Fréttablaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 98
58 7. október 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
> Jón bóndi er heimsmeistari öldunga
Jón Gunnarsson, oftast
nefndur Jón bóndi, keppti
á fimmtudaginn á heims-
meistaramótinu í kraftlyft-
ingum en mótið fór fram
í Texas í Bandaríkjunum.
Jón bóndi gerði sér lítið
fyrir og varði heimsmeist-
aratitil sinn í öldungaflokki
en Jón er 47 ára gamall og
keppti í -90 kg. flokki. Jón
lyfti 190 kg í bekkpressu, 302,5 kg í réttstöðulyftu og 310 kg
í hnébeygju. Samtals lyfti Jón því 802,5 kg, 2,5 kg meira en
næsti maður. Jón er því tvöfaldur heimsmeistari sem er frá-
bær árangur og greinilegt að hann er alls ekki af baki dottinn
þrátt fyrir að nálgast sextugsaldurinn.
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson komst í gær í gegnum
niðurskurðinn á móti í Toulouse í Frakklandi en mótið er hluti af
Áskorendamótaröð Evrópu. Verður þetta síðasta mótið sem Birgir
Leifur tekur þátt í í sumar en aðeins 45 efstu menn á peningalista
mótaraðarinnar komast inn á síðasta mótið.
Sem stendur er Birgir Leifur í 87. sæti en efstu 90 menn tryggja sér
þátttökurétt á öðru stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina.
„Þetta reddaðist í dag,“ sagði Birgir Leifur við Fréttablaðið. „Það
var mjög mikilvægt að komast í niðurskurðinn og halda mér innan
þeirra marka sem tryggja mig inn á annað stigið.“
Hann lék á pari vallarins í gær og er á tveimur höggum undir pari
samtals. Hann er í 46.-59. sæti sem ætti að duga honum.
„Ég náði í 85. sæti í fyrra og markmiðið í ár var að komast í hóp 80
efstu. Eigum við ekki að segja að það markmið sé enn í gildi.“
Hann segir að sitt annað markmið hafi verið að komast í hóp 45
efstu en þeir komast beint inn á þriðja stig úrtökumótsins. Ef Birgir
Leifur nær markmiði sínu keppir hann á móti í byrjun nóvember
og þarf að vera meðal 30 efstu til að komast á lokamótið, þriðja
og lokastig úrtökumótsins. Þar keppa 170 kylfingar um 30 laus
sæti á mótaröðinni og hefur
Birgir Leifur verið grátlega
nálægt því að
komast þangað
undanfarin ár.
„Þrisvar hef ég verið einu höggi frá því
og nokkrum sinnum 2-3 höggum. Ég
hef alltaf nema einu sinni keppt á þessu
móti síðan 1997 – maður er orðinn hund-
gamall í þessu,“ sagði hann og hló.
Birgir Leifur er ánægður með sumarið en
honum finnst að árangurinn endurspegli
spilamennskuna hans. „Sumarið hefur verið
gott yfir heildina en það kemur alltaf einn
og einn hringur sem skemmir fyrir. Ég finn
fyrir vonbrigðum – ég var ekki réttur maður
á réttum stað og það vantaði lítið upp á að
klára dæmið endanlega.“
BIRGIR LEIFUR HAFÞÓRSSON: KOMST Í GEGNUM NIÐURSKURÐINN Á LOKAMÓTI SÍNU Á MÓTARÖÐINNI
Vona að minn tími sé nú kominn
FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í
knattspyrnu mætir Lettum á
Skonto-vellinum í kvöld en leikur-
inn hefst klukkan 18 að íslenskum
tíma en er mjög seint að staðar-
tíma eða klukkan 21. Það var ágæt
stemning í íslenska hópnum í gær
þegar íslenska liðið hélt blaða-
mannafund á hóteli sínu í Ríga en
hann sátu Eyjólfur Sverrisson
landsliðsþjálfari, varnarmaðurinn
Ívar Ingimarsson og svo landsliðs-
fyrirliðinn sjálfur Eiður Smári
Guðjohnsen.
