Fréttablaðið - 07.10.2006, Page 8
8 7. október 2006 LAUGARDAGUR
STJÓRNMÁL Framtíðarskáldsaga, var
orðið sem Helgi Hjörvar í Samfylk-
ingunni valdi fjárlagafrumvarpi rík-
isstjórnarinnar sem tekið var til
fyrstu umræðu á Alþingi í gær. Sagði
hann frumvarpið ávísun á áfram-
haldandi ójöfnuð í samfélaginu.
Stjórnarandstæðingar komu víða
við í gagnrýni sinni og lögðu ýmist
áherslu á einstaka liði frumvarpsins
eða grunnforsendur þess. Katrín
Júlíusdóttir þingmaður Samfylking-
arinnar gagnrýndi lækkun vaxtabóta
og Guðjón A. Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, harmaði
skattastefnu ríkisstjórnarinnar en
Jón Bjarnason þingmaður VG sagði
tekjur ríkisins byggjast um of á stór-
iðjuframkvæmdum. Um leið ræddi
hann um aðgengi þingmanna að efna-
hagsrannsóknum og velti fyrir sér
hvort koma ætti á laggirnar sérstakri
efnahagsstofu Alþingis.
Birkir Jón Jónsson, formaður
fjárlaganefndar, undraðist að stjórn-
arandstæðingar skyldu segja frum-
varpið hægrisinnað enda væri góðum
árangri af rekstri ríkissjóðs skilað til
heimilanna.
Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðis-
flokki, sagði frumvarpið gríðarlega
sterkt og sýna að stjórnvöld væru á
réttri leið. - bþs
Fjárlagafrumvarpinu vísað til fjárlaganefndar:
Frumvarpið sagt
vera skáldsaga
ÁRNI M. MATHIESEN Fjármálaráðherra
mælti fyrir fjárlagafrumvarpi ársins 2007
á Alþingi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VERSLUN Árleg rýrnun í verslunum
hér á landi vegna þjófnaða og mis-
taka er um 2,8 milljarðar króna, að
mati Rannsóknaseturs verslunar-
innar, séu niðurstöður nýrrar
erlendrar könnunar heimfærðar á
íslenskar aðstæður. Er þá miðað við
meðaltalstölur frá 24 Evrópulönd-
um. Mestu munar um gripdeildir
viðskiptavina.
Stærstan hluta þessarar upp-
hæðar má rekja til þjófnaða, eða um
2,4 milljarðar, annað er vegna mis-
taka í versluninni. Þessi tegund
rýrnunar í verslunum er að meðal-
tali 1,24 prósent af veltu evrópskra
smásöluverslana, samkvæmt niður-
stöðum European Theft Barometer,
sem gerir slíkar kannanir á hverju
ári. Íslenskar verslanir voru ekki
með í könnuninni að þessu sinni, en
í fyrra, þegar þær tóku þátt, var
Ísland rétt undir meðaltalinu.
Stærstur hluti rýrnunar er tal-
inn vera vegna þjófnaða viðskipta-
vina eða 48,8 prósent. Næststærsti
hlutinn er talinn vera vegna þjófn-
aða starfsmanna, eða 30,7 prósent.
Ýmis mistök í fyrirtækjunum valda
14,3 prósentum rýrnunarinnar og
6,2 prósent eru vegna mistaka
birgja. Ef þessar tölur eru heim-
færðar upp á verslun hér á landi
stela viðskiptavinir árlega fyrir 1,4
milljarða kr. og starfsmenn fyrir
553 milljónir króna. - jss
Viðskiptavinir stela mest úr verslunum:
Milljarða rýrnun á ári
DÓMSMÁL Hlynur Smári Sigurðs-
son, sem situr í brasilísku fangelsi
vegna innflutnings á tveimur
kílóum af kókaíni til landsins, fékk
loks að hitta lögfræðing sinn
nýverið. Að sögn Hlyns tjáði
lögfræðingurinn honum að
möguleiki væri á því að fá hann
lausan úr fangelsinu þangað til að
ákæra væri gefin út þar sem
lögbundin gæsluvarðhaldstími
væri útrunninn. Töluverður
kostnaður er þó við slíkt og sagðist
Hlynur ekki vera með á reiðum
höndum þá fjármuni sem lögfræð-
ingurinn fór fram á. - þsj
Hlynur Smári Sigursson:
Gæti losnað fram að ákæru
Guðfinna S. Bjarnadóttir
Valfrelsi og skapandi umhverfi
www.guðfinna.is
Á morgun, sunnudaginn 8. október kl. 16:00, opnum við kosningaskrifstofu
Guðfinnu S. Bjarnadóttur í Landsímahúsinu við Austurvöll.
Við bjóðum alla velkomna til að kynna sér málefni frambjóðandans,
þiggja kaffiveitingar og njóta dagsins með okkur.
Við hlökkum til að sjá þig!
Stuðningsfólk Guðfinnu S. Bjarnadóttur
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október 2006
Kosningaskrifstofa
- opnum við Austurvöll
NJÓTIÐ ÞESS AÐ FLJÚGA
NÁMSKEIÐ
GEGN FLUGFÆLNI
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
TO
FA
N
/S
IA
.IS
IC
E
3
4
4
9
9
1
0/
20
00
6
Icelandair efnir til námskeiðs fyrir fólk
sem vill takast á við flugfælni.
Slík námskeið eru yfirleitt haldin á
vegum flugfélaga í löndunum
í kringum okkur og hafa flest svipaða
uppbyggingu.
Kenndar verða aðferðir til að vinna bug
á kvíða og fælni og farið yfir þætti sem
tengjast flugvélinni og fluginu sjálfu.
Námskeiðinu lýkur með flugferð til eins
af áfangastöðum Icelandair í Evrópu.
LEIÐBEINENDUR: Álfheiður
Steinþórsdóttir sálfræðingur
og Páll Stefánsson flugstjóri.
VERÐ: 30.000 kr.
NÁMSKEIÐIÐ HEFST: 16. október n.k.
SKRÁNING: flug@icelandair.is eða í
síma 50 50 155.
Umsóknir þurfa að berast eigi síðar en
11. október.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI