Fréttablaðið - 07.10.2006, Qupperneq 2
2 7. október 2006 LAUGARDAGUR
SPURNING DAGSINS
Er gott að bera kaupfélags-
genið?
Það er alveg dásamlegt.
Ingibjörg Pálmadóttir skrifaði grein í
Fréttablaðið í gær þar sem hún sagði
meðal annars Kára Stefánsson ekki skilja
gildi „kaupfélagsgensins“ þegar hún biður
hann um að einangra það til að bjarga
megi Framsóknarflokknum.
SVÍÞJÓÐ Samsteypustjórn borg-
aralegu flokkanna í Svíþjóð tók
við stjórnartaumunum í gær. Á
óvart kom að nýi forsætisráð-
herrann Fredrik Reinfeldt, sem
er leiðtogi Hægriflokksins, fékk
Carl Bildt, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, til að fara með utanrík-
ismálin.
Að Reinfeldt skyldi hafa feng-
ið Bildt, sem stýrði minnihluta-
stjórn Hægriflokksins á árunum
1991-1994, til liðs við nýju stjórn-
ina var slegið upp sem stórfrétt í
sænsku blöðunum. Bildt sagðist
myndu vinna að því að bæta
tengslin milli Evrópusambands-
ins og Bandaríkjanna, sem hann
sagði lykilatriði ef árangur ætti
að nást í málum eins og barátt-
unni gegn gróðurhúsaáhrifunum
eða leitinni að friði í Mið-Austur-
löndum.
Menntamálaráðherra er Lars
Leijonborg, leiðtogi Þjóðar-
flokksins. Maud Olofsson, for-
maður Miðflokksins, tekur við
iðnaðarráðuneytinu. Alls eru ráð-
herrarnir tuttugu og tveir.
Hægriflokkurinn fær helming
ráðherraembættanna.
Nyamko Sabuni úr Þjóðar-
flokknum verður ráðherra inn-
flytjendamála, en hún er fyrsti
þeldökki ráðherrann í ríkisstjórn
Svíþjóðar. - aa
HÆGRISTJÓRN Nýi forsætisráðherrann
Fredrik Reinfeldt gengur út úr þinghús-
inu í Stokkhólmi eftir að hafa flutt fyrstu
stefnuræðu sína í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Samsteypustjórn borgaralegu flokkanna tekin við í Svíþjóð:
Carl Bildt í utanríkismálin
SVÍÞJÓÐ Sænskir dómstólar
dæmdu 43 ára gamlan kirkju-
vörð, sem játaði að hafa haft mök
við lík konu, á réttargeðdeild í
gær, kom fram á fréttavef
Dagens Nyheter. Maðurinn var
jafnframt ákærður fyrir að hafa
kveikt í kirkju í Surahammars.
Málið hefur vakið gríðarlega
athygli í Svíþjóð, enda hefur slíkt
mál ekki komið fyrir dómstóla
þar fyrr.
Kirkjuvörðurinn, sem sagðist
hafa verið afar einmana og eiga
við áfengisvandamál að stríða,
talaði um sjálfan sig í þriðju
persónu þegar hann lýsti verkn-
aði sínum fyrir réttinum.
Aðstandendur látnu konunnar
fóru í fyrstu fram á skaðabætur,
en hafa dregið þá kröfu til baka.
- smk
Hafði mök við lík:
Dæmdur á rétt-
argeðdeild
DÓMSMÁL Aðalmeðferð hófst í í
gær máli Öryrkjabandalags Íslands
á hendur íslenska ríkinu vegna van-
efnda þess síðarnefnda á samkomu-
lagi um tvöföldun grunnörorkulíf-
eyris þeirra sem metnir eru 75%
öryrkjar eða meira. Aðalkröfu ÖBÍ
var vísað frá en málið tekið til dóms
á forsendum varakröfu. Í henni er
farið fram á að grunnörorkulífeyrir
ofangreinds hóps verði tvöfaldaður
samkvæmt samkomulagi ÖBÍ og
ríkisins frá 25. mars 2003 auk skaðabóta sem jafn-
gilda 100% álagi á lífeyrinum vegna tímabilsins 1.
janúar 2004 til 31. desember 2005. Íslenska ríkið held-
ur hins vegar fram að ríkissjóður sé einungis skuld-
bundinn til að veita einum milljarði króna til verkefn-
isins, en samkvæmt útreikningum Tryggingastofnunar
ríkisins hefði full framkvæmd þess kostað um einn og
hálfan milljarð.
