Fréttablaðið - 03.11.2006, Page 33
segir Sigurður Gíslason,
yfirmatreiðslumaður á VOX rest-
aurant. Veitingastaðurinn er í
sambandi við bændur sem rækta
lífrænt grænmeti sem kemur
beint í hendurnar á matreiðslu-
mönnum VOX án milliliða eins og
annað hráefni. „Fiskurinn kemur
líka til okkar nánast beint úr bátn-
um og við leggjum okkur fram
við að fá nýjan fisk á hverjum
degi,“ segir Sigurður og bætir
við: „Við skiptum síðan út fisk-
réttum á matseðlinum miðað við
hvaða fisk sjómenn eru að veiða
hverju sinnni.“ Sigurður segir
sama eigi við um kjötmeti. „Við
reynum eftir fremsta megni að
þekkja uppruna kjötsins og vera í
sambandi við bændur og veiði-
menn og leggjum við okkur líka
fram um að matreiða úr sem
flestum hlutum skepnunnar,“
segir Sigurður. VOX tekur reglu-
lega á móti gestakokkum, gjarna
frá Norðurlöndunum, sem fram-
reiða íslenska rétti á sína vísu.
Sigurður segir VOX hafa gaman
af því að taka íslenska þjóðlega
rétti og gera með sínum brag og
nefnir til dæmis íslensku kjöt-
súpuna sem hann hefur fært í
nýstárlegan búning. Mikill metn-
aður er lagður í vínlista á VOX og
er vínþekking þjóna með því
betra sem þekkist í Evrópu. „Vín-
þjónninn á VOX restaurant, Elísa-
bet Alba Valdimarsdóttir, er nú á
leiðinni til Kaupmannahafnar um
þessar mundir til að keppa fyrir
hönd Íslands í Norðurlanda-
keppni vínþjóna, sem er ein sú
virtasta í heiminum.
Humarfylltur lax frá Sigurði Gíslasyni yf-
irmatreiðslumeistara á VOX restaurant
Tékkaðu á honum
– þú verður ekki fyrir vonbrigðum
UPPÁHALDSBJÓR MARGRA KYNSLÓÐALÉTTÖL
Hinn heimsþekkti
Budweiser Budvar
er seldur til 52 landa
víðs vegar um heiminn.
Vinsældir hans eru
ekki síst að þakka
þeirri staðreynd
að hann er bruggaður
á einum stað og eingöngu
úr bestu fáanlegu hráefnum.
Hann er alltaf, alls staðar
jafn góður.