Fréttablaðið - 25.10.2006, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 25. október 2006 15
NEYTENDUR Nokkrar spákonur sem
reka símaþjónustu, þar sem þær
selja þjónustu sína, eiga í deilum
við Símann vegna hækkunar á
þjónustugjöldum: „Ég er búin að
vera með 900 númer í nokkur ár.
Mínútan hjá mér kostar tvö hundr-
uð krónur. Áður fyrr fékk ég 150
krónur á mínútuna og Síminn
fimmtíu. Þeir sögðu upp samn-
ingnum mínum í júlí og ég þurfti
að gera nýjan samning við þá með
þeim skilyrðum að þeir fengju
hundrað krónur og ég hundrað af
mínútugjaldinu mínu. Ég læt ekki
koma svona fram við mig,“ segir
spákona, sem vill ekki láta nafns
síns getið. Hún vill fá sig lausa frá
fyrirtækinu og segir fleiri starfs-
systur sínar í svipaðri stöðu.
„Ég hef það á tilfinningunni að
Síminn sé að stela af okkur, það er
fáránlegt að fyrirtækið taki fimm-
tíu prósent af laununum okkar,“
segir spákona sem segir Símann
koma illa fram við spákonur. „Mínir
viðskiptavinir eru að mestu leyti
gamlar konur sem eiga bágt og það
er erfitt að fara frá því að vera
sálusorgari yfir í þetta stapp við
fyrirtækið,“ segir önnur spákona
sem ætlar einnig að fara frá fyrir-
tækinu vegna hækkunarinnar.
Eva Magnúsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Símans, segir fyrirtækið
hafa orðið að hækka þjónustugjöld
900 númeranna: „Það var spurning
um að gera breytingar á þjónust-
unni eða hætta með hana. Þessi
nýja gjaldskrá tók gildi nú 1.
október.“ - ifv
Nokkrar spákonur eiga í deilum við Símann:
Telja Símann svindla á sér
SÍMINN Nokkrar spákonur telja síma-
fyrirtækið rukka sig um of há þjónustu-
gjöld.
FÉLAGSMÁL Öryrki sem flutti frá
Íslandi til Danmerkur árið 2002 á
sjálfur að greiða fyrir kostnað
vegna tannviðgerða hér á landi.
Maðurinn sagðist ekki hafa ætlað
sér að ganga til tannlæknis þegar
hann kom í heimsókn til Íslands um
síðustu jól. Hann hafi hins vegar
fengið kul í tennurnar og ákveðið
að gert skyldi við tvær tennur enda
hefði Tryggingastofnun sagt
tannlækni hans að helmingur
kostnaðarins fengist greiddur. Það
kannaðist stofnunin á hinn bóginn
ekki við þegar á reyndi og staðfesti
úrskurðarnefnd almannatrygginga
að synja bæri beiðni um þátttöku í
kostnaðinum. - gar
Brottfluttur öryrki:
Borgi sjálfur
tannlækninum
FRAKKLAND, AP Deilur standa nú
yfir í Frakklandi, þar sem
yfirvöld hafa svipt 43 flugvallar-
starfsmenn Charles de Gaulle
flugvallarins öryggisheimild
sinni, vegna gruns um aðild að
öfgasamtökum sem jafnvel
tengjast hryðjuverkum.
Innanríkisráðherrann Nicholas
Sarkosy sagði að mennirnir gætu
ekki haft aðgang að ákveðnum
öryggissvæðum flugvallarins á
meðan grunur léki á þessu, en gaf
ekki upp á hverju grunurinn væri
byggður.
Starfsmennirnir, sem eru allir
múslimatrúar, hyggjast kæra
sviptinguna, enda líkur á að þeir
missi vinnuna í kjölfar hennar. - rve
Grunaðir um hryðjuverk:
Starfsmenn
missa heimild
HERT ÖRYGGISEFTIRLIT Frönsk yfirvöld
vilja fyrirbyggja að hryðjuverkaárásirnar á
Bandaríkin 11. september 2001 endur-
taki sig.
SVÍÞJÓÐ, AP Villtur skógarbjörn
réðist á þrjá veðreiðahesta þar sem
þjálfari þeirra var að þjálfa þá
skammt frá Ransater í Svíþjóð á
sunnudag. Hestarnir voru spenntir
fyrir vagn þegar björninn birtist
fyrir aftan þá og réðist á þá.
