Fréttablaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 33
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Volkswagen bjalla Birgis Sörensen mun
brátt ná þeim áfanga að hafa þjónað
þremur ættliðum sömu fjölskyldunnar.
Á þeim tíma hefur hún aldrei bilað svo
neinu nemur.
Bíllinn keypti móðir Birgis, Ragneiður Guð-
mundsdóttir, í nóvember árið 1973. Þá var
hann nýr og því um 1974-árgerð að ræða, en
bílinn átti Ragneiður þar til hún féll frá 2004.
„Bíllinn er ekki keyrður nema 102 þúsund
kílómetra en mamma var hætt að keyra hann
síðustu árin. Það má segja að hann hafi verið
mjög lítið notaður síðusta áratuginn, ekki
keyrður nema 200 til 300 kílómetra á ári,“
segir Birgir.
Bíllinn var tekinn algjörlega í gegn fyrir
um átta árum og botninn, brettin og bremsu-
kerfið algjörlega endurnýjuð. Þar að auki var
hann sprautaður og í dag lítur hann út eins og
nýr. Ekkert var átt við vélina en hún er samt
sem áður í toppstandi. „Það eina sem er ekki
eins og nýtt er áklæðin á sætunum og hljóð-
kúturinn,“ segir Birgir.
„Það er hins vegar lítið um nútíma þæg-
indi í bílnum. Það er enginn hiti, ekkert útvarp
og svo er óttalegur hávaði í vélinni, enda var
þetta ódýrasta týpan af Volkswagen, svoköll-
uð Harlem-útgáfa,“ bætir Birgir við og hlær.
Til stendur að dóttir Birgis, Herborg, keyri
bílinn í fyrsta skipti í haust. „Hún hefur ekk-
ert keyrt hann og ég hef sjálfur ekki hreyft
hann í allt sumar. Það stendur samt til að hún
prófi áður en ég set hann í geymslu yfir vet-
urinn,“ segir Birgir.
Þegar Herborg sest undir stýri hefur bjall-
an þjónað þremur ættliðum og aldrei yfirgef-
ið fjölskylduna. Það sem meira er hefur hún
aldrei bilað þannig að hún kæmi ekki fjöl-
skyldumeðlimum þangað sem þeir þurftu að
komast. tryggvi@frettabladid.is
Hefur aldrei bilað
Herborg er orðin óþreyjufull eftir fyrsta rúntinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sparaksturskeppni Atlantsolíu
fer fram í dag. Keppnisbílar
bifreiðaumboða vera ræstir
klukkan 11.00 og keppnisbílar
almennings kl. 12.00 en lagt er
af stað frá sjálfsafgreiðslustöð
Atlantsolíu við Bíldshöfða 20.
Fjallahringur
Þingvalla er
samstarfsverkefni
FÍ og Þingvallaþjóðgarðs.
Gengið verður á þekkt fjöll í
þjóðgarði Þingvalla. Á morgun,
sunnudag, verður gengið á
Hrafnabjörg. Mæting er við þjón-
ustumiðstöðina á Þingvöllum kl.
11.00, þátttaka ókeypis og allir
velkomnir.
Tvær ljósmyndasýningar standa
nú yfir í Myndasal Þjóðminja-
safns Íslands. Annars vegar er
það sýningin Ókunn sjónarhorn.
Hin sýningin nefnist Myndir úr lífi
mínu. Þar eru á ferð myndir úr
safni Gunnlaugs P. Kristinssonar
(1929-2006) en hann var mjög
virkur áhugaljósmyndari á Akur-
eyri upp úr miðri síðustu öld.
ALLT HITT
[ BÍLAR TÍSKA FERÐIR
MANNLEGI ÞÁTTURINN ]
GÓÐAN DAG!
Í dag er laugardagurinn
7. október, 280. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 7.53 13.16 18.36
Akureyri 7.41 13.00 18.18
ÞRIÐJA SKILN-
INGARVITIÐ
Gott ilmvatn getur
sent okkur á vit
minninganna.
TÍSKA 8
GLÆSILEGUR
LÍFSSTÍLSBÍLL
Reynsluakstur
GS300
BÍLAR 2