Fréttablaðið - 07.10.2006, Síða 30
7. október 2006 LAUGARDAGUR30
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
MERKISATBURÐIR
1954 Minjasafn Reykjavíkur er
stofnað.
1960 Nígería fær inngöngu í
Sameinuðu þjóðirnar.
1981 Hosni Mubarak verður
forseti Egyptalands í stað
Anwar Sadat sem var
myrtur.
1982 Söngleikurinn Cats er
frumsýndur í London.
1989 Sýning er opnuð í
Þjóðminjasafninu í tilefni
þess að 150 ár voru síðan
ljósmyndir voru fyrst
kynntar í París.
1992 Flóðljós eru tekin í
notkun á Laugardalsvelli
á landsleik Íslands og
Grikklands í knattspyrnu.
2001 Bandaríkjamenn gera
loftárás á Afganistan.
RANDVER ÞORLÁKSSON
ER 57 ÁRA Í DAG
„Ég segi samt eins og íslenska landslið-
ið, það er ekki aðalatriðið að vinna
heldur að vera með.“
Háðfuglinn Randver lýsir afrekum sínum í badminton
og golfi.
Á þessum degi árið
1985 rændu palest-
ínskir hryðjuverkamenn
ítalska farþegaskipinu
Achille Lauro á Mið-
jarðarhafi og hótuðu
að sprengja það í loft
upp. Kröfðust þeir þess
að fimmtíu palestínsk-
um föngum í Ísrael yrði
sleppt úr haldi.
Um fjögur hundruð
farþegar voru um borð í skipinu. Hryðjuverkamenn-
irnir skutu einn farþeganna til bana. Það var hinn 69
ára gamli Leon Klinghoffer frá Bandaríkjunum sem
var fatlaður og fastur í hjólastól. Líki hans var kastað
útbyrðis.
Hættuástandinu lauk 10. október þegar Egyptar
leyfðu ræningjunum að komast undan í skiptum
fyrir fangana.
Bandarísk yfirvöld
sendu herþotur til að
fara í veg fyrir egypsku
flugvélina sem flutti
ræningjana og neyddi
hana til lendingar á
Ítalíu.
Fjórir þeirra voru
dæmdir til langrar
fangelsisvistar á Ítalíu
en Abu Abbas sem
talinn er vera höfuðpaurinn og hafa skipulagt ránið
slapp undan fangelsisdómi. Hann var handtekinn af
bandarískum hermönnum í Bagdad í apríl 2003 og
dó í haldi þeirra í mars 2004. Krufning leiddi í ljós
að hann hefði látist af hjartasjúkdómi.
Raunum skipsins Achille Lauro var þó ekki lokið því
árið 1994 kviknaði í því og það sökk.
ÞETTA GERÐIST: 7. OKTÓBER 1985
Hryðjuverkamenn ræna farþegaskipi
ACHILLE LAURO
Ingibjörg Ólafsdóttir er hætt sem hót-
elstjóri Hótel Íslands, en hún hefur
gegnt því starfi í fimmtán ár. Hún
heldur til Bretlands á mánudag þar
sem hún mun taka við starfi hótel-
stjóra Radisson SAS hótelsins í
Leeds.
„Þetta leggst óskaplega vel í mig,
mér finnst mjög spennandi að prófa
eitthvað nýtt,“ sagði Ingibjörg í sam-
tali við Fréttablaðið, en hún mun
starfa í fyrsta skipti á erlendri grundu.
„Þetta hefur verið skemmtilegur og
lærdómsríkur tími hérna á Hótel
Íslandi, en það er líka gaman að breyta
til,“ sagði hún. Ingibjörg sagðist þó
ekki búast við því að viðbrigðin yrðu
of mikil. „Hótelið í Leeds tilheyrir líka
Rezidor SAS eins og Hótel Ísland og
Saga. Það verða væntanlega svipuð
vinnubrögð á hótelinu og svo verð ég
með gríðarlega sterkt öryggisnet sam-
starfsmanna í kringum mig,“ sagði
Ingibjörg, en viðurkenndi þó að eitt-
hvað örlaði á fiðrildum í maganum.
