Fréttablaðið - 07.10.2006, Side 20
7. október 2006 LAUGARDAGUR20
„Kjartan er auðvitað vinur minn og
sérstaklega tryggur sem slíkur. Ég
hef þekkt hann í áratugi eða allt frá
því að hann starfaði fyrir mótfram-
bjóðanda minn í kjöri til Inspector í
Menntaskólanum í Reykjavík. Eftir
það kynntumst við betur og höfum
starfað náið saman síðan,“ segir
Davíð Oddsson, seðlabankastjóri
og fyrrverandi formaður Sjálf-
stæðisflokksins, um Kjartan Gunn-
arsson.
Davíð segir Kjartan ráðagóðan
og hjálpfúsan. Hann hafi reynst
mörgum vinum og samferðamönn-
um vel í gegnum árin. „Kjartan
segir mér reyndar aldrei frá því og
hef ég frétt það eftir krókaleiðum.
En það lýsir honum líka vel. Hann
er sérstaklega laginn við að þegja
yfir leyndarmálum.“
Ólíkt stjórnmálamönnum hefur
Kjartan Gunnarsson ekki þurft að
vera í sviðsljósi fjölmiðla meira en
hann kærir sig um. Það hefur því
alltaf ríkt ákveðin dulúð í kringum
manninn. Kennarar við stjórnmála-
fræðiskor Háskóla íslands hafa
haldið því fram í mörg ár að hann
sé einn valdamesti einstaklingur-
inn í íslenskum stjórnmálum. Telja
fleiri að völdin fylgi persónu Kjart-
ans, sem flokksmenn treysti og leiti
til. Það hefur auðvitað líka sín áhrif
að hann hefur verið framkvæmda-
stjóri stærsta stjórnmálaflokks
Íslands í 26 ár og starfað með þrem-
ur forsætisráðherrum.
Össur Skarphéðinsson, þing-
flokksformaður Samfylkingarinn-
ar, þurfti fyrst að takast á við Kjart-
an í stúdentapólitíkinni þegar þeir
leiddu hvor sína fylkinguna. Össur
segist alltaf hafa verið hlýtt til
Kjartans síðan þó hann hafi deilt á
hann. Það hafi verið gaman að ríf-
ast við hann um pólitík í gamla
daga. „Það vita allir, sem hafa verið
í návígi við Kjartan, að hann hefur
húmor fyrir sjálfum sér og aðstæð-
um. Hann er blíður undir niðri,
kannski ekki einstrengingslegur,
en oft erfiður við að eiga í rökræð-
um. Fáa menn rökfastari þekki ég,“
segir Össur.
Viðmælendur Fréttablaðsins
eru sammála um að Kjartan sé
mikill mælskumaður og hefði
auðveldlega getað fótað sig í pól-
itíkinni. Og muni kannski gera
síðar. Hann fetaði þá leið strax í
skóla, fyrst í MR, síðan sem for-
ystumaður Vöku, þá var hann for-
maður Heimdallar, félags ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík
1977-1979. Sigraði Kjartan Júlíus
Hafstein í kosningu um embætt-
ið.
„Kjartan er mjög skemmtilegur
og þægilegur í viðkynningu. Hann
segir fátt, en þegar hann opnar
munninn þagna aðrir. Hann er jafn-
góður og jafnsterkur ræðumaður
og þjálfuðustu atvinnustjórnmála-
menn, en beitir þeim hæfileikum
sínum sjaldan,“ segir Hannes
Hólmsteinn Gissurarson prófessor
um þennan vin sinn.
Sagan segir að Kjartan hafi í
gegnum árin þegið lítil sem engin
laun frá Sjálfstæðisflokknum og
borgi frekar með sér ef eitthvað er.
Hann er sterkefnaður, erfði eignir
eftir foreldra sína og hefur hagnast
í viðskiptum. Hann er umsvifamik-
ill í fasteignaviðskiptum og 20.
stærsti hluthafinn í Landsbanka
Íslands í gegnum eignarhaldsfélag-
ið Skipholt ehf. Undanfarin ár hefur
hann byggt upp kirkjujörðina Saur-
bæ við Rauðasand á Vestfjörðum,
þangað sem hann fer gjarnan til að
slaka á. Samhliða hefur hann komið
upp aðstöðu fyrir fólk sem vill
tjalda og njóta fegurðar Vestfjarða
og gott ef kaffi er ekki á boðstólum
að Saurbæ fyrir góða gesti.
Þrátt fyrir þessi miklu umsvif
Kjartans er hann sérstaklega passa-
samur á að ekkert sem hann gerir
orki tvímælis í ljósi stöðu hans. Á
hann að hafa aðstöðu utan skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins til að
sinna öðrum verkefnum en snúa
beint að flokknum. Ber það glöggt
merki um hversu varfærinn Kjart-
an er þegar kemur að persónuleg-
um málum.
Eitt veigamesta verkefni fram-
kvæmdastjóra er að undirbúa kosn-
ingabaráttu og skipulagningu
landsfunda. Það hefur Kjartan jafn-
an leyst óaðfinnanlega ásamt
starfsfólki Valhallar. Engin stór
vandamál hafa komið upp hjá þess-
um stóra flokki undir stjórn Kjart-
ans enda þekkja þeir, sem hafa
starfað í lengri eða skemmri tíma á
skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, að
hann gerir þá ófrávíkjanlegu kröfu
að fólk fari að settum reglum.
