Fréttablaðið - 25.10.2006, Blaðsíða 10
25. október 2006 MIÐVIKUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Áfallahjálparhóp-
ur sem fyrirhugað er að setja á
laggirnar hjá embætti Ríkislög-
reglustjóra á að gegna því hlut-
verki að aðstoða lögreglumenn
vegna streitu sem þeir verða fyrir
í starfi, að sögn Ólafs Arnar
Bragasonar sálfræðings hjá emb-
ættinu. Aðstoðinni er meðal ann-
ars ætlað að koma í veg fyrir svo-
kallaða kulnun í starfi, sem getur
leitt til andlegrar örmögnunar hjá
starfsmönnum, sem fyrir henni
verða.
Ólafur Örn starfar að undir-
búningi kerfisbundinnar áfalla-
hjálpar fyrir lögreglumenn, ásamt
fulltrúum frá Lögregluskóla rík-
isins og Landssambandi lögreglu-
manna. Starfið er hafið að tilhlut-
an dómsmálaráðuneytisins.
Fréttablaðið hefur að undan-
förnu greint frá ýmsum sláandi
staðreyndum um þessa starfs-
stétt, svo sem lágum lífaldri,
nokkuð tíðum bótaskyldum slys-
um í starfi og tíðni sjálfsvíga.
„Afleiðingar kulnunar í starfi
geta verið margvíslegar,“ segir
Ólafur Örn. „Þær geta komið
fram í fjölgun veikindadaga hjá
starfsmanni, minnkandi þjón-
ustulund og hverfandi ánægju
við að veita þjónustuna til borg-
aranna. Þær geta komið fram í
því að afköst í vinnu verða lítil
sem engin og snemmbúnum
starfslokum.“
Ólafur Örn bendir á að upplifi
fólk lítinn árangur af starfi sínu sé
hættara við kulnun í starfi. Lög-
reglumenn sjái mikið í starfi sínu
sömu andlitin aftur og aftur. Þeir
hitti fólk oft fyrir í þess versta
ástandi. Þegar menn fari í streitu-
vekjandi atburði og nái ekki að
losa streituna, safnist hún smátt
og smátt upp og geti valdið tilfinn-
ingalegri örmögnun. Ýmsir við-
bragðshópar séu útsettir fyrir
þessari upplifun í starfi, svo sem
slökkvilið, björgunarsveitir, sjúkra-
flutningamenn og aðrir sem komi
að á vettvangi og standi augliti til
auglitis við hina ýmsu þolendur.
„Úr þessu viljum við bæta
með því að auka aðgengi að sér-
fræðingum og koma á fót við-
bragðsteymi áfalla,“ segir Ólafur
Örn. Hann segir enn fremur að
forvarnir séu grundvallaratriði í
öllu þessu ferli. Þar megi nefna
hreyfingu, mataræði og fræðslu.
Fræðsluþátturinn sé á hendi
Lögregluskólans. Að sögn Ólafs
Arnar stefnir starfshópur Ríkis-
lögreglustjóra á að skila tillögum
sínum um fyrirkomulag áfalla-
hjálparinnar til ráðuneytisins á
þessu ári. jss@frettabladid.is
Á VETTVANGI Ýmsir viðbragðshópar eru útsettir fyrir tilfinningalegri örmögnun í starfi
svo sem slökkvilið, björgunarsveitir, sjúkraflutningamenn og aðrir sem koma að
atburðum á vettvangi og standa augliti til auglitis við hina ýmsu þolendur.
Lögreglumenn
fá áfallahjálp
Undirbúningur er hafinn að því að setja á fót hjá
embætti Ríkislögreglustjóra áfallateymi sérfræð-
inga. Markmiðið er að aðstoða lögreglumenn í
kjölfar erfiðra verkefna.Dögg Pálsdóttir
4.í sætiðwww.dogg.isPrófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október 2006
Ég vil efla stuðning
við foreldra í
foreldrahlutverki
þeirra, m.a. á grund-
velli sameiginlegrar
forsjár.
Kynntu þér
áherslumál Daggar á
www.dogg.is
KOSNINGASKRIFSTOFA
Laugavegi 170, 2. hæð
opnunartími virka daga
kl. 16-22 og um
helgar frá kl. 12-18
dogg@dogg.is
sími 517-8388
LÁTUM
VERKIN TALA
�����������������������
�����
��������������������������������������������������������������
����������������������������������������������������������������������
�������������������������������������
��������������������������
����������������
��������������������
�����������������������������������������������������������������������
�����������������������������������������������
�������������
VIÐSKIPTI Stjórn SPRON hefur
boðað til stofnfjáreigendafundar á
næstunni þar sem lagt verður til að
hún fái heimild til að tvöfalda stofn-
fé sparisjóðsins með sölu þess til
núverandi stofnfjáreigenda. Upp-
reiknað verðmæti stofnfjárins er
um tíu milljarðar króna og fer því í
20 milljarða króna verði til-
lagan samþykkt og heimildin nýtt
að fullu.
Talið er sennilegt að tillagan sé
liður í því að hlutafélagavæða
SPRON en aukningin myndi auka
hlutfall stofnfjár af heildar eigin
fé. Vonir standa til að hægt verði að
ljúka við útboðið fyrir áramót þótt
það liggi ekki fyrir hvað stefnt
verði að mikilli aukningu veiti
stofnfjáreigendur stjórn heimild.
Frá vorinu 2005 hefur stofnfé
sparisjóðsins verið meira en tólf-
faldað, en í vor var nýtt stofnfé selt
fyrir 5,5 milljarða króna.
- hh/eþa
Stefnt að meiri útgáfu stofnfjár í SPRON:
Stofnfé aukið um 10 milljarða
BRASILÍA, AP Brasilískur karlmað-
ur, sem sakaður er um að hafa
myrt 42 drengi og skorið kynfær-
in undan sumum þeirra, játaði á
mánudag að hafa banað einum 15
ára pilti.
Verið er að rétta í máli manns-
ins, sem er 41 árs gamall og starf-
aði við að gera við reiðhjól. Hann
var handtekinn eftir að lík tveggja
ungra drengja fundust grafin í
gólf kofa hans í fátækrahverfi
Sao Jose do Ribamar árið 2004.
Hann bar því við að kynferðis-
legt ofbeldi sem hann sætti sem
barn hefði orðið til þess að hann
myrti piltinn. Réttarhöldin eru
haldin á skemmtistað, þar sem
réttarsalur Sao Jose do Ribamar
er ekki nógu stór til að rúma
ástvini drengjanna, sem skipta
hundruðum. - smk
Grunaður raðmorðingi:
Játaði morð á 15 ára pilti
SPRON Stofnfé Spron
verður 20 milljarðar verði
tillagan samþykkt.