Fréttablaðið - 07.10.2006, Qupperneq 26
7. október 2006 LAUGARDAGUR26
stjornmal@frettabladid.is nánar á visir.is
Ekkert blað?
550 5600
Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu
fengið Fréttablaðið. En til vonar
og vara skaltu klippa þetta símanúmer
út og hringja ef blaðið berst ekki.
- mest lesið
Það er ekki aðeins
liturinn á kápunni sem
er með því daufasta
sem við höfum séð í tíð
þessarar ríkisstjórnar.
Það er eins og frum-
varpið skammist sín og
vilji ekki láta bera á
sér.
Jón Bjarnason, Vinstri grænum,
í umræðum um fjárlagafrum-
varpið.
Sko, prófessorar í
hagfræði við Háskóla
Íslands, það er þeirra
vandamál ef þeir koma
fram í blöðum og skrifa
einhverja endemis
bölvaða vitleysu um
Gini-stuðul.
Einar Oddur Kristjánsson,
Sjálfstæðisflokki, í umræðum
um fjárlagafrumvarpið.
Vika er búin af þinginu og ég hef
strax öðlast talsverða reynslu í að
vera þingfréttaritari. Ég geng nú
ákveðnari um gangana og er frjáls-
legri í fasi en í byrjun vikunnar. Mér
líður ekki lengur eins og ég sé að
byrja í nýjum skóla og eigi á hættu
að eldri nemendur hengi mig upp á
snaga. Ég er meira að segja farinn
að fá mér kaffi í matsalnum sem ég
tel vissan áfanga. Kannski ég sleppi
fram af mér beislinu í næstu viku og
fá mér kjötbollur í hádeginu.
Fimm mál hafa verið rædd það
sem af er þingi og ég hef hlustað
á hvert orð sem sagt hefur verið af
athygli. Ekki varða þau öll þjóðarhag
eins og eftirfarandi orðaskipti Árna
M. Mathiesen og Einars Más Sigurð-
arsonar bera með sér.
ÁMM: „Frú forseti. Ég verð nú að
segja að mér brá við ræðu háttvirts
þingmanns. Háttvirtur þingmaður
sem alla jafna er glaðsinna, hann sá
bara svart.“
EMS: „Frú forseti. Það er aldeilis að hæstvirtur ráðherra hefur farið vit-
lausu megin fram úr í morgun. Ég kannast ekki við að ég hafi ekki séð neitt
nema svart. Hann er kannski farinn að sofa í nýja kjördæminu og það er
lengra á milli og hann ekki búinn að jafna sig þegar hann kemur í þingsal.“
ÁMM: „Frú forseti. Það gleður mig að Eyjólfur er að hressast hvar svo
sem hann hefur farið fram úr í morgun. Ég ætla ekkert að dæma um það.“
Þeir geta verið léttir á því í þinginu.
Á þeirri viku sem liðin er hafa 78 skjöl verið lögð á skrifborðið mitt í þing-
húsinu. Skjölin eru mismikil að vexti og hlaupa frá því að vera ein blaðsíða
upp í 420 síður. Það viðurkennist hér með að ég hef ekki komist yfir að
lesa þau öll en ég hef helgina. Þingmennirnir sjálfir standa vitaskuld klárir á
hverju orði hvort sem frumvörpin, þingsályktunartillögurnar eða fyrirspurn-
irnar koma úr þeirra röðum eða pólitískra andstæðinga. Hér eru menn vel
upplýstir.
En ég sé fram á vandamál. Fái ég 78 skjöl á viku í þær nítján vikur sem
áætlað er að þing starfi hef á endanum fengið 1.428 skjöl. Sem taka sitt
pláss.
Maður hendir nefnilega ekki frumvarpi þó búið sé að skrifa um það frétt.
Í því felst táknræn yfirlýsing um að frumvarpið sé rusl og ekki ætla ég að
vera sá sem úrskurðar um hvort frumvarp sé rusl eða ekki.
Skjölin fara í tvo stafla á skrifborðinu mínu sem heita Lesið og Ólesið.
Og svona til sönnunar þess að ég hafi lesið eitthvað í vikunni flýtur hér
með tilvitnun í fjárlagafrumvarpið. „Eftirfarandi er yfirlit yfir fjárlagaliði með
óskiptum fjárheimildum ráðuneytisins sem ætlaðir eru til að millifæra fjár-
heimildir af á aðra fjárlagaliði innan fjárlagaársins í samræmi við forsendur
og tilgang fjárveitinganna.“ Og spurt er; hvað eru mörg fjár í því?
VIKA Í PÓLITÍK
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
Skjöl á skjöl ofan
Á þeim fimm dögum sem liðnir eru síðan þing kom
saman hefur 21 fyrirspurn verið lögð fyir ráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir Samfylkingunni hefur verið
iðnust ¿ sex eru þegar komnar úr hennar ranni.
Samfylkingin er raunar sá flokkur sem helst vill
spyrja því tólf af 21 eru þaðan. Framsóknarþing-
menn hafa lagt fram fimm fyrirspurnir, frjálslyndir
tvær og sjálfstæðismenn tvær.
