Fréttablaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 36
■■■■ { jeppar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■4
Fjallaförum er nauðsynlegt að eiga
góðar korta- og handbækur. Jón
Snæland hefur gefið út tvær bækur
sem gagnast fjallaförum vel, en
hann hefur áratugalanga reynslu af
ferðum um hálendi Íslands.
UTAN ALFARALEIÐA
Í bók-
inni Utan
alfaraleiða
er fjall-
að í máli,
m y n d u m
og kort-
um um
spennandi
jeppaleið-
ir, bæði
þ e k k t a r
leiðir og
m i n n a
þekktar. Í bókinni er að finna ítar-
legar myndskreyttar skrár um vöð,
skála og laugar, inngangskafla
með ýmsum nauðsynlegum upp-
lýsingum fyrir jeppaferðalanga. Þá
eru upplýsingar um 60 jeppaleiðir,
sem fara má sumar og vetur, GPS-
punkta, aksturstíma, vegalengdir,
gistimöguleika, kröfur til ökutækja,
þjóðlegur fróðleikur og margt
fleira.
EKIÐ UM ÓBYGGÐIR
Í bókinni
Ekið um
óbyggðir er
af finna ríku-
lega mynd-
s k r e y t t a r
lýsingar á
82 öku-
leiðum um
há l e nd i ð .
Fjallað er
um hvers
k o n a r
bílum þær eru færar, hvað ber að
varast á þeim og bent á athygl-
isverða staði. Þá eru töflur með
GPS-punktum, kort af leiðunum,
upplýsingar um vegalengdir og
aksturstíma, hvar hægt er að taka
eldsneyti og ýmislegt annað sem
nauðsynlegt er að vita. Í bókinni er
myndskreytt skálaskrá með upplýs-
ingum um 115 skála á hálendinu,
m.a. GPS-staðsetningu, gistirými,
kyndingu, umsjónaraðila og síma-
númer þeirra. Þá er sérstakur kafli
um ár þar sem gerð er grein fyrir
tæplega eitt hundrað vöðum.
Handbækur
fyrir fjallafara
„Ég er búinn að eiga þennan bíl í
nokkur ár og það má segja að ég sé
búinn að gera allt sem hægt er að
gera við hann. Ég er búinn að mála
hann og gera hann fínan, áður hafði
ég sett í hann 6,5 lítra vél úr subur-
ban og sjálfsskiptingu sem tilheyrir
henni. Núna er ég að setja bátaol-
íuverk í hann,“ segir Theodór sem
er menntaður vélaverkfræðingur.
„Síðan hef ég notið góðrar aðstoðar
frá konunni minni, Jarþrúði Þórar-
insdóttur, en hún er rafmagnstækni-
fræðingur og hefur hjálpað mér með
raflagnir í bílnum.“
Hann segir að þetta sé skemmtilegt
áhugamál en þetta er í annað skipti
sem hann vinnur að bílabreyting-
um. Theodór stefnir að því að fara á
bílnum fullgerðum á þorrablót 4x4
félagsins á næsta ári. „Ég ferðast
töluvert um fjöll, en hef þó ekki haft
eins mikinn tíma til þess núna eins
og áður. Ég keypti Patrol jeppa sem
ég hef notað meðan ég er að vinna
að hinum. Ég get hins vegar ekki
hrósað honum þótt hann sé þægi-
legur að keyra. Síðast þegar ég fór á
fjöll fór ég hjólandi,“ segir Theodór.
Ætlar á honum
á þorrablót
Margir bílaáhugamenn hafa skemmt sér við að gera
upp eða betrumbæta bíla sína. Einn þeirra er Theodór
Kristjánsson en hann er að gera upp 1988 árgerð af
Landcruiser HJ62 í bílskúrnum sínum.
Hér er bíllinn áður en Theodór tók hann
í gegn. Búið er að mála bílinn og nú er Theodór að setja bátaolíuverk í hann.
Landcruiser HJ62
árgerð 1988
Sérsmíðuð fjöðrun að framan og
aftan með mjög mikla slaglengd.
Bílinn var upphaflega með 4.0
turbo dísil og með 24volta rafkerfi
en er nú með 6,5 turbo dísil vél
með 4L80E rafstýrðri sjálfskipt-
ingu. Vélin var mæld á bekk hjá
Tækniþjónustu bifreiða og skilaði
bíllinn þar um 240 hestöflum og
697 Nm í togi.
Þetta fer síðan í 340 hestöfl og
tog nálægt 800 Nm þegar öllum
breytingum verður lokið.