Fréttablaðið - 25.10.2006, Blaðsíða 75
MIÐVIKUDAGUR 25. október 2006 35
FÓTBOLTI David Beckham hefur
ekki átt sjö dagana sæla hjá Real
Madrid á þessari leiktíð og hann
hefur nú látið hafa það eftir sér að
hann sakni Manchester United.
Samningur Beckhams við Real
Madrid rennur út næsta sumar og
talið er víst að leikmaðurinn muni
hafna nýjum samningi ef hann
nær ekki að vinna sér sæti í liðinu
hjá Fabio Capello, þjálfara Real
Madrid.
Félög á Englandi, Ítalíu og
Bandaríkjunum bíða í startholun-
um eftir að sjá hver ákvörðun leik-
mannsins verður en Beckham
hefur sagt að eina félagið sem
hann myndi nokkurn tímann spila
fyrir á Englandi sé Manchester
United. Frægt er atvikið þegar
Ferguson sparkaði skó í höfuðið á
Beckham en leikmaðurinn hefur
nú rétt fram sáttahönd til fyrrver-
andi framkvæmdastjóra síns.
„Þetta var slys. Ég er búinn að
þekkja Ferguson frá því að ég var
tólf ára gamall og okkur hefur lent
saman einu sinni eða tvisvar á
þeim tíma,“ sagði Beckham og
hann hefur einnig lýst yfir von-
brigðum sínum með hve lítil sam-
skipti leikmenn Real Madrid hafa
sín á milli utan vallar.
„Ég á vini hérna eins og Roberto
Carlos, Ronaldo og Michel Salgado
en við hittumst sjaldan utan
æfingasvæðisins. Ég var hjá
Manchester United í fimmtán ár
og á hverjum degi og í hverjum
leik stóðum við saman, í gegnum
súrt og sætt. Á hálfs mánaðar
fresti fórum við saman út að
borða, allir leikmennirnir, og
stundum komu Ferguson og hinir
þjálfararnir með okkur. Á þeim
þremur árum sem ég hef verið hér
hjá Real Madrid þá höfum við
fjórum sinnum farið út að borða
saman,“ sagði Beckham en hann
missti af æfingu liðsins á mánu-
daginn og ekki hefur enn verið
gefin upp ástæða þess.
- dsd
David Beckham missti af æfingu um daginn en hann hefur lítið fengið að spila:
Saknar greinilega Man. United
DAVID BECKHAM Hver veit nema við
munum sjá hann í búningi Manchester
United á nýjan leik?
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Skagamaðurinn Hafþór
Ægir Vilhjálmsson hafnaði tilboði
sænska félagsins Norrköping í
gær en félagið bauð honum þriggja
ára samning. Hafþór var ákveðinn
í því að semja við Val færi svo að
dæmið með Norrköping gengi
ekki upp og heimildir Fréttablaðs-
ins herma að það hafi ekkert
breyst. Íslandsmeistarar FH eru
samkvæmt sömu heimildum einn-
ig stokknir í slaginn, eru mjög
áhugasamir og hafa gert Hafþóri
freistandi tilboð en hann ku samt
vera spenntari fyrir Val.
„Mér liggur ekkert á að komast
út og það er allt eins gott að spila
aðeins lengur hérna heima og
bæta á reynslubankann. Það er
nóg af skemmtilegum möguleik-
um og ég útiloka ekki neitt. Það er
klárt að ég fer ekki út heldur spila
hér heima í að minnsta kosti eitt
ár í viðbót,“ sagði hinn tvítugi
Hafþór Ægir í gær en hann getur
ekki klárað sín mál fyrr en í lok
mánaðarins þegar samningur hans
við ÍA rennur út.
Hafþór Ægir sagði á sínum
tíma að hann vildi losna frá ÍA og
hann fékk klásúlu í samning sinn
rétt fyrir lok móts um að hann
væri frjáls ferða sinna frá og með
31. október færi svo að Guðjón
Þórðarson tæki við liðinu. Skaga-
menn kærðu þennan viðauka í
samningnum en höfðu ekki erindi
sem erfiði og viðaukinn stóð sam-
kvæmt úrskurði samninga- og
félagaskiptanefndar KSÍ.
Þrátt fyrir þá staðreynd hafði
Hafþór áhuga á að semja aftur við
ÍA og samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins sigldu þær samn-
ingaviðræður ekki endanlega í
strand fyrr en um síðustu helgi.
Þrátt fyrir ágætan vilja beggja
aðila strönduðu viðræðurnar á
launaliðnum en ÍA er ekki að
borga sömu upphæðir og Valur og
FH.