„Ég held ég hafi brotið nokkur
rifbein,“ sagði Björn Johansson,
þjálfari, sem kastaðist úr vagnin-
um þegar hestarnir trylltust og
reyndu að verja sig. Björninn
neyddist fljótlega til að lúta í lægra
haldi og flúði loks fótbrotinn og
haltrandi undan hestunum inn í
skóginn.
Hrossin sluppu meira eða minna
ómeidd. - smk
Sænskur hestabúgarður:
Björn gekk ber-
serksgang
VINNUMARKAÐUR Tillaga um
róttækar skipulagsbreytingar
liggur fyrir ársfundi Alþýðusam-
bands Íslands, ASÍ, sem haldinn
verður í næstu viku.
Lagt er til að í stað ársfundar
verði þing haldið á tveggja ára
fresti. Miðstjórn fari með æðsta
vald ASÍ og að fulltrúum hennar
verði fjölgað úr fimmtán í 31.
Forseti og varaforseti verði
kjörnir en aðrir tilnefndir.
Framkvæmdastjórn verði síðan
mynduð formlega og hana skipi
formenn landsambanda og
stærstu aðildarfélaga. - ghs
Alþýðusamband Íslands:
Róttækar skipu-
lagsbreytingar
Jarðskjálfti
Jarðskjálfti sem mældist 4,8 á Richter-
skala reið yfir grísku eyna Karpaþos
í gærmorgun. Engin slys urðu á fólki
og engar tilkynningar bárust um
skemmdir.
Verkfall kennara
Gríski forsætisráðherrann Costas
Karamanlis fundaði með grunn-
skólakennurum í gær í þeim tilgangi
að reyna að binda enda á verkfall
sem hefur lokað skólum Grikklands
seinustu sex vikurnar. Kennararnir
krefjast betri vinnuaðstöðu og hærri
byrjunarlauna.
GRIKKLAND
Traustur efnahagur
— aukin velferð
4. SÆTI
Við styðjum Ágúst Ólaf Ágústsson, varaformann Samfylkingarinnar í prófkjöri Samfylkingarinnar
Margrét Frímannsdóttir,
alþingismaður og fyrrv.
þingflokksformaður
Jón Sigurðsson,
fyrrv. ráðherra og
Seðlabankastjóri
Karl Steinar Guðnason,
forstjóri Tryggingar-
stofnunar ríkisins
Birna Anna Björnsdóttir,
rithöfundur
Ari Skúlason, gjaldkeri
Samfylkingarinnar
Helena Karlsdóttir,
ritari Samfylkingarinnar
Felix Bergsson, leikari Ingólfur Margeirsson,
rithöfundur
Orri Páll Dýrason,
trommari í SigurRós
Pétur Jónsson,
fyrrv. borgarfulltrúi
Sólveig Guðmundsdóttir,
leikkona
Ásgeir Runólfsson,
framkvæmdastjóri
stúdentaráðs Háskóla
Íslands
Magnús Már
Guðmundsson,
formaður Ungra
jafnaðarmanna
G. Ágúst Pétursson,
formaður Jafnaðar-
manna í atvinnurekstri
Bjarni Lárus Hall,
söngvari Jeff Who?
Ragnhildur Sigríður
Eggertsdóttir,
stuðningsfulltrúi
Jón Þór Sturluson,
hagfræðingur
Elín Björg Jónsdóttir,
í stjórn BSRB
Helgi Pétursson, fyrrv.
borgarfulltrúi
Torfi Tulinius, prófessor Sigrún Elsa Smáradóttir,
varaborgarfulltrúi
Höskuldur Ólafsson,
söngvari Ske
Þorbjörn Broddason,
prófessor
Guðmundur Ólafsson,
hagfræðingur
Falasteen Abu Libdeh,
skrifstofustúlka
Olav Veigar Davíðsson,
fyrrv. framkvæmda-
stjóri þingflokks
Samfylkingarinnar
Björgvin Guðmundsson,
viðskiptafræðingur og
stjórnarmaður í 60+
Ágúst Ólafur Ágústsson
varaformaður Samfylkingarinnar
www.agustolafur.is