Fréttablaðið - 25.10.2006, Side 72
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
Topp5.is
M.M.J kvikmyndir.com
EMPIRE V.J.V. Topp5.is
“Ein fyndnasta
gamanmynd ársins”
HJ - MBL
EMPIRE
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM
GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
MÝRIN kl. 6, 8.30 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
DEVIL WEARS PRADA kl. 5.40, 8 og 10.20
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 6 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 8
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 6 og 8 ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
CRANK kl. 10
ACT NORMAL kl. 10.10
MÝRIN kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20
DEVIL WEARS PRADA kl. 5.40, 8 og 10.20
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 4 B.I. 7 ÁRA
MONSTER HOUSE ENSKT TAL kl. 3.50 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 5.40, 8 og 10.20
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 8 og 10
GRETTIR 2 ÍSL TAL kl. 3.50
MÝRIN kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
DEVIL WEARS PRADA kl. 6 og 8
TEXAS CHAINSAW MASSACRE kl. 10 B.I. 18 ÁRA
ALLRA SÍÐUSTU
SÝNINGAR
Rokkhljómsveitin Future Future
hefur gefið út sína fyrstu plötu
sem nefnist Insight. „Við erum
búnir að vinna að þessu í tvö ár,“
segir söngvarinn Sigurður Odds-
son um nýju plötuna. „Við tókum
upp þrjú lög í sumar á vegum Cod
og ákváðum þá að bíða með útgáf-
una og hafa þau lög með,“ segir
Sigurður.
Future Future fékk að eiga
lögin sem sveitin tók upp hjá Cod
og í framhaldinu gaf hún sjálf út
plötuna. Dreifingaraðilar eru 12
Tónar.
Sigurður lýsir plötunni sem
djassskotnu, framsæknu rokki,
einhvers konar flóknu talningar-
rokki. Hann segir sveitina ætla að
spila sem mest á næstunni til að
kynna gripinn og eru útgáfutón-
leikar fyrirhugaðir í næsta mán-
uði.
Tveir nýir meðlimir hafa bæst í
sveitina á undanförnu ári. Fyrst
kom nýr bassaleikari í sveitina og
fyrir um það bil tveimur mánuð-
um gekk Arnar Ingi Viðarsson,
trommari úr Isidor, til liðs við þá
félaga.
Djassskotið rokk
FUTURE FUTURE Rokksveitin Future
Future er að gefa út sína fyrstu plötu.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Hildur Vala hefur staðið frammi
fyrir erfiðu verkefni þegar kom
að sinni annarri plötu. Idol-æðið
hafði runnið sitt skeið og nú var
ekki lengur hægt að höggva í
þann knérunn. Næsta afurð
myndi ekki seljast af sjálfu sér
heldur þurfti hún að geta staðið á
eigin fótum.
Því er það ekkert undrunar-
efni að söngkonan og unnusti
hennar, Jón Ólafsson, skuli hafa
leitað til margra fremstu laga-
smiða landsins og falast eftir
kröftum þeirra enda koma þarna
við sögu tónlistarmenn á borð við
Egil Ólafsson, Valgeir Guðjóns-
son auk þess sem Botnleðjumað-
urinn Heiðar Örn Kristjánsson á
eitt lag á plötunni.
Platan hefst á fínu lagi Egils
Ólafssonar, Ég er kona, og í kjöl-
farið fylgir fínt lag úr smiðju trú-
badorsins Svavars Knúts, Lifðu
hægt. Texti Þórarins Eldjárns við
lagið Palli var einn í heiminum
kaffærir dapurri lagasmíð Val-
geirs Guðjónssonar en önnur lög
sem vert er að minnast á er titil-
lag plötunnar Lalala eftir Svavar
Knút sem virðist geta framleitt
léttmetið á færibandi og síðasta
lagið, Þá dreymir mig um þig,
eftir Heiðar Örn.
Lala svipar óneitanlega til þess
sem gert hefur kertaljósadrottn-
inguna Katie Melua heimsfræga.
Rödd Hildar Völu er lágstemmd
og útsetningarnar margar hverj-
ar til fyrirmyndar þótt ekki sé
mikið fyrir frumleikanum að
fara. Platan reynir lítið á hlust-
andann, fátt kemur á óvart og
lögin lifa sennilega fram yfir jól,
ekki mikið lengur en það og fyrir
vikið er Lalala því bara ágætis
dægurfluga. Freyr Gígja Gunnarsson
Ágætis dægurfluga Hildar Völu
LALALA
HILDUR VALA
Niðurstaða: Lalala kemur fáum á óvart og
lögin lifa sennilega fram yfir jól, ekki mikið
lengur en það og fyrir vikið er Lalala því bara
ágætis dægurfluga.
Ríkissjónvarpið auglýsir nú
eftir lögum í undankeppni
Eurovision. Þekktir laga-
höfundar og tónlistarmenn
vega og meta hvort þeir eigi
að vera með.
