Fréttablaðið - 07.10.2006, Qupperneq 96
Írski trúbadorinn Damien Rice,
sem hefur nokkrum sinnum haldið
tónleika hér á landi, gefur út plöt-
una 9 í næsta mánuði.
Fyrsta plata Rice, O, kom út
fyrir þremur árum og sló ræki-
lega í gegn með lögum á borð við
Cannonball og Blower´s Daughter.
Ári síðar gaf Rice síðan út plötuna
B-sides sem hafði að geyma sjö
lög sem ekki höfðu verið gefin út í
Bandaríkunum áður. Fékk sú plata
einnig mjög góðar viðtökur.
Gefur út 9
DAMIEN RICE Írski trúbadorinn gefur út
nýja plötu í nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Hljómsveitirnar Alice Texas og
Piker Ryan frá New York halda
tónleika í Stúdentakjallaranum í
kvöld. Íslenska sveitin Andrúm
kemur einnig fram.
Sveitirnar eru á tónleikaferða-
lagi um Evrópu sem ber nafnið
New York Noir og ákváðu að koma
við hér á landi.
Alice Texas sendi í fyrra frá
sér plötuna Sad Days. Kom hún út
í Evrópu hjá franska útgáfufyrir-
tækinu Fargo Records og fékk
mjög góðar viðtökur. Piker Ryan
hefur margoft verið líkt við fræga
listamenn á borð við Tom Waits og
Nick Cave & the Bad Seeds. Söngv-
ari sveitarinnar, sem er búsettur í
Ósló, hefur þrisvar spilað hér á
landi.
Tónleikarnir hefjast klukkan
23.00 og kostar 1000 krónur inn.
Alice Texas og Piker
Ryan með tónleika
ALICE TEXAS New York-sveitin spilar í
Stúdentakjallaranum ásamt Piker Ryan
og Andrúmi.
„Við höfum verið að heyra sögur
um það úti í bæ að hljómsveitin sé
að hætta en það er alls ekki rétt.
Hið rétta er að Tobbi hljóm-
borðsleikari hefur ákveðið að
hætta í bandinu og eftir tónleik-
ana á Airwaves höfum við ákveðið
að taka okkur pásu,“ segir Bjarni
Lárus Hall, söngvari hljómsveit-
arinnar Jeff Who?
Jeff Who? hefur verið ein vin-
sælasta hljómsveit landsins á
þessu ári, ekki síst vegna vinsælda
lagsins Barfly sem landsmenn
allir þekkja nú úr auglýsingum
Fréttablaðsins og spilun í útvarpi.
Kjaftasögur þess efnis að hljóm-
sveitin væri að hætta hafa því
verið á margra vörum og liðsmenn
Jeff Who? telja nauðsynlegt að
leiðrétta misskilninginn.
„Tónleikarnir á Airwaves verða
þeir síðustu í bili og svo förum við
í það að finna okkur nýjan mann,“
segir Bjarni. Hann segir að ástæð-
an fyrir brotthvarfi hljóm-
borðsleikarans sé sú að hann vilji
snúa sér að öðrum hlutum. Fyrir-
hugað sé að Tobbi fari í nám innan
tíðar og því sé engum greiði gerð-
ur með því að hann verði með í að
búa til efni á nýja plötu sem hann
tekur svo ekki þátt í að gera. „Við
erum ekki búnir að finna okkur
nýjan hljómborðsleikara enda
verður hann vandfundinn. Okkur
þykir það ekki síður mikilvægt að
hann sé skemmtilegur strákur,
enda erum við allir góðir vinir og
viljum hafa það þannig áfram.“
Bjarni segir að Jeff Who? hafi
verið svo dugleg við spilamennsku
að lítill tími hafi gefist til að semja
nýtt efni. Það sé því viss tilhlökk-
un að geta einbeitt sér að því. „Það
er frábært enda finnst okkur
skemmtilegast að hittast og semja
tónlist.“ - hdm
Jeff Who? tekur sér pásu
JEFF WHO? Þessi vinsæla hljómsveit hefur ákveðið að taka sér hlé frá spilamennsku.
Frá vinstri eru þeir Þorri, Ásgeir, Elli, Baddi og Tobbi, sem hefur ákveðið að segja
skilið við sveitina. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Tjarnarbíó
14:00 | Ferskt loft
16:00 | Reiði guðanna
18:00 | Lím
20:00 | Lífsins harmljóð
22:00 | Leiðin til Guantanamo
Iðnó
14:00 | Þegar börn leika sér...
16:00 | Vertu eðlilegur
18:00 | Daganna á milli
20:00 | Florence afhjúpuð
22:00 | Kettirnir hans Mirikitani
Reykjavík
International
Film
Festival
Sept 28
Okt 8
2006
Vertu eðlilegur Iðnó 16:00
filmfest.is
Act Normal Sagan af enska búddamunknum sem fluttist til Íslands, kastaði kuflinum, giftist, skildi, og varð munkur á ný.
Háskólabíó
15:45 | Hálft tungl
16:00 | Keane
18:00 | Lokamynd:
Forstjóri heila klabbsins
18:00 | Claire Dolan
18:20 | Gasolin
20:00 | Frosin borg
20:00 | Krákur
20:00 | Skjaldbökur geta flogið
20:20 | Draumurinn
22:00 | Lífið í lykkjum
22:00 | Ekkert
22:30 | Paradís núna
!óíbí.rk054
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 3 og 6 B.I. 7 ÁRA
TEXAS CHAINSAW MASSACRE kl. 8 og 10 B.I. 18 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 3, 5.40, 8 og 10.20
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 3, 6, 8 og 10
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 8 og 10.15
VOLVER kl. 3 og 5.50
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 12, 2, 4 og 6 B.I. 7 ÁRA
MONSTER HOUSE ENSKT TAL kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 3, 5.30, 8 og 10.25
SÝND Í LÚXUS kl. 3, 5.30, 8 og 10.25
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 12, 6, 8 og 10
CLERKS 2 kl. 10.15
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 8
GRETTIR 2 ÍSL TAL kl. 12, 2 og 4
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 2, 4 og 6 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 8 og 10
CRANK kl. 10
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 6 og 8
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 4
GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 2
EMPIRE2 vikur á toppnum í USA!
Topp5.is
M.M.J kvikmyndir.com
EMPIRE
V.J.V. Topp5.is
DV
L.I.B. Topp5.is
ÆÐISLEGA SPENNANDI
ÆVINTÝRAMYND SÝND MEÐ
ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
VARÚÐ! ALLS EKKI
FYRIR VIÐKVÆMA
“Ein fyndnasta
gamanmynd ársins”
HJ - MBL