Fréttablaðið - 03.11.2006, Side 33

Fréttablaðið - 03.11.2006, Side 33
segir Sigurður Gíslason, yfirmatreiðslumaður á VOX rest- aurant. Veitingastaðurinn er í sambandi við bændur sem rækta lífrænt grænmeti sem kemur beint í hendurnar á matreiðslu- mönnum VOX án milliliða eins og annað hráefni. „Fiskurinn kemur líka til okkar nánast beint úr bátn- um og við leggjum okkur fram við að fá nýjan fisk á hverjum degi,“ segir Sigurður og bætir við: „Við skiptum síðan út fisk- réttum á matseðlinum miðað við hvaða fisk sjómenn eru að veiða hverju sinnni.“ Sigurður segir sama eigi við um kjötmeti. „Við reynum eftir fremsta megni að þekkja uppruna kjötsins og vera í sambandi við bændur og veiði- menn og leggjum við okkur líka fram um að matreiða úr sem flestum hlutum skepnunnar,“ segir Sigurður. VOX tekur reglu- lega á móti gestakokkum, gjarna frá Norðurlöndunum, sem fram- reiða íslenska rétti á sína vísu. Sigurður segir VOX hafa gaman af því að taka íslenska þjóðlega rétti og gera með sínum brag og nefnir til dæmis íslensku kjöt- súpuna sem hann hefur fært í nýstárlegan búning. Mikill metn- aður er lagður í vínlista á VOX og er vínþekking þjóna með því betra sem þekkist í Evrópu. „Vín- þjónninn á VOX restaurant, Elísa- bet Alba Valdimarsdóttir, er nú á leiðinni til Kaupmannahafnar um þessar mundir til að keppa fyrir hönd Íslands í Norðurlanda- keppni vínþjóna, sem er ein sú virtasta í heiminum. Humarfylltur lax frá Sigurði Gíslasyni yf- irmatreiðslumeistara á VOX restaurant Tékkaðu á honum – þú verður ekki fyrir vonbrigðum UPPÁHALDSBJÓR MARGRA KYNSLÓÐALÉTTÖL Hinn heimsþekkti Budweiser Budvar er seldur til 52 landa víðs vegar um heiminn. Vinsældir hans eru ekki síst að þakka þeirri staðreynd að hann er bruggaður á einum stað og eingöngu úr bestu fáanlegu hráefnum. Hann er alltaf, alls staðar jafn góður.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.