Hinn sigursæli Eurovision-höf-
undur Þorvaldur Bjarni Þorvalds-
son ætlar ekki að taka þátt í
keppninni í ár en nýverið auglýsti
RÚV eftir lögum fyrir undan-
keppni Eurovision og rennur
umsóknarfresturinn út 16. nóv-
ember. Þorvaldur lá yfir mixi
fyrir nýju Todmobile-plötuna
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum og sagði lagahöfundurinn
að nú væri nóg komið. „Ég hef
þrisvar verið með lag auk þess að
framleiða nokkur önnur, svo verð-
ur líka erfitt að toppa Silvíu Nótt-
ar-ævintýrið,“ segir Þorvaldur.
Eurovision-lagahöfundurinn
Hallgrímur Óskarsson var ekki
búinn að taka ákvörðun um
hvort hann hygðist
senda lag inn
en hann
samdi
einmitt
sigurlag
Birgittu
Haukdal
árið 2003,
Open Your
Heart.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru þegar nokkrir tónlist-
armenn búnir að taka upp svo-
kölluð „demo“ og sagði einn
heimildarmaður blaðsins að
einhverjir af Airwaves-tón-
listarhátíðinni hefðu tekið
upp lagasmíðar sem hugs-
aðar væru fyrir keppn-
ina og áhugi þeirra á
Eurovision hefði
kviknað eftir allt
fárið í kringum
Silvíu Nótt.
Einhverjar
sögusagnir hafa
verið á kreiki um að
Magni Ásgeirsson
ætli að taka þátt í
keppninni en
söngvarinn vildi
ekki gefa neitt upp
í þeim efnum. „Þetta
er nú það síðasta sem
ég er að hugsa um þessa
dagana en ef mér býðst rétta lagið
þá er aldrei að vita,“ segir Magni
en hann tók þátt í undankeppninni
í fyrra með lagið um Sæma rokk.
Magni hefur verið á faraldsfæti
að undanförnu og var á leiðinni
til Kanada þar sem hann spil-
ar með Josh og Dilönu á
tónleikum. Þá eru þeir í Á
móti sól að klára nýja plötu
og á næstu dögum verður
væntanlega tilkynnt um
stór- tónleika með
honum Dil-
önu, Toby,
Storm og
hinni frábæru
húshljómsveit þátt-
anna Rock Star: Super-
nova.
freyrgigja@frettabladid.is
Þorvaldur ekki með í Eurovision
MAGNI Söng lagið Sæmi rokk í
fyrra og útilokar ekki þátttöku
ef rétta lagið berst.
HALLGRÍMUR ÓSKARSSON
Hefur ekki tekið ákvörðun um
hvort hann ætli að senda lag í
keppnina.
ÞORVALDUR BJARNI Ætlar ekki að
vera með í Eurovision að þessu
sinni en hér er hann í Kíev ásamt
Vigni Snæ þegar Selma söng If I
had your Love eftir þá félaga.
Rokksveitin Ham spilar á tónleik-
um á Norðuratlantshafsbryggj-
unni í Kaupmannahöfn næstkom-
andi laugardag.
Einnig koma þar fram Whomade-
who frá Danmörku, 200 og Makrel
frá Færeyjum, og grænlenska
rokksveitin Chilly Friday.
„Við höfum aldrei spilað í Kaup-
mannahöfn. Þetta er því í fyrsta
sinn sem við erum í Danaveldi og
höfum við þó farið víða, “ segir
Sigurjón Kjartansson úr Ham. Síð-
ustu tónleikar sveitarinnar voru á
Nasa í júní og heppnuðust þeir
afar vel.
Sigurjón viðurkennir að ný
plata með Ham sé á prjónunum.
„Á endanum held ég að það gerist
en ég get ekki lofað því neitt fljót-
lega. Góðir hlutir gerast hægt.
Kannski höldum við upp á fertugs-
afmælin okkar með plötu,“ segir
hann í léttum dúr.
Hægt er að kaupa miða á hátíð-
ina á netinu á síðunni www.politik-
enbillet.dk/nordatlanten.
Ham í Danaveldi
SIGURJÓN KJARTANSSON
Sigurjón og félagar í Ham spila í fyrsta
sinn í Danmörku um næstu helgi.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Miðasala á tónleika Sykurmolanna
í Laugardalshöll 17. nóvember er
hafin. Tónleikarnir eru haldnir í
tilefni þess að tuttugu ár eru liðin
frá því að Sykurmolarnar gáfu út
lagið Ammæli á smáskífu. Allur
ágóði af tónleikunum rennur til
Smekkleysu.
Miðasala hefst kl. 10:00 í versl-
unum Skífunnar Kringlunni og
Smáralind, BT Akureyri, Selfossi
og Egilsstöðum og á midi.is.
Miðaverð er 5.000 krónur í
stæði, auk 350 kr miðagjalds, og
6.500 krónur í stúku, auk 440 króna
miðagjalds.
Miðasalan er hafin
SYKURMOLARNIR Hljómsveitin
Sykurmolarnir spilar í Laugardalshöll 17.
nóvember.