„Undirbúningurinn hefur geng-
ið vel og það er gott ástand á lið-
inu,“ sagði Eyjólfur Sverrisson á
blaðamannafundinum í gær en
íslenska liðið kom til Ríga á mið-
vikudag. „Það er ekki hægt að
kvarta yfir einu né neinu og það
eru allir leikmenn liðsins heilir og
klárir í slaginn. Ívar er búinn að
vera veikur og æfði því ekki á
fimmtudeginum en hann er orðinn
heill og verður á sínum stað. Grét-
ar Rafn er búinn að vera með smá
eymsli en hefur hrist þau af sér og
er líka klár í slaginn.“
Það er ljóst að einhverjar breyt-
ingar verða gerðar á íslenska lið-
inu frá síðasta leik en framherj-
arnir Gunnar Heiðar Þorvaldsson
og Heiðar Helguson eru báðir
fjarri góðu gamni og hallast menn
helst að því að Eyjólfur muni færa
Hannes Sigurðsson af vængnum
og upp á topp í staðinn. Eyjólfur
vildi þó lítið gefa upp um hvaða
breytingar hann hygðist gera á
liðinu og hvernig hann ætlaði að
láta liðið spila.
„Ég er ekki búinn að ákveða
mig með liðið og sef aðeins á því.
Þetta verður hörkuleikur og ég á
allt eins von á því að Lettarnir
muni pressa okkur hátt en það
gekk ágætlega hjá þeim gegn
Svíum,“ sagði Eyjólfur en Lettar
voru óheppnir að tapa á heima-
velli gegn Svíum á dögunum, 0-1.
Þeir fengu fín færi en voru klauf-
ar upp við markið. „Það eru engir
sérstakir veikleikar í þessu liði.
Liðsheildin hjá Lettunum er mjög
sterk og menn vinna vel hver fyrir
annan.“
Ísland er með þrjú stig eftir tvo
fyrstu leiki sína í riðlinum en
Ísland vann góðan útisigur gegn
Norður-Írum og tapaði svo heima
fyrir Dönum. Ætlar Eyjólfur að
leggja áherslu á að halda stiginu
eða á að sækja til sigurs?
„Við erum með eitt stig í byrj-
un og við verðum að sjá hvernig
leikurinn þróast. Við ætlum samt
að halda þessu stigi. Það væri
vissulega ásættanlegt hér á þess-
um útivelli,“ sagði Eyjólfur en
leikurinn hefst eins og áður segir
klukkan 18 í kvöld og er sýndur
beint á sjónvarpstöðinni Sýn.
GLAÐBEITTIR Þrímenningarnir sem sátu fyrir svörum í Riga í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/BUD
Ætlum að halda stiginu
Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari segist vera sáttur við að fá eitt stig úr rimm-
unni við Letta í Ríga í kvöld. Allir leikmenn íslenska liðsins eru klárir í slaginn.
LETTLAND - ÍSLAND
HENRY BIRGIR GUNNARSSON
skrifar frá Ríga í Lettlandi.
henry@frettabladid.is
FÓTBOLTI Landsliðsfyrirliðinn Eiður
Smári Guðjohnsen vakti eins og
venjulega mikla athygli fjölmiðla
hér í Ríga og flestum spurningum
lettneskra blaðamanna var beint til
Eiðs Smára og virtust blaðamenn-
irnir hafa meiri áhuga á því að
spyrja hann um lífið í Barcelona en
landsleikinn gegn Lettum.
Eiður sagði eftir tapið gegn
Dönum að leikmenn liðsins hefðu
kannski verið fullbrattir og átt að
liggja aftar.
„Það er vissulega auðvelt að
vera vitur eftir á. Það sem gerðist
var það sem maður óttaðist mest.
Jákvæðnin var mikil eftir Íraleik-
inn og við fengum strax skell í
upphafi sem var erfitt að rífa sig
upp úr. Það er búið spil og við
lítum á þennan leik sem gott tæki-
færi til að rétta úr kútnum. Við
verðum fyrst og fremst að halda
hreinu í þessum leik. Ef við gerum
það er alltaf möguleiki því við
erum hættulegir í skyndisóknum
og höfum verið að skapa okkur
færi í hverjum leik,“ sagði Eiður
Smári en hann segist vera í mjög
góðu formi þessi dagana enda
gengið vel. Ætli sjálfstraustið sé
samt óvenju gott eftir frábæra
byrjun með Barcelona?
„Sjálfstraustið er yfirleitt í
ágætis standi og það hefur ekkert
breyst. Mér fannst allra augu vera
á mér í síðasta leik þar sem Eto´o
var fjarri góðu gamni og sem
betur fer gekk það allt vel,“ sagði
Eiður Smári Guðjohnsen lands-
liðsfyrirliði.