Flestum fyrirspurnum – fjórum – hefur verið
beint til heilbrigðisráðherra og þremur til félags-
málaráðherra. Upp á aðra ráðherra stendur að
svara einni til tveimur fyrirspurnum. Raunar hafa
þingmenn ekki enn séð ástæðu til að spyrja fjár-
mála- og landbúnaðarráðherra eins né neins.
Fyrirspurnirnar eru af ýmsum toga. Sigurjón
Þórðarson spyr iðnaðarráðherra hvort hann hygg-
ist beita sér fyrir því að útræðisréttur stranda-
jarða verði virtur að nýju og Kristján Möller spyr
menntamálaráðherra hvort uppi séu áform um
útsendingar alla virka daga hjá svæðisútvarpinu á
Austurlandi. Valdimar L. Friðriksson spyr mennta-
málaráðherra hvort hún hyggist beita sér fyrir fram-
haldsskóla í Mosfellsbæ og Guðjón Ólafur Jónsson
spyr samgönguráðherra hvað líður undirbúningi að
gerð Sundabrautar og mislægra gatnamóta Miklu-
brautar og Kringlumýrarbrautar. Jóhanna Sigurðar-
dóttir spyr svo félagsmálaráðherra hversu margar
nýbyggingar voru byggðar árlega árin 2000-2005,
dómsmálaráðherra um hve mikið magn fíkniefna
lögregla og tollgæsla lögðu hald á 2004 og 2005
og það sem af er þessu ári og heilbrigðisráðherra
hversu há endurgreiðsla var vegna tannlækna-
kostnaðar barna og unglinga á síðustu tveimur
árum.
Við þessum spurningum og miklu, miklu fleiri
eiga eftir að fást svör á Alþingi Íslendinga.
Spurt um nýbyggingar, útræðisrétt
útvarpssendingar og fíkniefni
Aðeins 33 mínútur liðu á miðvikudag
frá því að frumvarp kom á dagskrá
þar til það var samþykkt sem lög frá
Alþingi. Frumvarpið fjallaði um rétt
nefndar til aðgangs að opinberum
gögnum um öryggismál og kemur
fram vegna upplýsinga um símhler-
anir og njósnir.
Allir flokkar stóðu að frumvarpinu
og ríkti eining um afgreiðslu þess. Í
stuttu máli var atburðarásin þessi:
18.00 Fundur settur á Alþingi. Rann-
veig Guðmundsdóttir forseti leitar
samþykkis fyrir að málið sé tekið á
dagskrá.
18.03 Samþykki fæst og gengið er til
dagskrár; eina málið tekið fyrir.
18.04 Sólveig Pétursdóttir mælir fyrir
málinu.
18.07 Össur Skarphéðinsson tekur til
máls.
18.10 Mörður Árnason tekur til máls.
18.17 Ögmundur Jónasson tekur til
máls.
18.18 Arnbjörg Sveinsdóttir tekur til
máls.
18.21 Hjálmar Árnason tekur til máls.
18.22 Magnús Þór Hafsteinsson tekur
til máls.
18.25 Umræðum lýkur. Gengið til
atkvæðagreiðslu. Málinu vísað til
annarrar umræðu. Fundi slitið.
18.29 Fundur settur á Alþingi. Rann-
veig Guðmundsdóttir leitar samþykk-
is fyrir að málið sé tekið á dagskrá.
18.30 Samþykki fæst og gengið
til dagskrár; eina málið tekið fyrir.
Enginn kveður sér hljóðs. Gengið
til atkvæðagreiðslu. Málinu vísað til
þriðju umræðu. Fundi slitið.
18.31 Fundur settur á Alþingi. Rann-
veig Guðmundsdóttir leitar samþykk-
is fyrir að málið sé tekið á dagskrá.
18.32 Samþykki fæst og gengið
til dagskrár; eina málið tekið fyrir.
Enginn kveður sér hljóðs. Gengið til
atkvæðagreiðslu. Frumvarpið er sam-
þykkt og málið sent ríkisstjórn sem
lög frá Alþingi.
18.33 Fundi slitið.
Alþingi á hraða ljóssins
Kristinn H. Gunnarsson vill
að ráðherrar sitji ekki á Al-
þingi. Veljist þingmaður til
setu í ríkisstjórn skuli hann
afsala sér þingmennsku.
Með því vill hann styrkja
þingið. Jóhanna Sigurðar-
dóttir sér kosti og galla við
hugmyndina en þann ágalla
helstan að tilhögunin styrki
stjórnarliðið enn frekar en
nú er.
Kristinn hefur lagt fram frum-
varp um breytingu á stjórnar-
skránni og vill að í henni standi
einfaldlega: Ráðherra má ekki
vera alþingismaður.
