Fréttablaðið - 26.09.2006, Side 30
■■■■ { jeppar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■4
„Það höfðu verið umræður um það
á netinu að 4x4 félagið væri ekki
að skipuleggja nógu mikið af ferð-
um fyrir lítið breytta eða óbreytta
bíla. Ég kom af stað umræðu um
hvort ekki væri rétt að stofna til
félagsskapar þeirra sem væru með
óbreytta bíla en hefðu áhuga á að
vera með,“ segir Sigurlaugur Þor-
steinsson, formaður Litludeildar-
innar. „Í framhaldi af þessu fór ég
og ræddi við formann 4x4 félags-
ins og hann hvatti mig til að vinna
frekar að þessu. Félagið útvegaði
húsnæði undir starfið og öflug-
ur hópur kom að málinu. Þetta
var fyrir þremur árum og svo vel
gekk að fljótlega var haldið í ferð
í Hólaskóg og síðan í Landmanna-
laugar. Sama ár fórum við svo á
Mýrdalsjökul með 27 bíla, nær alla
óbreytta.“
Sigurlaugur segir að nafn deild-
arinnar hafi komið til vegna þess
að menn hafi talað um að vera á
litlum dekkjum og stórum dekkjum.
„Við vorum allir á litlum dekjum og
því var ákveðið á stofnkvöldinu að
kalla deildina Litlu deildina.“ Í Litlu
deildinni fer fram kennsla fyrir þá
sem koma nýir inn í starfið. „Við
erum að kenna fólki grunnatriðin
í sambandi við fjallaferðir, hvaða
tegundir af spottum það þarf að
vera með. Það eru sérstakir teygju-
spottar sem við notum, en þeir þola
allt að 16 tonna átak. Þá kennum
við fólki að hleypa lofti úr dekkjum
til að bílarnir fljóti betur í snjónum
og svo kennum við fólki hvernig
eigi að bjarga sér úr hinum ýmsu
aðstæðum. Það má segja að þetta
sé alhliða fræðsla fyrir nýja jeppa-
menn. Tilgangurinn með þessu
starfi er að koma fólki inn í hópinn
og það hefur gengið mjög vel.“
Litla deildin hefur staðið fyrir
fjölda ferða þar sem óbreyttir bílar
fara á fjöll. Öryggisins vegna eru
þó alltaf stærri bílar með í ferðun-
um sem geta dregið óbreyttu bílana
ef einhverjir festa sig.
„Við höfum ekki verið mikið í því
að kynna þetta starf fyrr en nú þar
sem við höfum verið að móta starfið
hingað til,“ segir Sigurlaugur. Hann
segir að framtak þess hóps sem standi
að litlu deildinni hafi fengið mjög
góðar viðtektir og að mikið af fólki
hafi komið inn í starfið eftir að hafa
prófað að fara í ferð með deildinni.
„Það eru allir velkomnir í ferðir með
okkur, hvort sem þeir eru félagsmenn
eða ekki. Það er spennandi dagskrá
hjá okkur í vetur og við vonum að
sem flestir gangi til liðs við okkur.“
Venjulegir jeppar
geta líka farið á fjöll
Innan ferðafélagsins 4x4 er stafandi hópur sem kallast
Litla deildin. Þar er vettvangur fyrir byrjendur í jeppa-
ferðum og þá sem eiga óbreytta bíla til að komast inn í
starfið.
Litla deildin hjá 4x4 býður upp á ferðir fyrir fólk sem á lítið breytta eða óbreytta jeppa.
Vel er hægt að komast á óbreyttum jeppa
um fjöll og firnindi og njóta náttúrufegurð-
arinnar sem er einstök á fjöllum.
Japan/U.S.A.
STÝRISENDAR,
SPINDILKÚLUR
OG FÓÐRINGAR
í jeppa í miklu úrvali
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Samkvæmt lögum skal vera sjúkrakassi eða -púði í öllum breyttum bifreið-
um, svo og hóp- og skólabifreiðum. Vart þarf að tíunda gildi þess að eftir
þeim lögum sé farið og raunar ætti slíkur búnaður að vera til staðar í öllum
bílum og farartækjum.
Innihald sjúkrakassans skal vera samkvæmt fyrirmælum landlæknis en
samkvæmt þeim er lágmarksbúnaður þessi:
Verkjatöflur
Heftiplástur
Grisjuplástur
Sárabindi
Sáraböggull
Sílíkongrisjur eða sambærilegt (fyrir
skafsár)
Saltvatn til sárahreinsunar eða sambæri-
legt (einnota)
Teygjubindi
Skæri
Til viðbótar við þennan búnað má bæta ýmsu lauslegu við sem getur nýst
vel á ferðalögum. Hælsærisplástur eða gerviskinn ætti að vera staðalbún-
aður hjá öllum sem stunda gönguferðir á sínum ferðalögum.
Skurðaplástur og smáplástrar geta oft komið sér vel, sem og blautklútar til
hreinsunar. Íþróttalímband getur komið í staðinn fyrir heftiplástur en líka
nýst sem límband við önnur tækifæri. Að lokum koma öryggisnælur sér oft
vel, sem og sólarvörn, kæliáburður og einnota latexhanskar.
Engu gildir þó hversu vel sjúkrakassinn er búinn ef engin er kunnáttan.
Best væri ef allir lærðu skyndihjálp á þar til gerðum námskeiðum en jeppa-
og ferðafólk ætti að líta á það sem skyldu sína, enda oft á ferðinni utan
alfaraleiðar þar sem langt getur verið í læknisaðstoð. Eitt slíkt námskeið
getur því skilið milli lífs og dauða.
Hvað á að vera í
sjúkrakassanum?
Skyldubúnaður í breyttum bílum en gagnslaus án
þekkingar.
Allar nýjustu upplýsingar
og fréttir á ensku á
vefnum reykjavik.com og
í blaðinu Reykjavikmag.
Allt um allt sem skiptir máli í Reykjavík