- hbg
EIÐUR SMÁRI Á hér í höggi við leikmenn danska landsliðsins á Laugardalsvelli.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen verður í fremstu víglínu:
Verðum að halda markinu hreinu
FÓTBOLTI „Ég vaknaði veikur um
nóttina og læknirinn mælti með
því að ég slappaði af uppi í rúmi
og það virðist hafa virkað því ég
er fínn í dag,“ sagði varnarmað-
urinn Ívar Ingimarsson sem
verður í lykilhlutverki í vörninni
en Ívar mætir til leiks með
sjálfstraustið í botni eftir að hafa
byrjað tímabilið með Reading í
ensku úrvalsdeildinni frábær-
lega.
„Það hefur gengið ljómandi vel
hjá okkur og vonandi heldur þetta
góða gengi áfram. Ég get ekki
neitað því að ég er í góðu standi.
Það verður nóg að gera hjá mér í
vörninni í dag enda eru Lettarnir
með spræka sóknarmenn sem
sýndu góð tilþrif gegn Svíunum,“
sagði Ívar. - hbg
Ívar Ingimarsson:
Verður nóg að
gera í vörninni
ÍVAR Klappar áhorfendum lof í lófa eftir
leikinn gegn Dönum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Lettar komu nokkuð á
óvart gegn Svíum á heimavelli á
dögunum með frískum sóknar-
leik. Maðurinn á bak við flestar
sóknarlotur Lettanna var hinn
spræki Andrejs Rubins sem lék
með Crystal Palace á sínum tíma.
Hann verður fjarri góðu gamni í
dag og veikir það Lettana
talsvert.
Framherjinn öflugi Maris
Verpakovskis hefur heldur ekki
verið alveg heill heilsu þessa
dagana en það er samt búist við
því að hann spili.
Lettarnir hafa verið að spila 4-
4-2 og á því verður engin breyting
í kvöld. Stór og stæðilegur
framherji verður í framlínunni
með Verpakovskis og svo eru
nokkrar líkur á að Marian Pahars
fái tækifæri í byrjunarliðinu. - hbg
Lettneska landsliðið:
Rubins meidd-
ur og ekki með
GEGN SVÍUM Marians Pahars og Kim
Källstrom í leik Letta og Svía.
NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Franski markvörðurinn
Fabien Barthez hefur ákveðið að
leggja hanskana á hilluna.
Ákvörðunina segist hann taka af
fjölskylduástæðum en Barthez
hefur verið samningslaus frá því
að samningur hans við Marseille
rann út í vor.
„Ég er hættur að spila með
franska landsliðinu og er hættur í
fótbolta. Ég mun enn hafa gaman
af lífinu án fótboltans.“ - dsd
Fabien Barthez:
Leggur hansk-
ana á hilluna
HÆTTUR Í FÓTBOLTA Barthez lék um
tíma með Manchester United.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Varnarmennirnir Sverrir
Garðarsson og Tommy Nielsen
hafa framlengt samninga sína við
Íslandsmeistara FH. Sverrir
skrifaði undir þriggja ára
samning og kemur það mörgum á
óvart en hann hafði lent upp á
kant við Ólaf Jóhannesson,
þjálfara liðsins, í sumar.
Tommy Nielsen hefur verið
lykilmaður FH í vörninni
undanfarin ár og skrifaði undir
nýjan tveggja ára samning. - esá
Leikmannamál FH:
Tommy og
Sverrir áfram
FÓTBOLTI U-19 ára landslið pilta í
knattspyrnu lagði í gær lið
Póllands í undankeppni EM en
keppt er í riðli Íslands í Svíþjóð.
Leiknum lauk með 2-0 sigri og
skoruðu Rúrik Gíslason og Marko
Pavlov mörk Íslands.
Í hinum leik riðilsins í gær
vann Svíþjóð Færeyjar, 4-1, en
tvö lið komast upp úr riðlinum. Á
morgun mæta íslensku piltarnir
þeim sænsku. - esá
U-19 lið karla:
Sigur á Póllandi
FÓTBOLTI Heimir Hallgrímsson
verður áfram þjálfari ÍBV og
skrifaði í gær undir nýjan þriggja
ára samning. Heimir tók við
liðinu um mitt sumar af Guðlaugi
Baldurssyni en tókst ekki að
afstýra falli úr Landsbankadeild-
inni í haust.
Þá er einnig talið afar líklegt
að Milan Stefán Jankovic taki við
þjálfun Grindavíkur en hann var
aðstoðarmaður Sigurðar Jónsson-
ar í sumar og hefur lengi þjálfað í
Grindavík. - esá
Þjálfaramál í 1. deildinni:
Heimir áfram
með ÍBV