Fréttablaðið - 26.09.2006, Qupperneq 32
■■■■ { jeppar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■6
Mörgum þykir að lögreglan hafi
gengið fram af of mikilli hörku
undanfarið og að ótækt sé að taka
fólk fyrir utanvegaakstur þegar það
keyrir á vegaslóðum.
„Það eru alltaf einhverjir sem
fara utan vega og skemma nátt-
úruna og það var ástæða þess að
farið var af stað með átakið Áfram
veginn á réttum slóðum,“ segir
Dagur Bragason, en hann á sæti í
umhverfisnefnd Ferðafélagsins 4x4.
Félagið hefur það að markmiði að
gefa gott fordæmi um umgengni og
verndun landsins. Undanfarið hefur
lögregla í umdæmi Sýslumanns-
ins á Selfossi verið sökuð um að
ganga of hart fram í herferð gegn
utanvegaakstri og dæmi séu um að
menn séu stöðvaðir fyrir utanvega-
akstur á vegarslóðum. „Sýslumað-
urinn á Selfossi hefur túlkað það
sem svo að ef vegur er ekki á korti
Landmælinga þá séu ökumenn utan
vegar. Ýmsir slóðar sem jeppafólk
hefur notað eru ekki á þeim kort-
um en eru engu að síður til staðar,“
segir Dagur.
Hann segir það hafa verið eilífa
baráttu að fá að ferðast um landið.
„Ferðafélagið hefur á sínum snær-
um slóðanefnd sem vinnur að skrá-
setningu vegarslóða víða um land.
Samkvæmt þeirri skilgreiningu sem
Sýslumaðurinn á Selfossi hefur
ákveðið að nota er bara lítill hluti
þeirra vega sem við notum leyfileg-
ir,“ segir Dagur.
Telja lögreglu
ganga of hart fram
Ferðaklúbburinn 4x4, Vélhjólaíþróttaklúbburinn, Ferða-
félag Íslands, Útivist, Umhverfisstofnun, Landgræðsla
ríkisins og Landvernd kynntu í sumar átak gegn utan-
vegaakstri sem hefur verið vaxandi vandamál.
Þyrlum hefur verið beitt til að ná þeim sem keyra utanvegar. Ekki er þó sami skilningur hjá
öllum á því hvað teljist utanvegaakstur.
„Það er mikið að gera hjá okkur
núna í ár. Við höfum komið að
umhverfisátakinu Á réttum slóð-
um ásamt fleiri aðilum. Þá erum
við auðvitað alltaf að skipuleggja
ferðir,“ segir Jón Snæland, ritari
Ferðafélagsins 4x4. Hann segir að
félagið vaxi stöðugt en félagatal-
an nálgast þriðja þúsundið. Jón
segir að jeppasport sé ekki eins
dýrt og margir haldi. Þetta sé
eitthvað sem flestir geti stundað,
enda sé hægt að fá ódýra jeppa til
fjallaferða. „Það er hægt að kaupa
38 tommu jeppa fyrir mun minni
pening en venjulegan fjölskyldu-
fólksbíl. Þetta er á færi bæði ríkra
og fátækra.
Við erum nýlega komin úr
ferð í Setur sem er stærsti skálinn
okkar, en þangað fóru 20 bílar um
helgina. Um næstu helgi verður
farið í 44 tommu ferð yfir Hófsvað
á Túná. Þetta er frægt vað sem
Guðmundur Jónasson fjallabíl-
stjóri fann árið 1950. Þá eru fyrir-
hugaðar þrjár nýliðaferðir fram að
jólum. Við stefnum að því að fara
í Jökulheima, Streið og sennilega
á Hveravelli.“
Jón segir að þá sé mikil vinna
unnin hjá félaginu við að merkja
leiðir og slóða. „Það vantar
almennileg kort af akstursleiðum
og við höfum verið að vinna skrá
yfir leiðir sem hægt er að fara.“
Þá hefur félagið staðið fyrir
landgræðsluferðum í Þórsmörk og
hafa félagsmenn verið duglegir að
taka til hendinni við uppgræðslu
landsins. Jón segir að öllum sé
velkomið að koma í félagið og
það sé auðvelt að skrá sig. „Fólk
getur skráð sig á vefsíðu okkar
eða komið á skrifstofuna.“
Jeppaferðir sífellt vinsælli
Tæplega þrjú þúsund félagar eru skráðir í Ferðafélagið 4x4 og á vegum þess eru ellefu
skálar víða um land. Félagið hefur vaxið mikið undanfarin ár og má segja að jeppa-
ferðir séu vaxandi áhugamál meðal landsmanna. Við fengum Jón Snæland, ritara
félagsins, til að segja okkur frá því starfi sem félagið vinnur.
Jón segir að hægt sé að fá ódýra jeppa til fjallaferða, því sé jeppasportið bæði fyrir ríka og
fátæka. Á myndinni má sjá jeppa Jóns, sem gengur undir heitinu Ofsi.
Félagið hefur staðið fyrir landgræðsluferð-
um í Þórsmörk.
Félagsmenn hafa verið duglegir að leggja
hönd á plóg í landgræðslu.
Jón G. Snæland segir að öllum sé
velkomið að koma í félagið. Sjá
www.4x4.is.