Fréttablaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 54
■■■■ { heilsublaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■10
Hjólastígarnir frá Reykjalundi til
Reykjavíkur mælast rúmir þrettán
kílómetrar, sem þykir talsvert mikið
fyrir tíu ára gamlan dreng. Hilm-
ir Hrafn, sem hjólaði af stað einn
fallegan morgun með afa sínum, kveið
örlítið fyrir að leiðin yrði erfið, en blés
ekki úr nös þegar á leiðarenda kom.
Ferðlagið reyndist heilmikið ævintýri,
eins og sjá má á þessum myndum.
Hjólað innan um
fagra náttúru og
listaverk
Hilmir Hrafn Hilmarsson, tíu ára, fór á dögunum í lang-
an hjólatúr með afa sínum Gunnari V. Andréssyni ljós-
myndara, sem myndaði ferðalagið. Leiðin lá frá Reykja-
lundi til Reykjavíkur.
Hilmar Hrafn hjólaði fyrst meðfram Varmá í allri þeirri gróðurdýrð sem umlykur hana. Þar eru göngustígar sem gengnir eru alla daga ársins,
nema tvo, af vistmönnum Reykjalundar.
Margt er að skoða á leiðinni og Hilmar Hrafn heilsaði upp á hrossin sem voru á beit í Álafosskvosinni.
Hjólastígurinn liggur niður að sjó, en sérstaklega fallegt er að hjóla stíginn um þessar
mundir þegar haustlitirnir eru upp á sitt besta. Hilmir í fylgd ömmu.
Tveir golfvellir eru á leiðinni. Annar golfvöllurinn er í Mosfellsbæ og hinn við Korpúlfsstaði.
Vellirnir fara ágætlega saman við hjólastígana.
Í undirgöngum í Mosfellsbæ hafa ungir listamenn fengið að spreyta sig með úðabrúsann.Listaverk eru víða á leiðinni en þetta verk
eftir Hallstein Sigurðsson stendur hátt við
sjóinn í Grafarvoginum.
Veitingar voru vel þegnar í Olís-sjoppuni í
Grafarvoginum. Pylsa og kók rann ljúflega
niður.
Leiðin liggur um Bryggjuhverfið í Grafar-
voginum.
Leiðin liggur yfir tvö vatnsföll, annars vegar
yfir Korpu og hinsvegar yfir Grafarvog, en
þar er hjólastígurinn undir aðalgötunni.
Við Elliðaárnar kvíslast leiðin, um Sund eða Suðurlandsbraut eða alla leið yfir að Fossvogs-
dalnum.
7
1
10
3
4
2
6 5
8 9