„Mér finnst leiðinlegt að það
hafi ekkert gengið með ÍA. Við
reyndum að tala við þá tvívegis án
árangurs. Ég hefði alveg viljað að
þær viðræður hefðu gengið en
svona er þetta,“ sagði Hafþór
Ægir.
henry@frettabladid.is
Hafþór Ægir á leið í Val
þrátt fyrir áhuga FH
Hafþór Ægir Vilhjálmsson hafnaði tilboði Norrköping í gær og fátt virðist geta
komið í veg fyrir að hann gangi í raðir Vals þótt Íslandsmeistarar FH séu komnir
inn í myndina. Hafþór reyndi að semja við ÍA upp á nýtt án árangurs.
ENGIN ATVINNUMENNSKA Í BILI Hafþór Ægir Vilhjálmsson er búinn að hafna Norr-
köping og mun að öllum líkindum semja við Valsmenn um mánaðamótin.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Besti leikmaður Lands-
bankadeildarinnar í sumar að mati
leikmanna, Víkingurinn Viktor
Bjarki Arnarsson, verður líklega
seldur til norska félagsins Lille-
ström í dag. Víkingur hefur verið í
viðræðum við norska félagið und-
anfarna daga og bar ekki mikið í
milli liðanna í gærkvöldi sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Lilleström bauð upphaflega 10
milljónir króna í Viktor sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
en Víkingur hafnaði því tilboði og
gerði Lilleström gagntilboð. Því
tilboði var svarað með öðru gagn-
tilboði og boltinn gekk þannig á
milli félaganna allan gærdaginn.
„Hlutirnir hafa verið að gerast
hratt,“ sagði Róbert Agnarsson,
formaður knattspyrnudeildar Vík-
ings, við Fréttablaðið í gærkvöld
en hann varðist allra frétta. „Við
erum að henda boltanum á milli og
þannig er bara staðan.“
Eins og áður segir ber ekki
mikið í milli liðanna og líklegra en
ekki að félögin nái saman í dag
komi ekki eitthvað mikið upp á.
Lilleström fylgdist grannt með
Viktori í sumar og félagið veit því
vel hvað það fær fyrir peninginn
sem verður að teljast ágætur fyrir
leikmann sem á aðeins eitt ár eftir
af samningi sínum við Víking.
- hbg
Framtíð Viktors Bjarka Arnarssonar að skýrast:
Líklega til Lilleström
VIKTOR BJARKI Vakti hrifningu forráðamanna Lilleström á dögunum og þeir reyna
stíft að kaupa hann. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
Iceland Express deild karla:
TINDASTÓLL-ÞÓR Þ. 90-87 (E. FRAMLENG.)
SS-bikarkeppni kvenna
GRÓTTA-FRAM 28-15 (17-5)
Mörk Gróttu: Anna Úrsula Guðmundsdóttir
5, Kristín Þórðardóttir 4, Arndís Erlingsdóttir 4,
Sandra Paegle 4, Natasa Damiljanovic 3, Hera
Bragadóttir 2, Tinna Jökulsdóttir 2, Eva M. Kristins-
dóttir 2, Þórunn Friðriksdóttir 2.
Mörk Fram: Annett Köbli 5, Stella Sigurðardóttir
3, Guðrún Halldórsdóttir 2, Marthe Sördal 2, Anna
Einarsdóttir 1, Þórey Stefánsdóttir, Hildur Knúts-
dóttir 1.
Enski deildabikarinn
WBA-ARSENAL 0-2
Jeremie Aliadiere 2 (1 úr víti).
LEICESTER-ASTON VILLA 2-3 (E. FRL)
Stearman, Kisnorbo - Angel, Barry (víti),
Agbonlahor.
NOTTS COUNTY-SOUTHAMPTON 2-0
CHESTERFIELD-WEST HAM 2-1
SHEFF. UNITED-BIRMINGHAM 2-4
PORT VALE-NORWICH 0-0 (PV VANN Í VÍTAK.)
LEEDS-SOUTHEND 1-3
WATFORD-HULL CITY 2-1
WYCOMBE-DONCASTER ROVERS 2-2
Wycombe vann í vítakeppni.
EVERTON-LUTON 4-0
Cahill, McFadden, Anichbe, sjálfsmark.
Þýska bikarkeppnin
DORTMUND-HANNOVER 96 0-1
Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék ekki með
Hannover í leiknum.
Spænska bikarkeppnin
ALAVES-CELTA VIGO 0-0
ATLETICO MADRID-LEVANTE 0-1
Heimsbikarinn í handbolta
A-RIÐILL
SPÁNN-TÚNIS 35-30
Mörk Spánar: Romero 9/3, Garcia 5, Rodrigues
5, J. Garcia 4, Garabaya 3, Davis 2, Garralda 2,
Rocas 2/1, R. Entrerrios 2, A Entrerrios 1.