„Fyrir mig hafa það verið algjör
forréttindi að fá tækifæri til að
vinna með Kjartani, enda er hann
einn vandaðasti maður sem ég hef
kynnst. Kjartan er mikill hugsjóna-
maður, ber mikla virðingu fyrir
einstaklingnum, framtaki hans og
frelsi og hefur sem framkvæmda-
stjóri verið einn öflugasti hug-
myndafræðingur Sjálfstæðis-
flokksins. Sem samstarfsmaður og
vinur er Kjartan einstaklega
traustur, jákvæður og ráðagóður,
fyrir nú utan hversu skemmtilegur
hann er og mikill húmoristi,“ segir
borgarfulltrúinn Hanna Birna
Kristjánsdóttir, sem var áður
aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins.
Tryggðin er samstarfsmönnum
og vinum Kjartans greinilega hug-
leikin. „Hann er einn þeirra manna
sem verða vinum sínum því kærari
sem þeir kynnast honum betur.
Hann er tryggðatröll. Hann er líka
sérlega rólegur og jafnlyndur og
lætur þess vegna vel að vinna með
örlyndum, áköfum og hugmynda-
ríkum mönnum, sem líður vel með
honum og fá hæfilega tamningu
hæfileika sinna í samneyti við
hann. Þeir Davíð og Kjartan voru
eins og fóstbræður, þegar þeir
höfðu veg og vanda af Sjálfstæðis-
flokknum og bættu hvor annan
upp,“ segir Hannes Hólmsteinn.
Eftir að Kjartan útskrifaðist úr
lagadeild Háskóla Íslands árið
1978, þar sem hann var meðal ann-
ars formaður Orators, stundaði
hann nám í herfræðum við varnar-
málaherskóla norska varnarmála-
ráðuneytisins. Árið 1980 varð hann
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins og fimm árum síðar, 29.
desember 1985, kvæntist hann Sig-
ríði Snævarr sendiherra.
„Hann er mjög flinkur og slíp-
aður í samskiptum við fólk og
útsjónarsamur að finna lausnir.
Enginn tími fer til spillis hjá Kjart-
ani í einhver leiðindamál, því ekk-
ert haggar honum. Hann hvílir svo
einstaklega vel í sjálfum sér og er
til fyrirmyndar í því að þurfa ekki
stöðugt að leita staðfestingar hjá
öðrum til að vera viss í sinni sök,“
segir Sigríður eiginkona Kjartans.
Hún er sammála öðrum viðmæl-
endum Fréttablaðsins um að nán-
ustu vini sína velji hann úr hópi
samherja og skoðanabræðra, en
líka úr hópi bernskuvina eða þeirra
sem tengjast fjölskyldu hans. Hann
geri mjög mikið fyrir mjög fáa, sé
mikill vinur vina sinna og bóngóð-
ur með afbrigðum, án þess að kæra
sig um að frá því sé skýrt eða það
þakkað.
„Hann er með afbrigðum heil-
steyptur maður og skemmtilegur
og bak við alvarlegt yfirbragðið
leynist mikill húmoristi,“ segir Sig-
ríður.
Húmorinn er sem sagt aldrei
langt undan þótt augnablikið sé
háalvarlegt. Þegar mikil barátta
átti sér stað í íslensku viðskiptalífi,
og áhrifamenn funduðu um fram-
gang málsins á leynilegum fundi,
dró Kjartan vasaklút upp úr brjóst-
vasa sínum og sagði: „Jæja. Þá er
víst bara eitt eftir.“ Tók hann vatns-
glasið sem hann hafði drukkið úr
og pússaði vandlega með klútnum.
Kom þetta fram í greinaflokki Agn-
esar Bragadóttur um málið í Morg-
unblaðinu, þó hún nefndi ekki
Kjartan á nafn. Fundarmenn hefðu
horfið skellihlæjandi á braut.
Eitt sinn ofbauð Hannesi Hólm-
steini skrif Össurar Skarphéðins-
sonar og sagði við Kjartan: „Hvern-
ig er það með hann Össur, er ekkert
vit í honum?“ Kjartan hugsaði sig
um smástund og sagði síðan: „Jú,
hann hefur hrekkjavit“.
Lokaorðin um Kjartan Gunnars-
son verða ljóðlínur sem einn við-
mælandi Fréttablaðsins sagði að
kæmu upp í hugann þegar Kjartan
bæri á góma. „Sú fullvissa er fædd
í oss öllum að frelsið sé líf hvers
manns, jafneinfalt og eðlisbundið
og andardráttur hans.“
MAÐUR VIKUNNAR
Einstakur húmoristi sem kann
að þaga yfir leyndarmálum
KJARTAN GUNNARSSON
FRÁFARANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
HAUSTBÓKAMARKAÐUR
SKJALDBORGAR
MÖRKINNI 1
Barnabækur, fræðslubækur fyrir
börn og unglinga, unglingabækur,
skáldsögur, handbækur, dulræn
efni, ævisögur, krossgátublöð
og margt fleira.
Allir sem versla fá gjafabók
Haustbókamarkaður Skjaldborgar er
upplagður grundvöllur fyrir jólagjafakaup
eða einfaldlega gott tækifæri til að
komast í paradís bókaormsins.
Opið virka daga 9-17, nema fimmtudag 9-20,
laugardaga 10-17 og sunnudaga 12-16.