Ingibjörg mun stökkva út í djúpu
laugina þegar hún hefur störf næst-
komandi þriðjudag, en hún hefur
aldrei komið til Leeds áður. „Þetta
gerðist allt svo hratt að ég hef ekkert
komist í að kynna mér staðhætti
þarna. Það voru einhverjar hrókering-
ar í Leeds og mér var boðið starfið.
Þetta kom upp í byrjun september,
sem er líka erilsamur tími á hótelun-
um þar sem við þurfum að gera við-
skiptaáætlanir og annað slíkt,“ sagði
Ingibjörg.
Hún segist vonast til að geta lokkað
Íslendinga til Leeds. „Þetta er fín, lítil
verslunarborg. Þar er til að mynda
Harvey Nichols búð, sem verslunar-
sjúkir sækja í. Leeds er líka rétt hjá
Manchester og tilvalin fyrir þá sem
vilja búa aðeins fyrir utan erilsama
borg,“ sagði Ingibjörg og kvaðst vera
full tilhlökkunar.
sunna@frettabladid.is
INGIBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR: HÆTT SEM HÓTELSTJÓRI Á PARK INN
Vill lokka fólk til Leeds
INGIBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR Kveðst ekki vera áhugasöm um fótbolta, en vonast til þess að Leeds komist í úrvalsdeildina: „Það yrði gósentíð fyrir
borgina.“ FRÉTTABLAÐIÐ/BRINK
AFMÆLI
Þorsteinn Már
Baldvinsson
útgerðarmaður
er 54 ára.
Ragnhildur
Gísladóttir
söngkona er
fimmtug.
Okkar elskulegi
Haukur D. Þórðarson
fyrrum yfirlæknir Reykjalundar
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn
11. október kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hans er
bent á Oddssjóð, Reykjalundi.
María Guðmundsdóttir
Pétur Hauksson Anne Grethe Hansen
Þórður Hauksson Kristjana Fenger
Magnús Hauksson Hrafnhildur Guðmundsdóttir
Gerður Sif Hauksdóttir Karl Benediktsson
Dóra Guðrún Wild Árni Árnason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi.
Valdimar Jónsson
Skipstjóri, Vesturgötu 15a, Keflavík
Lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn
5. október. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Árnína Jónsdóttir
Jón Kristinn Valdimarsson
Margrét Lilja Valdimarsdóttir Karl Hermannson
Þórður Gunnar Valdimarsson
Erna Valdís Valdimarsdóttir
Og afabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar,
Rannveigar Eiðsdóttur
Borgarhóli, Svalbarðseyri
Karl Á. Gunnlaugsson Oktavía Jóhannesdóttir
Birna Gunnlaugsdóttir Stefán Einarsson
Hreinn Gunnlaugsson Elsa Valdimarsdóttir
Eiður Gunnlaugsson Sigríður Sigtryggsdóttir
Hildur Eiðsdóttir
Eiður Eiðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæru,
Kristínar Sveinsdóttur
frá Hríshóli, Reykhólahreppi,Vitateigi 5,
Akranesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lyflækninga-
deildar Sjúkrahúss Akraness fyrir alúðlega umönnun í
löngu veikindaferli.
Garðar Halldórsson
Gígja Garðarsdóttir Sigurður Guðjónsson
Gunnar Þór Garðarsson Lilja Ellertsdóttir
Alda Garðarsdóttir Guðmundur Viggósson
Svavar Garðarsson
Sveinn Vilberg Garðarsson Elsa Guðlaug Geirsdóttir
Ingimar Garðarsson Anna Signý Árnadóttir
Halldór Garðarsson Anna Edda Svansdóttir
og ömmubörn.