Fréttablaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 94
7. október 2006 LAUGARDAGUR54
utlit@frettabladid.is
GRÁTT Pils sem þrengist að neðan í
svokölluðu túlípanasniði frá Kúltúr.
Konulíkaminn er fallegur í öllum sínum myndum og því ekki skrítið að hann er eitt helsta viðfangefni myndlistarmanna og
hönnuða. Það er mikið í tísku núna að notast við
uppblásin snið sem ýkja hinar kvenlegu línur. Þessi
snið eru flókin og falleg og hafa verið í undanhaldi
síðustu ár þar sem þröngar buxur og bolir hafa
verið vinsælir. En með uppgangi tíunda áratugar-
ins eru þessi snið að koma aftur með blöðrupilsum
og kjólum. Herðapúðar, rykkingar og hreyfingar í
efnum eru einnig fylgifiskar þessarar tegundar af
tísku.
Það sem einkennir þessi snið er að þau eru oft-
ast ofurvíð („oversized“) að ofan en þrengjast svo
niður á við og ef skoðað er
vel og vandlega úrval
fatabúðanna hér á
landi kennir ýmissa
grasa sem vel má
tengja við þennan
hluta tískunnar.
alfrun@frettabladid.
is
Uppblásin tíska
UPPBLÁSNAR KONUR Þessar
ungu dömur hafa ekki
farið varhluta af því að
blöðrusniðin eru að
komast aftur í tísku.
HLÝRAR Fínn toppur frá
júniform.
KARL LAGER-
FELDT Svartur
kjóll með
síðum ermum
og blöðrupilsi
að neðan frá
þessum vinsæla
hönnuði.
HATTUR Flottur
túrban sem minnir á
blöðru, frá Kúltúr.
KÁPA Svört kápa sem er víð að
ofan og þrengist niður frá Zöru.
GRÆNT Pils frá All Saints.
RÚLLUKRAGA
Hentugur vetr-
arkjóll frá Zöru
með blöðrupilsi.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA
GYLLT Pils frá Zöru.
BLÚSSA Gegnsæ
blússa með ýktum
púffermum frá All
Saints.
HLÝRABOLUR Ljós-
bleikur hlýrabolur
með blöðrusniði að
neðan og fallegum
hreyfingum frá All
Saints.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
> Mælum með
...pelsum. Hvort
sem þeir
eru gervi eða
ekta þá er kom-
inn tími til að
taka þá fram á
ný þar sem kulda-
köst vetrarins eru í
nánd og pelsar eru
bæði hlýir og fallegir.
MÓÐUR VIKUNNAR
Álfrún fer yfir málin
Spáir þú mikið í tískuna? Ég spái
ekki svo mikið í hana fyrir sjálfan
mig. Ég held að ég hafi meiri áhuga
á því hvernig aðrir klæða sig.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum
þínum? Ég vildi að ég gæti sagt að
ég væri klassískur í klæðavali en
það væri lygi því að ég vel þægindi
fram yfir flottheit. Þoli ekki jakka-
föt.
Uppáhaldshönnuðir eða fata-
merki? Mér finnst Dsquared mjög
flott merki því í þeim fötum virðist
ég flottari en ég er. Þó að föt séu
dýr þá er auðveldara að kaupa sér
fatnað en að fara í ræktina.
Flottustu litirnir? Grænn og svo
auðvitað er svartur konungur lit-
anna.
Hverju ertu veikastur fyrir? Erum
við ekki öll að leita að hinum full-
komnu gallabuxum? Ég er mjög
veikur fyrir gallabuxum enda frá
Bandaríkjunum.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast?
Flott nærföt frá American Apparel.
Hvað finnst þér flottast í tísk-
unni núna? Mér finnst gaman að
sjá að núna höfum við karlmenn
meiri möguleika á að klæða okkur
flott, við þurfum ekki að vera allir
eins klæddir til að vera í tísku.
Hvað ætlarðu að kaupa þér fyrir
veturinn? Ég er ekki alveg búinn
að ákveða mig en ég mun mjög
líklega kaupa mér eitthvað mjög
hlýtt.
