Fréttablaðið - 25.10.2006, Blaðsíða 7
MARKMIÐ MEÐ BYGGÐINNI Á MIÐSVÆÐINU ER:
• Að þar rísi lifandi og fjölbreytt byggð sem þjóni íbúum sveitarfélagsins á sem flestum
sviðum. Þar verði vettvangur öflugs mannlífs sem laði að jafnt íbúa og ferðamenn.
• Að uppbygging þar verði í sem bestu samræmi við umhverfið og þá byggð sem fyrir
er á nesinu og samræmist hugmyndum íbúa um lágreista byggð og Álftanesið sem
„sveit í borg“.
• Að miðsvæði Álftaness verði í sem bestum tengslum við aðra hluta sveitarfélagsins:
einstök íbúðahverfi, óbyggð svæði, strandlengjuna og aðkomuleiðir út á nesið.
• Að byggðin á miðsvæðinu myndi látlausa og virðulega aðkomu inn í sveitarfélagið,
þar sem sérstök áhersla er lögð á góða ásýnd gagnvart leiðinni að forsetasetrinu á
Bessastöðum.
• Að vegir og stígar innan svæðisins verði öruggir og skilvirkir fyrir alla hópa vegfar-
enda, akandi sem gangandi, með lausnum á akstursleiðum og bílastæðum er taki ríkt
tillit til umhverfisins.
• Að áætlun um skipulag svæðisins sé raunsæ og í takt við það samfélag sem
miðsvæðið á að þjóna, með nægilega sveigjanlegum lausnum sem loka ekki
á möguleika til þróunar og breytinga.
KEPPNISGÖGN
Keppnislýsing verður látin í té endurgjaldslaust frá og með 30. október 2006 á bæjar-
skrifstofu Álftaness, Bjarnastöðum, 225 Álftanesi. Einnig verður unnt að nálgast keppnis-
lýsinguna á heimasíðu Sveitarfélagsins Álftaness, www.alftanes.is frá og með sama degi
og á skrifstofu Arkitektafélags Íslands, Engjateigi 9, 2. hæð, 105 Reykjavík á milli kl. 9.00 og
13.00 virka daga.
Önnur keppnisgögn verða afhent gegn skilatryggingu á skrifstofu Arkitektafélags Íslands, á
milli kl. 9.00 og 13.00 virka daga, frá og með 30. október 2006.
SKIL OG ÚRSLIT
Gert er ráð fyrir að tillögum verði skilað til trúnaðarmanns á skrifstofu Arkitektafélags
Íslands eigi síðar en þriðjudaginn 6. febrúar 2007. Áætlað er að dómnefnd ljúki störfum í
febrúar 2007.
DÓMNEFND
Í dómnefnd sitja: Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt FAÍ og Helgi Bollason Thoroddsen
arkitekt FAÍ, skipuð af Arkitektafélagi Íslands, Sigurður Magnússon bæjarstjóri, Manfreð
Vilhjálmsson arkitekt FAÍ og Guðmundur G. Gunnarsson bæjarfulltrúi fyrir hönd Sveit-
arfélagsins Álftaness. Trúnaðarmaður keppninnar er Haraldur Helgason arkitekt.
VERÐLAUN
Veitt verða verðlaun að heildarfjárhæð kr. 6.000.000.
Stefnt er að veitingu þrennra verðlauna, 1., 2. og 3. verðlauna. - 1. verðlaun verða
eigi lægri en kr. 3.000.000. Auk þess er dómnefnd heimilt að verja allt að kr. 750.000
til aukaverðlauna.
Sveitarfélagið Álftanes hefur ákveðið að efna til framkvæmda-
samkeppni um skipulag miðsvæðis á Álftanesi í samvinnu við Arkitekta-
félag Íslands.
Gert er ráð fyrir að byggðin á miðsvæðinu verði í framtíðinni andlit
sveitarfélagsins og kjarni atvinnulífs og þjónustu á Álftanesi.
um sk ipulag á miðsvæði Ál f taness
Séð yfir Álftanes. Í forgrunni er miðsvæðið sem gert er ráð fyrir að verði andlit Álftaness og kjarni atvinnulífs og þjónustu.
w w w. a l f tanes . is
�
�
��
�
�
�
�
�
�
�
��
��
��
�
��
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