Til skýrslutöku mættu meðal annarra Garðar
Sverrisson, fyrrverandi formaður ÖBÍ, og Jón Kristj-
ánsson fyrrverandi heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra. Garðar sagði að aldrei hefði komið fram að
framkvæmdirnar mættu ekki kosta
meira en einn milljarð á meðan að
starfshópur sem hann átti meðal
annars sæti í vann að tillögum um
lagabreytingar svo að samkomulag-
inu mætti hrinda í framkvæmd.
Þegar fjárlagafrumvarp ársins 2004
var lagt fram um haustið hefði
annað komið í ljós. Jón Kristjánsson
hafi þá sagst ætla að beita sér fyrir
því að fá 2/3 hluta samkomulagsins
efndan 1. janúar 2004 og leggja
síðan til að síðasti þriðjungurinn kæmi inn á fjárlög
næsta árs og gengju í gildi 1. janúar 2005.
Jón Kristjánsson sagði að ríkissjóður hefði ein-
ungis samþykkt að veita einum milljarði til fram-
kvæmdarinnar og að Garðari hefði verið kunnugt um
það. Hann sagðist þó hafa kannað möguleikann á því
að fá auknar fjárheimildir í fjárlögum ársins 2005.
Jón sagðist hafa rætt málið óformlega innan ríkis-
stjórnarinnar en þó ekki á ríkisstjórnarfundum en
ríkisstjórnin hafi litið svo á að einn milljarður væri
öll upphæðin sem hún hefði skuldbundið sig til að
veita til verkefnisins. thordur@frettabladid.is
Aðalmeðferð í máli Öryrkjabandalagsins gegn íslenska ríkinu:
Vilja tvöföldun örorkulífeyris
JÓN
KRISTJÁNSSON
GARÐAR
SVERRISSON
FISKVINNSLA Stýrivaxtahækkanir
Seðlabankans sættu harðri
gagnrýni á aðalfundi Samtaka
fiskvinnslustöðva sem haldinn
var í gær. Einar Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra sem hélt
erindi á fundinum, sagði sjávar-
útvegsfyrirtækin hafa orðið fyrir
miklum búsifjum vegna hás geng-
is krónunnar og hafi hagræðing í
greininni skilað miklu.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, var öllu beinskeyttari í
erindi sínu. Hann sagði kappsmál
að halda Íslandi á meðal sam-
keppnishæfustu þjóða. En
nauðsynlegt væri að ná verð-
bólgunni niður á næsta ári áður
en uppsveifluskeið hefst á ný.
Kjarasamningar um mitt þetta
ár hafi verið skref í þá átt að
lækka verðbólgu en án þeirra
hefði mátt búast við hærri
verðbólgu nú. „En Seðlabankinn
spilar ekki með,“ sagði Vilhjálm-
ur og sagði bankann leggja
grunninn að nýrri „verðbólgu-
gusu“. - jab
FRÁ FUNDINUM Einar Guðfinnsson sjáv-
arútvegsráðherra flutti erindi um stöðu
og nýsköpun í sjávarútvegi á aðalfundi
Samtaka fiskvinnslustöðva.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Samtök fiskvinnslustöðva:
Gagnrýndu
Seðlabankann
HEILBRIGÐISMÁL Kona um fimmtugt
undirbýr nú bótakröfu vegna
rangrar sjúkdómsgreiningar sem
hún telur sig hafa orðið fyrir á
Læknavaktinni í Kópavogi. Konan
veiktist í vor og fór á Læknavakt-
ina. Hún telur sig ekki hafa fengið
rétta sjúkdómsgreiningu þar, en
síðar kom í ljós að hún var með
heilahimnubólgu. Hún lenti í
langvarandi veikindum og síðan
endurhæfingu á Grensásdeild.
Grímur Sigurðarson lögfræðingur
konunnar staðfesti við Fréttablað-
ið, að í undirbúningi væri bóta-
krafa á hendur því vátryggingafé-
lagi sem tryggi starfsemi
Læknavaktarinnar, samkvæmt
lögum um sjúklingatryggingar.
Matthías Halldórsson aðstoðar-
landlæknir kveðst kannast við
þetta tilvik, en tjáir sig ekki um
einstök mál.
