Fréttablaðið - 07.10.2006, Qupperneq 58
14
„Ég er í bootcamp-heræfingum
þrisvar í viku hjá Átaki hér á Akur-
eyri, hleyp tvisvar í viku, fer í sund
og stunda fótbolta,“ segir Ragnar
Sverrisson kaupmaður á Akureyri.
„Mér finnst andleg og líkamleg
heilsa og vellíðan skipta miklu máli.
Þó að maður bölvi því stundum að
vakna klukkan sex á morgnana til
að fara á æfingar líður manni svo
vel þegar maður er búinn. Þá hef
ég líka mjög gaman af því að hitta
fólk og það gerir maður mikið í
gegnum heilsurækt.“
Ragnar er einn af upphafsmönn-
um Glerárdalsgöngunnar og segir
hana hafa byrjað vegna áhuga síns
og félaga sinna á að markaðssetja
Eyjafjarðarsvæðið fyrir göngufólk.
„Við gerðum okkur grein fyrir
því að Glerárdalurinn er með
einhver mestu og flottustu fjöll
á Íslandi og okkur langaði til að
koma fólki á sporið með að labba
á þau. Glerárdalsgangan tekur um
einn sólarhring og er labbað á 24
fjöll, þar af tíu fjöll sem eru yfir
1.400 metra há. Hópnum er skipt
niður eftir styrkleika og þeir sem
eru fljótastir eru nokkrum tímum
fljótari að klára gönguna,” segir
Ragnar.
„Fólk sem kemur í þessa göngu
verður að vera í góðu formi og
vant að ganga á fjöll. Síðan erum
við einnig með gönguklúbb sem
hefur skipulagt reglulegar styttri
gönguferðir í Glerárdal og þær
henta þeim sem eru ekki komnir
eins langt. Það er töluverður hópur
sem hefur mætt í þær en við höfum
farið aðra hverja helgi.“
Fegurstu fjöllin
í Glerárdalnum
Ragnar Sverrisson kaupmaður á Akureyri hefur ásamt
fleirum skipulagt vinsælar gönguferðir um Glerárdal við
Akureyri auk þess að stunda ýmisskonar æfingar.
Ragnar segir að þó að stundum geti verið erfitt að vakna eldsnemma á morgnana veiti það honum bæði líkamlega og andlega vellíðan.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÖRLYGUR HNEFILL
Aðeins þú getur mótað líkama þinn, en Special K
stendur með þér alla leið við að koma þér í
framtíðarform. Það er nefnilega aldrei of seint að
taka upp nýja og góða siði.
Settu þér raunhæf markmið og farðu rólega af
stað, til dæmis með því að stunda göngu, skokk
eða sund. Það er góður og heilbrigður siður að
borða reglulega skál af Special K, sem er troðfullt
af vítamínum og trefjum en veitir þér jafnframt
orku til að hreyfa þig og standast eril dagsins.
Special K – með þér í heilsuátaki til framtíðar.
Taktu upp nýja siði
heilsunnar vegna!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
8
4
5
7
Útrás
íslenskra
afurða
Á Svalbarðsströnd við Eyja-
fjörð er fyrirtækið Urtasmiðjan,
sem framleiðir húðvörur úr
íslenskum heilsujurtum.
„Hér á Eyjafjarðarsvæðinu
og í Þingeyjarsýslunum eru
jurtirnar kröftugar og orku-
miklar þar sem þær vaxa villt-
ar í sínu náttúrulega og hreina
norðlenska umhverfi,“ segir
Gígja Kjartansdóttir, eigandi
Urtasmiðjunnar.
„Við framleiður hreinar og
náttúrulegar húðvörur án allra
kemískra aukaefna. Þess vegna
framleiðum við sjálf öll okkar
krem og áburði frá grunni þar
sem við notum náttúrulegt og
lífrænt hráefni, ásamt okkar
íslensku villtu heilsujurtum
eða lífrænt ræktuðu jurtum.“
Rotvarnarefnið og þráavörn-
in í framleiðslunni er unnin úr
jurtum og engin ilm-eða litar-
efni eru notuð önnur en þau
sem eru í jurtunum sjálfum.
Allar vörurnar Urtasmiðj-
unar eru seldar undir vöru-
merkinu SÓLA en skipta má
framleiðslunni í tvær vörulín-
ur, heilsuvörur og snyrtivörur.
„Heilsuvörulínan er smyrsl,
áburðir og olíur. Má þar nefna
græðismyrslið góða sem var
fyrsta vörutegundin sem ég
þróaði og hefur það fyrir löngu
sannað sig sem frábær græði-
áburður, meðal annars hefur
það grætt slæm sár og bruna
og hjálpað fólki með exem og
psoriasis.“
Urtasmiðjan er að hefja
útflutning á framleiðslunni
til Bandaríkjana, Bretlands og
Danmerkur. „Fólk sækist eftir
hreinum afurðum okkar og
vonandi berum við Íslendingar
gæfu til þess í framtíðinni að
halda þessari góðu ímynd.“
Vefsíða: www.urtasmidjan.is
■■■■ { heilsublaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■