Fréttablaðið - 25.10.2006, Síða 12

Fréttablaðið - 25.10.2006, Síða 12
12 25. október 2006 MIÐVIKUDAGUR LEIKUR AÐ BYSSUM Á hersýningu í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, á sunnudaginn fengu börnin tækifæri til að leika sér að vopnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VARNARSVÆÐIÐ Vonast er til þess að Þróunarfélagi Keflavíkurflug- vallar ehf. takist að efla atvinnulíf á Suðurnesjum og nýta sóknar- færi sem skapast hafa með brott- för bandaríska varnarliðsins. Þetta var meðal þess sem kom fram í máli manna á stofnfundi Þróunarfélagsins, sem fram fór í Keflavík í gær. Geir H. Haarde forsætis- ráðherra sagðist á fundinum von- ast til þess að félagið myndi leggja grunninn að þróun verk- efna á svæðinu við Keflavíkur- flugvöll. „Markmiðið er að félagið muni á endanum skila eigendum sínum arði. Íslenska ríkið á þess- ar eignir sem um ræðir og við telj- um mikilvægt að koma þeim í arðbær, borgarleg not,“ sagði Geir og lagði jafnframt á það áherslu að mörg fyrirtæki gætu séð sér hag í því að starfa í nágrenni við Keflavíkurflugvöll. „Það hafa ýmsar góðar hugmynd- ir komið fram. Ég tel að mörg fyr- irtæki geti nýtt sér tækifæri sem fylgja því að vera með starfsemi í grennd við alþjóðaflugvöll í mikl- um vexti, en eflaust á markaður- inn eftir að koma fram með hug- myndaríkar og góðar lausnir á þessum málum.“ Íslenska ríkið leggur til tuttugu milljónir króna í félagið en fyrst um sinn hefur félagið yfirumsjón með undirbúningsvinnu á svæði varnarliðsins við Keflavíkurflug- völl. Auk þess kemur félagið til með að annast rekstur, umsjón og umsýslu tiltekinna eigna ríkisins á svæðinu á grundvelli þjónustu- samninga við ríkið. Inn í þessum samningum telst meðal annars útleiga á eignum, hreinsun svæð- isins og eftir atvikum niðurrif mannvirkja. Magnús Gunnarsson, formaður stjórnar Þróunarfélagsins, vonast til þess að félagið geti komið miklu í verk á skömmum tíma. „Við byrj- um á því að leggja okkur fram við að ná utan um verkefnið í heild, og reynum þannig að kortleggja öll þau verkefni sem fyrir liggja. Við þurfum að skoða vandlega hvernig við getum hagað málum í hreinsun svæðisins og viðhaldi á eignum. Eftir þessa grundvallarvinnu er hægt að móta framtíðarsýn um það hvernig hægt verði að koma eign- unum í arðbæran rekstur.“ Auk Magnúsar sitja Stefán Þórarinsson og Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, í stjórn félagsins. Varamenn þeirra í stjórn eru Hildur Árnadóttir, Helga Sig- rún Harðardóttir og Sigurður Valur Ásbjarnarson. magnush@frettabladid.is Eignum verði komið í arðbæran rekstur Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar var formlega stofnað í gær. Líklegt að mörg fyrirtæki geti nýtt sér nálægðina við alþjóðaflugvöll, segir Geir H. Haarde. Byrjum á því að hreinsa svæðið og huga að viðhaldi, segir Magnús Gunnarsson. GEIR H. HAARDE SKRIFAR UNDIR SAMNINGINN Geir H. Haarde sést hér undirrita samning um stofnun Þróunarfélagsins á blaða- mannafundi sem fram fór í höfuðstöðvum Kaffitárs í Reykjanesbæ. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sitja við hlið Geirs. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október 2006 Guðfinna S. Bjarnadóttir Valfrelsi og skapandi umhverfi Málefnafundur um „Skapandi Ísland“ miðvikudaginn 25. október kl. 12.00. Staður: Kosningaskrifstofan í Landsímahúsinu við Austurvöll. Verið velkomin. Stuðningsfólk Guðfi nnu S. Bjarnadóttur. Þekking Frumkvæði Árangur KOSNINGASKRIFSTOFA GUÐFINNU S. BJARNADÓTTUR LANDSÍMAHÚSINU VIÐ AUSTURVÖLL www.gudfinna.is gudfinna@gudfinna.is Opið virka daga kl. 10:00–20:00 Helgar kl. 10:00–18:00 Sími 591 1100 Íslenska ríkið á þessar eignir sem um ræðir og við teljum mikilvægt að koma þeim í