „Læknir Janet var
orðlaus því hún hafði stað-
ið frammi fyrir dauðan-
um,“ segir Kristín.
„Í framhaldi af því fann
Janet rannsóknargreinar þar sem
því var haldið fram að mjólk inni-
héldi vaxtaþætti sem örvuðu vöxt
krabbameinsfrumna,“ segir Krist-
ín. „Leiddar voru líkur að því að
væri neyslunni hætt drægi úr
vextinum. Í nýjustu útgáfu af bók
Janet fylgja þessar rannsóknir og
fleiri með.“
Spurð af hverju beri ekki meira
á þessum meintu tengslum í
umræðunni, segir Kristín mjólk-
uriðnaðinn hafa sterk samfélags-
leg ítök og bendir á að Janet hafi
orðið fyrir aðkasti frá aðilum
innan þess geira bæði í Bandaríkj-
unum og Ástralíu þegar hún flutti
fyrirlestra.
Kristín er í engum vafa um að
aðferðir Janet beri árangur. Sjálf
breytti hún mataræði sínu vegna
frumubreytinga í leghálsi, sem er
frumstig krabbameins, og hafði
það afturvirk áhrif. Mun Kristín
flétta þeirri reynslu saman við
fyrirlesturinn, sem hún flytur kl.
18.00 2. október í Manni lifandi
Borgartúni 24. Sjá nánari upplýs-
ingar á síðunni, www.madurlif-
andi.is. roald@frettabladid.is
Við erum það sem við borðum
Kristín situr í
vísindaráðgjafa-
nefnd Breska
rannsóknarráðs-
ins (NERC) fyrir
umhverfi og
heilsu. MYND/UNI-
VERSITY OF BRISTOL
Hanna Lára Steinsson fé-
lagsráðgjafi hefur ákveðnar
hugmyndir um úrræði fyrir
alzheimersjúklinga og að-
standendur þeirra enda hefur
sjúkdómurinn áhrif á líf ótal
fjölskyldna í landinu.
„Við eigum að huga miklu meira
að fyrri stigum alzheimersjúk-
dómsins en gert er og þeirri getu
sem sjúklingarnir hafa lengi fram-
an af. Reyna að koma strax inn í
með stuðning við fjölskylduna og
virkni fyrir sjúklingana. Við
höfum lengi einblínt á hjúkrunar-
heimilin og þar erum við alltaf
með biðlista en biðlistarnir gætu
verið miklu styttri ef um boðlega
heimaþjónustu væri að ræða,“
segir Hanna Lára. Hún var fyrsti
félagsráðgjafinn sem var ráðinn
eingöngu fyrir fólk með heilabilun
og aðstandendur þess hér á landi
og starfaði á Landakoti. Nú er hún
forstöðumaður Rannsóknarstofu
um barna- og fjölskylduvernd.
Nýlega kom út bók eftir hana
með viðtölum við aðstandendur
heilabilaðra sem vakið hefur
mikla athygli. „Ég er búin að halda
hundrað fyrirlestra um aðstand-
endur en það er ekki fyrir aðra að
lýsa þeirra aðstæðum. Þeir verða
að gera það sjálfir ef þær eiga að
komast til skila,“ segir hún um það
framtak.
Hanna Lára segir farið að
greina heilabilun mun fyrr en áður
var og að búist sé við gríðarlegri
fjölgun sjúklinga á næstu árum og
áratugum, næstum tvöföldun til
2030. Hún telur að Íslendingar
þurfi að spýta í lófana og efla
verulega þjónustuna við þennan
hóp.
„Í nágrannalöndunum eru
komin alls konar sérúrræði fyrir
heilabilaða. Margvísleg afþreying
fyrir yngri sjúklinga sérstaklega
og þar eru kaffihús þar sem hjón
koma saman, heilbrigði makinn og
sjúklingurinn. Makinn einangrast
oft svo gersamlega þegar hann
hefur engan stað til að fara á með
sjúklinginn án þess að honum finn-
ist það vandræðalegt,“ bendir hún
á. „Framtaksleysi er einn af fylgi-
fiskum sjúkdómsins í byrjun. Því
þurfa þeir sem þjást af honum oft
bara innlit og hvatningu. Það er
ekki nóg að skrá fólk í leikfimi eða
föndur því það hefur ekki í sér
frumkvæði til að drífa sig af stað.
Síðan fer verklagið að dala þegar
á líður og fólk hættir að geta gert
ýmsa hluti sem aðrir geta gert án
þess að hugsa. Þá þarf það aukna
aðstoð og lengri viðveru hjá því í
heimahúsum en síðan dagúrræði
þegar líður á.“
Hanna Lára vill koma upp sér-
stöku húsi fyrir heilabilaða og sér
þar fyrir sér fjölþætta þjónustu.
Þar væri boðið upp á ýmsa starf-
semi sem sjúklingurinn gæti tekið
þátt í og valið sjálfur hvað hann
vildi gera yfir daginn. Þar yrði
bæði dagdeild og skammtíma-
deild. „Skammtímadeild er úrræði
sem vantar gersamlega. Það eina
sem er í boði nú eru tvö sjúkrarúm
á Landakoti á þriggja manna
sjúkrastofu innan um veikustu
sjúklingana. Það þarf að vera
hægt að leysa aðstandendur af
með helgarinnlögnum eða viku,
svo þeir nái að hlaða batteríin.
Þarna þurfa að vera einstaklings-
herbergi með snyrtiaðstöðu,“
segir hún og bætir við að lokum:
„Við þurfum að koma okkur inn í
nútímann og koma fram við heila-
bilaða af þeirri virðingu sem þeir
eiga skilið.“ gun@frettabladid.is
Oft þurfa heilabilaðir
bara innlit og hvatningu
Hanna Lára ber hag heilabilaðra fyrir brjósti enda starfaði hún lengi í þágu þeirra og
aðstandenda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rétt mataræði getur skipt sköpum í
baráttunni gegn krabbameini.
�������
���������������������������
����������������������
����������������������������
���������������������������
���������������������������
����������� �������
����������������������������
��������������� ������������������
����������������������������
����������������������
����������������������
Næstu námskeið og fyrirlestrar
26. sept. Hvað heldur þú að þú sért?
17:30-19:00 Þorvaldur Þorsteinsson rithöfundur
27. sept. Eru geðlyf töfralausn eða martröð?
18:00-19:30 Benedikta Jónsdóttir
27. sept. Heilsukostur - Matreiðslunámskeið
18:00-21:00 Meistarakokkar Maður lifandi -Fullbókað
28. sept. Candida sýking í líkamanum
kl 17:30-19:00 Hallgrímur Magnússon læknir
02. okt. Mataræði til varnar og lækningu á
krabbameini
kl. 18:00-19:30 Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor
Fitusog án skurðaðgerðar
• Á aðeins 10 dögum færðu árangur sem jafnast á við fitusog
• Húðin stinnist og appelsínuhúðin hverfur
• Þú ert mæld,magi rass og læri, fyrir og eftir
• Öflugasta cellómeðferð hingað til sem stittir biðtímann um margar vikur
• 6 mismunandi aðferðir notaðar á þig til að skila sem mestum árangri
• 100% ánægja þegar meðferðinni er lokið...
Verð: 37.400,-
Ef þú pantar strax í dag Minna Mál grenningarmeðferðina færðu hana
á tilboðsverði kr: 24.900,-
Hringdu núna, síminn er: 577 7007
Kínastofan • Stórhöfði 17 • 110 Rvk
NÝTT BLAÐ
KOMIÐ ÚT!
ÁSKRIFTARSÍMI 550 5000 | WWW.VISIR.IS