Mörk Túnis: Tej 8, Hammed 4, Aziza 4, Bousnina
3, Ayed 3/1, Hmam 2, Ahmed 1, Gharbi 1.
SVÍÞJÓÐ-GRIKKLAND 30-24
B-RIÐILL
KRÓATÍA-DANMÖRK 33-34
Michael Knudsen var markahæstur hjá Dönum
með 6 mörk en Mirza Dzomba var með 7/3 fyrir
Króatíu.
SERBÍA-ÞÝSKALAND 32-40
Mörk Serbíu: Bojinovic 8, Rajkovic 5, Stojanovic
4, Toskic 3, Vuckovic 2, Ilic 2, Kojic 1, Stojanovic
1, Manojlovic 1.
Mörk Þýskalands: Preiss 6, Klimowets 5, Jansen
4, Glandorf 4, Baur 4, Klein 4, Hermann 3, Kehr-
mann 3, Sprenger 2, Hegemann 2, Haass 1, Hens
1, Roggisch 1.
FÓTBOLTI Paul Ince hefur nú tekið
við stöðu spilandi framkvæmda-
stjóra hjá Macclesfield, en
félagið situr í neðsta sæti í neðstu
deildinni á Englandi. Ince gerði
garðinn frægan sem leikmaður
með West Ham, Manchester
United, Inter Milan og Liverpool
áður en hann hélt til Wolves og nú
Macclesfield.
Ince, sem er 39 ára gamall,
hefur nú beðið fyrrum samherja
sinn í enska landsliðinu Paul
Gascoigne um aðstoð við að ná
Macclesfield af botni enskrar
knattspyrnu, en Macclesfield er
sjö stigum á eftir næsta liði.
„Gascoigne er alltaf velkominn
til starfa. Ef hann hefur einhverj-
ar hugmyndir sem hann vill deila
með mér, þá eru þær velkomnar.
Hann hefur þjálfað áður og ég hef
áhuga á að heyra hans hugmynd-
ir,“ sagði Ince en Gascoigne hefur
ekki riðið feitum hesti á sínum
þjálfaraferli. - dsd
Paul Ince:
Býður Gas-
coigne vinnu
PAUL INCE Er nýr framkvæmdastjóri
neðsta liðsins á Englandi.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Jose Mourinho, fram-
kvæmdastjóri Chelsea, vill ólmur
fá nýjan markmann til félagsins
til að hafa til staðar á meðan Petr
Cech jafnar sig á meiðslum sem
hann hlaut á dögunum. Félagið
hefur nú fengið Stephane Porato,
fyrrum markmann Marseille, til
reynslu en hann er samningslaus
og því ljóst að Chelsea þyrfti ekki
að borga neitt fyrir leikmanninn.
Búist er við því að Hilario
standi á milli stanganna í kvöld
þegar Chelsea heimsækir
Blackburn í enska deildarbikarn-
um en Carlo Cudicini er óðum að
jafna sig og Mourinho býst við
því að hann verði með á móti
Sheffield United um næstu helgi.
- dsd
Markvarðarmál Chelsea:
Stephane
Porato á reynslu
HANDBOLTI Einn leikur fór fram í
sextán liða úrslitum SS-bikars
kvenna í gær þegar Fram
heimsótti Gróttu á Seltjarnarnes.
Það er skemmst frá því að segja
að þetta var leikur kattarins að
músinni sem endaði með þrettán
marka sigri Gróttu, 28-15.
Það vantaði nokkra sterka
leikmenn í lið Fram og það sást
strax í upphafi að Fram saknaði
þessara lykilmanna, því Grótta
stakk af mjög fljótlega og leit
aldrei til baka. Fyrri hálfleikur
var algjörlega eign heimamanna
sem voru tólf mörkum yfir í
leikhléi, 17-5.
Í stað þess að niðurlægja
gestina algjörlega sló Grótta af í
síðari hálfleik en þrettán marka
sigur engu að síður staðreynd.
- hbg
SS-bikarkeppni kvenna:
Auðvelt hjá
Gróttustúlkum
MARK Kristín Þórðardóttir skorar hér eitt
af fjórum mörkum sínum í gærkvöldi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Emerson, leikmaður Real
Madrid, hefur beðið leikmenn og
aðdáendur Real Madrid að halda
ró sinni. Liðið hafi ekki unnið
neinn titil þótt það hafi sigrað
Barcelona um síðustu helgi.
„Við unnum bara einn leik,
ekki spænsku deildina eða
Meistaradeildina. Það var að
sjálfsögðu gott að vinna þennan
leik, en við höfum ekki unnið
neitt ennþá og verðum að leggja
harðar að okkur. Við lékum
einfaldlega vel gegn góðu liði,“
sagði Emerson. - dsd
Emerson:
Höfum ekki
unnið neitt