Uppáhaldsverslun? Nýja búðin á
Laugaveginum sem heitir 3 hæðir
er mjög flott þótt að ég hafi nú
ekki efni á að kaupa mér neitt þar í
nánustu framtíð en ég get látið mig
dreyma.
Hvað eyðir þú miklum peningum
í föt á mánuði? Þessa stundina
hef ég ekki verið að eyða neinu í
föt.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið
án? Adidas-íþróttaskónna mínum.
Uppáhaldsflík? Góður vinur minn
gaf mér einu sinni peysur úr kasm-
írull sem ég get ekki hætt að nota.
Þær eru æðislegar.
Hvert myndir þú fara í verslunar-
ferð? Barcelona. Tískuleg borg með
fullt af alls kyns búðum og flottum
skemmtistöðum til að nota fatnað-
inn. Það er uppáhaldsborg-
in mín fyrir utan Reykjavík.
Spurðu mig aftur þegar ég
hef ferðast til Asíu.
Ljótasta flík sem þú
hefur keypt þér? Ég
bjó í Þýskalandi á klúbb-
atímabilinu á árunum
1993-97. Keypti mér þar
gervi Gaultier-bol, þröng-
an og gegnsæjan.
Hræðilegur og
til allrar ham-
ingju verð ég
of gamall til
að klæðast
þessu ef
þessi tíska
kemur aftur.
SMEKKURINN CAMERON CORBETT DANSARI MEÐ ÍSLENSKA DANSFLOKKNUM
Velur þægindi fram yfir flottheit
Ég hef verið grasekkja alla þessu viku þar sem karlmaðurinn á heimil-
inu ákvað að bregða sér út fyrir landsteinana á vit ævintýranna. Ég var
búin að kvíða ögn fyrir þessu tímabili þar sem ég hef aldrei búið ein en
fékk góðar ráðleggingar frá konum á öllum aldri sem sögðu mér að
þetta ætti ég að nýta mér vel og sinna öllum þeim stelpumálum sem
hafa setið á hakanum. Á hakanum? hugsaði ég og þóttist nú ekki hafa
látið neitt sitja á hakanum vegna þess að ég væri í sambúð með karl-
manni. En annað kom nú í ljós.
Frá því að ég flutti að heiman hef ég búið í hálfgerðri kommúnu með
fjórum stúlkum þegar mest var. Þá var öldin önnur og flest virk kvöld
fóru í slúðurmakk og naglalökkun. Ekki í sjónvarpsgláp, sófaveru, til-
tekt eða heimsóknir til vinafólks eins og parathafnir virðast ganga út
á. Þetta fattaði ég samt ekki fyrr en karlmaður á heimilinu yfirgaf
svæðið og ég gat tekið aftur upp fyrri iðju. Stelpulegar athafnir fela
einnig í sér löng böð og svo að bera á sig alls kyns krem og ilm.
Það er vera „einn“ heima hefur einnig innifalið mörg símtöl frá
áhyggjufullum ættingjum sem halda að ég geti alls
ekki lifað af svona ein á báti og keppast við að
bjóða mér í mat og afþreyingu. Fólk heldur að ég
muni leggjast í þunglyndi ef ekki verður haft ofan
af fyrir mér þangað til ástmaðurinn snýr aftur til
síns heima. Þægilegt og þakka ég kærlega fyrir
mig. Þetta fylgir því víst að vera í sambúð. Maður
verður sjálfhverfari og fólk heldur að maður geti
alls ekki lifað án hins sem er auðvitað uppskriftin
að hinni sönnu ást.
Þessi vika er búin að vera skemmtileg og fróðleg
og jú, nauðsynlegt fyrir hverja konu í sambúð. Fá
smjörþefinn af einhleypingslífinu á ný.
Nú sit ég hér með lakkaðar neglur í bak og fyrir,
ilma eins og engill og húðin silkimjúk eftir langar
baðsetur og bíð eftir að hinn helmingurinn komi heim
til að sjá öll herlegheitin, því til þess er leikurinn
gerður.
Ekkja í grænu grasi
V
in
ni
ng
ar
v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
S
m
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
SENDU SMS JA CBF
Á NÚMERIÐ 1900!
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ
MIÐA FYRIR TVO.
VINNINGAR ERU B
ÍÓMIÐAR,
DVD MYNDIR OG M
ARGT FLEIRA!