„Ráðherra sem jafnframt er
þingmaður verður mjög áhrifa-
mikill í þinginu, sérstaklega í
sínum þingflokki og því meira
sem ráðherrarnir eru hærra hlut-
fall af þingmönum,“ segir Krist-
inn um ástæður þess að hann legg-
ur þessa breytingu til. Hann vill
ekki ganga svo langt að segja að
þrískipting valdsins sé í reynd
hjóm en segir fyrirkomulagið
blandaðan kokteil. „Dómsvaldið
er ekki alveg sjálfstætt meðan
stöðuveitingavaldið er í höndum
ráðherra en þó má segja að það
hafi sjálft sótt sér aukið sjálfstæði
að undanförnu. En framkvæmda-
valdið og löggjafarvaldið er mjög
samtvinnað af því að við höfum
þingbundið fyrirkomulag. Það
verður það auðvitað áfram og er í
öðrum löndum líka en það sem
gerir þetta verra hjá okkur er að
við erum með svo fjölmenna ríkis-
stjórn í fámennu þingi.“
Jóhanna Sigurðardóttir, Sam-
fylkingunni, var ráðherra í sjö ár
og hefur auk þess reynslu af að
sitja sem óbreyttur þingmaður,
bæði í stjórnarliði og stjórnarand-
stöðu. Hún sér kosti og galla við
hugmynd Kristins. „Mér sýnist
þetta verða til að styrkja stjórnar-
liðið sem fær í raun tólf vinnu-
menn. Það fær líka aukinn liðsafla
til að sitja í nefndum og taka þátt í
umræðum ef þingmennirnir eru
ekki ráðherrar. Um leið veikist
stjórnarandstaðan.“
Jóhanna segir ótvíræða kosti
þessu samfara ef fámennir þing-
flokkar sitji í ríkisstjórn. Þar sem
stór hluti þingmanna er ráðherra
sé þetta til bóta. Sú var raunin í
síðustu ríkisstjórn sem Jóhanna
sat í, af tíu þingmönnum Alþýðu-
flokksins voru fimm ráðherrar.
Og sú hefur verið raunin í þingliði
Framsóknarflokksins, af tólf þing-
mönnum hafa sex verið ráðherr-
ar.
Bróðurpartur frumvarpa sem
verða að lögum eru lögð fram af
ráðherrum og unnin í ráðuneytun-
um. Sérfróðir starfsmenn ráðu-
neytanna koma að smíðinni en
alþingismenn hafa ekki sama
aðgengi að sérfræðingum. „Þingið
er mjög veikburða í þeim efnum,“
segir Kristinn. „Þingið þarf að fá
sérfræðinga og peninga til að
kaupa þjónustu eins og ráðuneytin
gera.“ Jóhanna er sama sinnis;
segir mikilvægt að sérfræðiaðstoð
við þingmenn verði aukin.
Kristinn er ósáttur við hvernig
ráðherrar stýra lagasetningunni í
landinu. „Ráðherrarnir möndla
með málin sín á milli og þau koma
yfirleitt ekki inn í þingflokkana
fyrr en allt er búið og gert. Þing-
menn eru því settir í þá stöðu að
vera vinnumenn ráðherranna,“
segir Kristinn og bendir á að ráð-
herrar eigi það til að lýsa yfir í
fjölmiðlum að frumvarp verði að
lögum fyrir tiltekinn tíma þótt það
hafi ekki verið lagt fyrir þingið.
En hverja sér hann fyrir sér
verða ráðherra, verði tillaga hans
að veruleika? Verður það yfirleitt
fólk sem áður hefur verið kjörið á
þing eða fólk utan úr bæ? Báðar
leiðir eru færar og líklegar. „Ef
þingið verður styrkt, sérfræðiað-
stoðin aukin og laun þingmanna
hækkuð verður sennilega jafn
áhugavert að vera þingmaður. Þá
yrðu ráðherrar ráðnir eins og for-
stjórar. Ráðherrum verða þá lagð-
ar línurnar - þeir geta náttúrulega
heimtað hitt og þetta - en þeir ráða
ekki og þeir komast ekki yfir þing-
ið.“
Jóhanna Sigurðardóttir vill
fyrir alla muni styrkja þingið. En
verði tillaga Kristins að lögum ótt-
ast hún að skyldur ráðherranna
við þingið minnki. „Það þyrfti alla-
vega að tryggja skyldur þeirra, til
dæmis að þeir mæti á fundi þing-
nefnda. Stjórnarandstaðan yrði
líka að hafa aðgang að fram-
kvæmdavaldinu. En þessi tillaga
myndi auka kostnað verulega og
svo eru mikil þrengsli í þingsaln-
um þannig að það eru ýmsar prakt-
ískar ástæður sem mæla gegn
þessu.“
Ráðherrar sitji ekki á þingi
HÚRRA FYRIR FORSETANUM Kristinn H. vill að ráðherrar séu ekki þingmenn.
KRISTINN H.
GUNNARSSON
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,,
Öryggismál voru Geir H. Haarde
forsætisráðherra hugleikin í stefnu-
ræðunni á þriðjudag. Orðið öryggi
kom fyrir sex sinnum í ræðunni.
Önnur efnisorð voru líka nefnd.
Frelsi 3
Árangur 3
Kaupmáttur 2
Skattar 3
Stöðugleiki 1
Náttúra 5
Kosningar 3
Stjórnarandstaða 0
ÖRYGGI OFT NEFNT
Í STEFNURÆÐUNNI