Fréttablaðið - 25.10.2006, Blaðsíða 46
MARKAÐURINN 25. OKTÓBER 2006 MIÐVIKUDAGUR16
F Y R I R TÆ K I
Verslanakeðjan Europris opnaði nýja
verslun við Dalveg í Kópavogi á laugar-
dag. Þetta er fimmta verslun Europris
sem er opnuð hér á landi og jafnframt sú
stærsta, einir 1.500 fermetrar að flatar-
máli. Verslanir Europris eru vel staðsettar
enda hver í sínu horni á höfuðborgar-
svæðinu, ein úti á Eiðisgranda, önnur á
Lynghálsi, sú þriðja í Skútuvogi og nú við
Dalveg í Kópavogi. Þá er ein á Selfossi.
Verslunin fyrir austan fjall og sú úti á
Granda eru um 1.400 fermetrar að stærð
og þær næststærstu.
Að sögn Matthíasar Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra Europris, eru um 60
fastir starfsmenn hjá Europris að ótöldu
starfsfólki sem vinni hjá fyrirtækinu með
skóla og í afleysingum. Með tilkomu nýju
verslunarinnar bætast fimm til sex fastir
starfsmenn við hópinn en tíu til fimmtán
manns í heildina þegar kvöld- og helgar-
fólk er talið með.
EUROPRIS Í NORSKUM ANDA
Matthías og fjölskylda hans hafa rekið
Europris hér á landi síðastliðin fjögur ár.
Hugmyndin er ættuð frá Noregi en þar eru
160 Europris-verslanir auk þess sem fimm
eru handan landamæranna í Svíþjóð. Þá
er fyrirhugað að opna Europrisverslun í
Finnlandi. Allar verslanirnar eru í höndum
sama aðila í Skandinavíu en Matthías og
fjölskylda fengu rekstrarleyfi hjá honum
fyrir verslanarekstur hér.
Verslanirnar á Norðurlöndunum og hér
eru svipaðar að mörgu leyti. Þær eru svip-
aðar að uppbyggingu, vöruval það sama og
hugmyndafræðin af sama meiði.
Það er einmitt hugmyndafræðin sem
aðgreinir Europris frá öðrum verslunum.
Hún felst meðal annars í því að tengja
saman gæði og lágt vöruverð fyrir alla
viðskiptavini Europris. Matthías leggur
áherslu á að versluninni hafi ávallt tek-
ist að ná fram mjög lágu verði með því
að gera sameiginleg innkaup í félagi við
Europris í Noregi. „Þegar mikið magn
er keypt inn úti í heimi er gert ráð fyrir
okkur líka,“ segir Matthías og bætir við að
lager Europris á Íslandi sé í Fredrikstadt
í Noregi og þaðan sendi fyrirtækið vörur
einu sinni í viku. „Með þessu sleppum við
í fyrsta lagi einum millilið, heildsalanum,“
segir Matthías og bendir aukinheldur á
að Europris njóti þess að fá vöruna á lágu
kostnaðarverði vegna sameiginlegra inn-
kaupa með Europris í Noregi.
Svo hagstæð eru innkaupin að Matthías
er þess fullviss að verslunin hafi átt þátt í
lækkun á vöruverði hér á landi á þeim fjór-
um árum sem eru liðin síðan fyrsta versl-
unin var opnuð. „Við höfum náð að bjóða
svo gott verð á ýmsum vörum að þessar
vörur hafa hreinlega lækkað á markaðn-
um,“ segir Matthías og bendir á að hann
hafi kannað þetta sjálfur. „Reiðhjól sem
kostuðu um 30 til 40.000 krónur fyrir
fjórum til fimm árum kosta ekki nema
um 10.000 krónur hjá okkur. Markaðurinn
hefur allur lækkað,“ segir hann og ítrekar
að Europris hafi verið leiðandi í lækkun á
vöruverði hér á landi.
STEYPUHRÆRIVÉLAR OG KEX
Þegar gengið er inn í verslun Europris
vekur vöruúrvalið gjarnan athygli en
á meðal vöruflokkanna má finna allt
frá steypuhrærivélum, reyndar af minni
gerðinni, til prjónagarns ásamt helsta
þurrmat á borð við kex og kaffi auk
hreinlætisvara, fatnaðar og reiðhjóla,
svo fátt eitt sé nefnt. Mjólkurvörur og
ferskar matvörur á borð við appelsínur
og epli, kjöt og fisk eru hins vegar ekki í
boði innan veggja Europris.
Það er einmitt vegna þess sem kúnna-
hópur Europris hagar sér öðruvísi en
þeir sem koma í verslanir Hagkaupa eða
Bónus, svo einhverjar verslanakeðjur
séu nefndar. Vöruúrval byggist á fasta-
úrvali og síðan tilboðsvörum sem koma á
tveggja vikna fresti allt árið. Þannig hafa
viðskiptavinir aðgang að föstu vöruúrv-
ali og svo frábærum tilboðum.
„Kúnninn kemur ekki daglega til
okkar, heldur vikulega eða á hálfsmán-
aðar fresti,“ segir Matthías en bætir við
að viðskiptavinir Europris séu af báðum
kynjum og á öllum aldri. Þeir leiti auk
þess ekki endilega eftir því sama og í
öðrum verslunum enda sé vöruúrvalið
mikið í Europris. „Við komum víða við
á markaðnum og keppum ekki við neina
eina verslun,“ segir Matthías og bend-
ir á að verslunin höfði jafnt til þeirra
sem fari í matvöruverslun sem bús-
áhaldaverslun og byggingavöruverslun.
Í Europris sé mikið úrval á einum stað,
að hans sögn.
ENN STÆRRI VERSLUN Á AKUREYRI
Matthías leggur mikla áherslu á að vexti
Europris sé hvergi nærri lokið. Fyrirtækið
er komið með lóð fyrir nýja verslun í
Hafnarfirði og er að leita að aðstöðu á
Akureyri. Stefnt er að því að opna báðar
verslanirnar á næsta ári „Þær verða sam-
bærilegar en verslunin á Akureyri verður
stærri en verslunin við Dalveg,“ segir
Matthías Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Europris.
VIÐSKIPTAVINIR Í NÝJU VERSLUNINNI Kúnnahópur Europris hagar sér öðruvísi en í öðrum verslunum. Fólk
kemur vikulega eða á hálfsmánaðar fresti í verslanirnar, að sögn framkvæmdastjórans.
MARKAÐURINN/ANTON
Í NÝJU VERSLUNINNI Matthías Sigurðsson, framkvæmdastjóri Europris, segir Europris ætla að opna tvær nýjar
verslanir á Akureyri og í Hafnarfirði á næsta ári. Verslunin á Akureyri verður stærri en verslunin við Dalveg.
MARKAÐURINN/ANTON
Verslanir Europris stækka með hverju ári
Einungis fjögur ár eru síðan Europris opnaði sína fyrstu verslun hér á landi við Lyngháls í Reykjavík. Fimmta og stærsta versl-
unin fram til þessa opnaði við Dalveg í Kópavogi á laugardag en fyrirhugað er að reisa stærri verslun á næsta ári. Matthías
Sigurðsson, framkvæmdastjóri Europris, var glaður í bragði þegar Jón Aðalsteinn Bergsveinsson náði tali af honum og fræddist
um hugmyndafræði Europris og næstu framtíðaráform.
EUROPRIS Í KÓPAVOGI Nýjasta verslun Europris opnaði við Dalveg í Kópavogi á laugardag. Þetta er fimmta og stærsta verslun fyrirtækisins sem á rætur að rekja til
frænda okkar í Noregi. MARKAÐURINN/ANTON