„Það er alltaf eitthvað um að
mál vegna meintra læknamistaka
komi inn til embættisins,“ segir
hann. „En þau hafa ekki verið
mjög mörg gagnvart Læknavakt-
inni síðastliðin ár. Hingað koma
mál af ýmsum toga sem varða
kvartanir á heilbrigðisþjónust-
unni. Hins vegar höfum við engar
upplýsingar um mál sem kunna að
vera rekin fyrir dómstólum. Þau
eru þá komin úr okkar höndum.“
Matthías bendir á að Lækna-
vaktin sé mjög útsett fyrir kvört-
unarmálum, sem og slysa- og
bráðadeildir sjúkrahúsanna.
„Okkur berast á bilinu 230 til
250 mál frá einstaklingum á ári
hverju,“ segir hann. „Þau geta
spannað allt frá því að einhverjum
líki ekki framkoma heilbrigðis-
starfsmanns til alvarlegri hluta,
sem geta haft einhver áhrif á
heilsufar viðkomandi.“
Hann segir að samkvæmt
læknalögunum beri sjúkrastofn-
unum að tilkynna landlæknisemb-
ættinu ef eitthvað óvænt eigi sér
stað við meðferð sjúklings. Sú til-
kynningaskylda sé á hendi for-
stöðumanns eða yfirlæknis. Hann
beri jafnframt ábyrgð á því að
sérhver óvæntur skaði sé rann-
sakaður og afgreiddur. Málum
sem tilkynnt séu með þeim hætti
hafi fjölgað.
Matthías bendir á mikilvægi
sjúklingatryggingar. Tilgangur
hennar er að auka bótarétt sjúk-
linga, sem bíða heilsutjón vegna
áfalla í tengslum við meðferð.
Ekki þarf að sýna fram á sök eða
vanrækslu heilbrigðisstarfsfólks.
Bætur greiðast án tillits til þess
hvort einhver beri skaðabótaá-
byrgð samkvæmt reglum skaða-
bótaréttar. jss@frettabladid.is
LÆKNAVAKTIN Er mjög útsett fyrir kvörtunarmálum, segir Matthías Halldórsson
aðstoðarlandlækinir.
Krefst bóta vegna
læknamistaka
Kona um fimmtugt ætlar að krefjast bóta vegna rangrar sjúkdómsgreiningar sem
hún telur sig hafa orðið fyrir á Læknavaktinni í Kópavogi. Hún reyndist vera með
heilahimnubólgu, lenti í miklum, langvarandi veikindum og síðan endurhæfingu.
BANDARÍKIN Á löngum nafnalista,
sem notaður er á flugvöllum í
Bandaríkjunum til þess að stöðva
grunaða hryðjuverkamenn, er að
finna nöfn fjórtán af flugræn-
ingjunum nítján sem létu lífið í
árásunum 11. september 2001.
Þar er einnig að finna nöfnin
Saddam Hussein og Osama bin
Laden.
Ekki er heldur gott að heita
John Williams, Gary Smith eða
Robert Johnson. Þessi nöfn eru á
listanum ásamt fleiri algengum
nöfnum, sem þúsundir manna
bera.
Þeir sem bera þessi nöfn eru
nánast alltaf stöðvaðir þegar þeir
fara um borð í flugvél og iðulega
leitað á þeim.
Bandaríska sjónvarpsstöðin
CBS skýrði frá þessu.
- gb
Öryggisráðstafanir í BNA:
Látnir menn fá
ekki að fljúga
UMFERÐARSLYS Karlmaður slapp
lítið meiddur er bifreið sem hann
ók valt í Hvalfjarðargöngunum
um hálf sex leytið í gær. Loka
þurfti allri umferð um göngin á
meðan unnið var að því að koma
bifreiðinni út en hún var að
lokum dregin af vettvangi. Opnað
var fyrir umferð skömmu eftir að
búið var að koma bifreiðinni út úr
göngunum en óljóst er hver
tildrög slyssins voru. Bifreiðin er
mikið skemmd og jafnvel ónýt.
Karlmaðurinn var einn í
bifreiðinni er slysið varð en aðrar
bifreiðar, sem komu fyrst á
slysstað, skemmdust ekki.
- mh
Bílvelta í Hvalfjarðargöngum:
Ökumaður
slapp ómeiddur
Féll af baki
Kona fótbrotnaði illa er hún féll af
hestbaki á Víðidalsheiði um þrjú leyt-
ið í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar
var kölluð út og sótti konuna og var
hún flutt á slysadeild Landspítalans.
LÖGREGLUFRÉTT