Fréttablaðið - 25.10.2006, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 25.10.2006, Qupperneq 24
Nýr Ford Mustang, sem hefur eldri árgerðir að fyrirmynd, nýtur vinsælda víða um heim og virðast Íslendingar hafa hrifist með, eins og sjá má af fjölda bíla hér á götum úti. „Hönnun hins nýja Ford Mustang þykir hafa heppnast gríðarlega vel,“ segir Sigurbjörn Hjaltason, söluráðgjafi Ford hjá Brimborg, sem hefur umboð fyrir Mustang- bíla á Íslandi. „Bíllinn er mjög nútímalegur í útliti þrátt fyrir að byggja á hönn- un eldri árgerða, því allra besta frá árunum 1966-70,“ heldur Sig- urbjörn áfram. „Sérstaða bílsins virðist einmitt felast í því til hversu breiðs aldurshóps hann höfðar. Menn á sextugsaldri þekkja línurnar og eru jafn hrifnir af honum og þeir yngri.“ Að sögn Sigurbjarnar hefur hann fengið gríðarlega góðar við- tökur í Bandaríkjunum. The Wall Street Journal Magazine valdi bíl- inn til að mynda bestu sportbíla- kaup í Bandaríkjunum 2006 og farið er lofsamlegum orðum um hann í blaðinu Family Car, þar sem fjöldi hestafla, aukið rými og góðar bremsur eru meðal þess sem honum eru talinn til tekna. Er talað um að þar sé á ferð vandaður sportbíll með mikla notkunar- möguleika. Íslendingar virðast ekki hafa farið varhluta af æðinu þar sem Mustang bílum hefur fjölgað tölu- vert á götum úti að undanförnu. Hjá Brimborg eru ýmsar útfærsl- ur fáanlegar af bílnum og með mismunandi aukabúnaði sem gefur kaupendum möguleika á að setja saman bíl eftir sínu höfði, að sögn Sigurbjarnar. Þannig er hægt að velja um V6 vél með 210 hest- öflum og V8 vél með 300 hestöfl- um, og beinskiptingu eða sjálf- skiptingu. Er verð frá 3.170.000 kr. Þessar vinsældir nýja Must- ang-bílsins ættu ekki að koma á óvart þar sem sigurganga bílsins er að segja má samfelld. Fyrsti bíllinn, hvítur blæjubíll með rauðu innvolsi, var markaðssettur í Bandaríkjunum árið 1964 og seld- ist í milljón eintökum á um 18 mánuðum og setti þar með sölu- met. Síðan þá hefur hann selst mjög vel. Auk þess sem Mustang var og er tiltölulega ódýr miðað við gæði, virtist eitt helsta aðdráttarafl hans fólgið í miklu úrvali aukabúnaðs sem gerði viðskiptavinum kleyft að laga hann að eigin smekk. Ekki skemmdi sportlegt útlit bílsins fyrir, sem hefur síðan tekið ákveðnum breytingum í tímans rás. Hvað sem öllum breytingum kann síðan að líða má hins vegar vera ljóst að hönnun bílsins er klassísk, eins og sannast kannski best af þeirri eftirspurn sem virð- ist vera eftir Ford Mustang bílsins nú, bíls sem sameinar það besta úr bílum frá ólíkum tímaskeiðum. roald@frettabladid.is Mustang-bílar hafa verið til síðan 1964 og hafa notið mikilla vinsælda frá fyrstu tíð. Mustang-bílar eru eftirsóttir um allan heim enda fallegur, hraðskeiður og þægilegur í akstri. Nýju lífi blásið í bílagoðsögn Sigurbjörn er hæstánægður með við- tökurnar sem bíllinn hefur hlotið. Þær eru ekki að ástæðulausu þar sem hann þykir hafa allt til að bera sem prýða á góðan sportbíl, auk þess að búa yfir miklu notagildi. Bíllinn er ekki aðeins fallegur að utan heldur einnig innan, auk þess sem hann þykir rúmgóður. Nýi Mustang bíllinn þykir einstaklega flottur í útliti, en eldri árgerðir voru hafðar sem fyrirmynd við hönnun hans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.