Fréttablaðið - 25.10.2006, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 25.10.2006, Qupperneq 48
 25. OKTÓBER 2006 MIÐVIKUDAGUR18 MARKAÐURINN Landsbanki Íslands hefur í samstarfi við sjóðastýringarfyrir- tækið AllianceBern- stein sett á stofn nýjan erlendan skuldabréfa- sjóð sem kallast Landsbanki Diversi- fied Yield Fund. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem AllianceBernstein fer í samstarf við íslenskt fjármálafyrirtæki með þessum hætti, en fyrirtækið er á meðal stærstu sjóðastýringar- fyrirtækja heims með yfir 600 milljarða dollara í stýringu. Landsbankinn hefur hér haft umboð fyrir AllianceBernstein frá árinu 1994. Stefán H. Stefánsson framkvæmdastjóri eignastýringar- sviðs Landsbankans segist mjög ánægður með samstarfið. „AllianceBernstein hefur verið öflugur samstarfsaðili bankans á sviði erlendra hlutabréfafjárfestinga í gegnum tíðina og við hlökkum mikið til að hefja samstarfið með þeim á sviði erlendra skuldabréfafjárfest- inga,“ segir hann og kveður nýja hlutabréfasjóðinn njóta nokkurrar sérstöðu. „Þetta er í raun íslenskur sjóður sem unninn er í samstarfi við AllianceBernstein. Hann er skráður í íslenskum krónum, en er með erlenda markaðsáhættu. Þannig nýtum við bæði hátt vaxtastigið hér og svo áhættudreifinguna erlendis. Í þessu felst kannski nýjungin og það sem áhugavert er við sjóðinn, krónuávöxtun en erlend undir- liggjandi áhætta.“ Landsbanki Diversified Yield Fund leggur áherslu á dreift eigna- safn og er með það ávöxtunarmarkmið að skila að jafnaði tveimur til þremur prósentum yfir LIBOR-millibankakjörum í gegnum heila hagsveiflu. Mat Landsbankans er að sjóðurinn geti verið að skila ávöxtun í íslenskum krónum upp á 14 til 17 prósent auk þess að bjóða upp á góða áhættudreifingu og lága fylgni við aðra markaði. - óká VEFUR ALLIANCEBERNSTEIN Samstarfsfyrirtæki Landsbankans er með þeim stærstu í heimi á sínu sviði. Nýr sjóður nýtir kosti tveggja markaðssvæða Landsbanki Íslands vinnur með AllianceBernstein. Starfandi stjórnarformaður er í 59 prósentum fyrirtækja hér á landi samkvæmt rannsókn Ástu Dísar Óladóttur, aðjúnkts við viðskipta- og hag- fræðideild Háskóla Íslands og doktorsnema við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn (CBS). Hún heldur fyrirlesturinn „Er fjölgun starfandi stjórn- arformanna fyrirtækjum til framdráttar?“ klukkan 12.20 í stofu 101 í Odda í dag. „Mér þótti áhugavert hversu mörg fyrirtæki hafa starfandi stjórnarformenn og eru jákvæð í garð þessa,“ segir hún en telur skýringuna á fjölda þeirra fyrirtækja sem haga stjórn sinni þannig að stjórnarformaðurinn sé nánast í fullu starfi við fyrirtækið vera þá að mörg þeirra tæplega 700 fyrirtækja sem leitað var til í rannsókninni séu lítil og með fáa starfsmenn. Ásta Dís segir að henni þyki reyndar hugtakið „starfandi stjórnarformaður“ óþarfi og að í raun ætti bara að tala um stjórnarformenn. „Við eigum enga sérstaka skilgreiningu á þessu hugtaki á íslensku en í útlöndum er þetta alveg skýrt,“ segir hún og bendir á að þar sé talað um tvískipt hlutverk stjórnarformanna. „Það er þá þegar menn sinna bæði stöðu framkvæmdastjóra eða forstjóra og starfi stjórnarformanns. Þetta er eitthvað sem er ekki algengt í stærri fyrirtækjunum hér, en í þeim minni jú. Svo er hitt sem er executive chairman og það er meira eins og við þekkjum það.“ Ásta Dís segir eðlilegt að í stórum fyrirtækj- um á borð við Kaupþing, Samskip og fleiri slík sé stjórnarformaður sem taki virkan þátt í stefnumót- un og viðskiptaþróun fyrirtækisins. Þetta segir hún sérstaklega eiga við þegar tekjur fyrirtækjanna koma að stærstum hluta erlendis frá og þá hafa stjórnarformenn félaganna oftar en ekki stjórnað útrásinni sem stendur undir tekjumyndun fyrir- tækjanna. „Verkefni starfandi stjórnarformanna hér á landi felast heldur ekki í því að skuldbinda félög, heldur móta stefnu og leita tækifæra. Framkvæmd stefn- unnar og úrvinnsla tækifæranna er almennt á hendi æðstu stjórnenda, í umboði stjórnar,“ segir hún. Spurningalisti var sendur til um 700 stjórnenda fyrir- tækja hér og kom í ljós að vel ríflega helmingi þeirra finnst gott að hafa starfandi stjórnarformann, meðan tæpum fimm prósentum finnst það ómögulegt. - óká ÁSTA DÍS ÓLADÓTTIR Ásta Dís, sem er aðjúnkt við viðskipta- og hagfræðideild HÍ, heldur í dag fyrirlestur við Háskólann um starfandi stjórnarformenn. Markaðurinn/GVA Starfandi stjórnarformenn algengir hér Í fyrirlestri við HÍ í dag verður leitast við að svara spurningunni um hvort fjölgun starfandi stjórnarformanna sé fyrirtækjum til framdráttar. F Y R S T O G S Í Ð A S T
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.