arðbær, borgarleg not. GEIR H. HAARDE FORSÆTISRÁÐHERRA Gulafljót mengað rautt Kínverska áin Gulafljót varð rauð á tæplega kílómetra löngum kafla þegar starfsmenn hitaveitu helltu lit- uðum úrgangi í ána meðan á viðgerð hitaveitunnar stóð. Mikið uppnám varð í Lanzhou borg við atvikið, en fólk þar nýtir vatn fljótsins til drykkjar. Forsvarsmenn hitaveitunnar hafa verið áminntir. KÍNA Skip sökk Mannbjörg varð þegar sænskt herskip sökk við æfingar skammt frá Stokkhólmi snemma í gærmorg- un. Áhöfnin, sextán manns, yfirgaf skipið þegar það fór að sökkva og komust flestir í björgunarbáta, þótt sumir enduðu í sjónum. Öllum var svo bjargað um borð í önnur skip og sakaði engan, að sögn sænska hersins. SVÍÞJÓÐ Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, vonast til þess að Þróunarfélagið leggi grunninn að árangursríku starfi. „Það skiptir sköpum fyrir sveitarfélagið að þetta starf sé komið af stað. Það er líka gott til þess að vita að alþjóðaflug- völlurinn sé sífellt að eflast. Alþjóðaflugvöllurinn er aðal starfsvettvangur fólks á Suðurnesjum og ég tel að þetta félag geti lagt sitt af mörkum til þess að efla starfið enn frekar. En félög eins og þessi þurfa að fá rými til þess að leggja grunn- inn að metnaðarfullu starfi. Það er mikilvægt að hafa það í huga, að eftir að félagið hefur lagt grunninn fyrir starfsemi á varnarsvæðinu, þá geti menn mælt árangurinn eftir því hvenær verður hægt að leggja félagið niður.“ ÁRNI SIGFÚSSON Bindur vonir við starf félagsins.FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI ÖRYGGISMÁL Sigríður Snævarr, kosningastjóri framboðs Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sagði á fundi um framboðið í gær að framboðsstyrkur Íslendinga fælist meðal annars í því að við hefðum aldrei setið þar áður. „Það er tilfinning meðal aðildarríkjanna að það eigi að vera hringrás innan ráðsins. Að þar eigi að vera eins mikil fjölbreytni og fremst er kostur.“ Í máli hennar kom einnig fram að ef Íslendingar hlytu kosningu þá yrðum við fámennasta þjóðin sem nokkurn tímann hefði setið í Öryggisráðinu. Þá ynni það með okkur að við værum herlaus þjóð og auk þess fyrrum nýlenda. „Við erum eins, en samt öðruvísi.“ Ísland sækist eftir setu í ráðinu frá og með 1. janúar 2009 en kosið verður á milli Íslands, Austurríkis og Tyrklands um tvö laus sæti vest- rænna ríkja í öryggisráðinu. Sigríður sagði tilgang framboðs- ins fyrst og síðast þann að láta gott af sér leiða á alþjóðavettvangi. „Við ætlum að hækka metnaðarstigið, efla okkur á alla enda og kanta til þess að rödd Íslands hljómi á þess- um vettvangi þannig að við getum lagt okkar af mörkum til lausnar á deilumálum í fjarlægum ríkjum.“ Hún sagði Íslendinga vel geta haft áhrif innan ráðsins. „Við erum nor- ræn þjóð og sú ímynd og ásýnd sem fylgir þeim á alþjóðavettvangi er mjög jákvæð.“ - þsj Framboðsstyrkur Íslands til Öryggisráðs SÞ felst í sérkennum landsins: Getum látið gott af okkur leiða SIGRÍÐUR SNÆVARR Kosningastjóri framboðs Íslands til öryggisráðs SÞ, kynnti framboðið á fundi í gær. SVEITARSTJÓRNIR Hólmvíkingar fá gefins vél í skólabíl sveitarfélags- ins sem notaður hefur verið fyrir akstur úr Djúpinu. Dísilvél bílsins er ónýt eftir aðeins 135 þúsund kílómetra akst- ur sem þykir afspyrnu léleg end- ing fyrir þess konar vél, eins og segir í fundargerð sveitarstjórnar- innar. „En sem betur fer ætlar umboð Ingvars Helgasonar að láta okkur fá nýja, strípaða vél okkur að kostnaðarlausu og benti auk þess á verkstæði sem var tilbúið að setja nýju vélina í fyrir 120 þús- und krónur,“ segir í fundargerð- inni. Um er að ræða mikið breyttan bíl. - gar Bilaður skólabíll: Fá gefins vél Grunnurinn verði lagður

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.