Fréttablaðið - 01.12.2006, Síða 2
2 1. desember 2006 FÖSTUDAGUR
FíknieFnAmál Tollgæslan á Kefla-
víkurflugvelli hefur lagt hald á
nánast jafn mikið af kókaíni á
þessu ári og hún gerði samanlagt
á tuttugu árum þar á undan, eða
frá því að sérstakir starfsmenn
voru settir í fíkniefnaeftirlit í
flugstöðinni árið 1985.
Um áttatíu prósent af því kóka-
íni sem haldlagt hefur verið hér á
landi á síðustu árum hefur verið
tekið á Keflavíkurflugvelli.
Á tímabilinu 1985 til 2005 lagði
tollgæslan hald á um tíu kíló af
kókaíni. Þar munar mest um árið
2004 þegar tæplega fimm kíló
voru gerð upptæk, þar af 2,7 kíló í
desember einum og sér. Það sem
af er þessu ári hefur tollgæslan
lagt hald á tæplega átta og hálft
kíló af efninu, eða eilít-
ið minna en tuttugu
undanfarin ár saman-
lagt.
Kári Gunnlaugsson,
aðaldeildarstjóri toll-
gæslunnar á Keflavík-
urflugvelli, segir þessa
miklu aukningu líklega
endurspegla meiri eft-
irspurn eftir kókaíni á
Íslandi. „Ég hef ekki trú
á því að við séum ein-
ungis að ná svona miklu
betri árangri í eftirlitinu. Það virð-
ist því vera meiri eftirspurn. En
það er ekki hægt að áætla hana út
frá því sem við tökum. Erlendis er
oft talað um að yfirvöld séu að ná
fimm til tíu prósentum af því sem
reynt er að flytja inn. En þetta er
of tilviljunarkennt til að áætla eft-
irspurnina út frá því. Mér finnst
að minnsta kosti ólíklegt, miðað
við það að við tókum rúm átta
hundruð grömm í fyrra en meira
en tíu sinnum meira það sem af er
ári, að eftirspurnin og neyslan
hafi tífaldast á einu ári. Það held
ég að geti ekki staðist.“
Ásgeir Karlsson, yfirmaður
fíkniefnadeildar lögreglunnar í
Reykjavík, tekur undir með Kára
og segir mjög erfitt að áætla eftir-
spurnina. „Það er bara leikur að
tölum og aldrei hægt að staðfesta
hvort þær séu réttar eða
rangar. Það eru engin
fræði á bakvið það. Ein
stór haldlagning getur
skekkt heildarmyndina
töluvert.“
Jóhann R. Benedikts-
son, sýslumaður á Kefla-
víkurflugvelli, segir að
þótt vert sé að gleðjast
yfir afgerandi árangri
fíkniefnaeftirlits toll-
gæslunnar sé það
áhyggjuefni að smygltilraunir á
fíkniefnum virðast vera orðnar
mun stórtækari en áður. „Það virð-
ist einnig vera sem það sé meira
af dýrum fíkniefnum eins og kóka-
íni í umferð. Það er líklega skýr
vísbending um að fíkniefnaneysla
sé að verða almennari og ná til
fleiri þjóðfélagshópa en áður. Það
er mikið áhyggjuefni.“
thordur@frettabladid.is
Spurning dagSinS
Jafnmikið kókaín
og síðastliðin 20 ár
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur lagt hald á nánast sama magn af kókaíni
það sem af er árinu og hún gerði frá 1985 til 2005. Þetta bendir líklega til vax-
andi eftirspurnar. Að sögn sýslumanns eru smygltilraunir að verða stórtækari.
moSkvA, AP Jegor Gaidar, fyrrver-
andi forsætisráðherra Rússlands,
liggur veikur á sjúkrahúsi í
Moskvu, þó ekki í lífshættu, en
grunur leikur á að hann hafi orðið
fyrir eitrun. Gaidar veiktist heift-
arlega í Írlandi í síðustu viku, dag-
inn eftir að Alexander Litvinenko,
fyrrverandi njósnari, lést í Lond-
on.
Í líkama Gaidars hafa læknar
ekki fundið neina „eðlilega orsök
eitrunarinnar og þeim hefur ekki
tekist að finna neitt náttúrulegt
efni sem þeir þekkja,“ sagði Val-
ery Natorov, aðstoðarmaður lækn-
anna í Moskvu í gær, um orsakir
veikindanna.
Rannsóknin á láti Litvinenkos í
London heldur áfram af fullum
krafti.
Geislamengun hefur fundist á
tólf stöðum í London og nágrenni
og grunur leikur á hugsanlegri
geislamengun á tólf stöðum til við-
bótar í tengslum við rannsóknina
á láti Alexanders Litvinenkos, að
því er John Reid, innanríkisráð-
herra Breta, upplýsti í gær.
Leitað var að geislamengun í
fjórum farþegaflugvélum og þús-
undir farþega sem hafa flogið með
þeim hafa verið beðnir um að láta
vita ef þeir fá vísbendingu um að
þeir hafi orðið fyrir geislun. - gb
Fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands liggur veikur á sjúkrahúsi í Moskvu:
Læknar hafa grun um eitrun
Jóhann r.
BenediktSSon
kári
gunnlaugSSon
ágeir
karlSSon
75.000 KR.
GJAFABRÉF
FRÁ SMÁRALIND FYLGIR NÚNA
ÖLLUM NOTUÐUM BÍLUM FRÁ
INGVARI HELGASYNI
kókaín Tæplega átta og hálft kíló af kókaíni hefur fundist við eftirlit á Keflavíkurflug-
velli það sem af er ári. Á tímabilinu 1985 til 2005 fundu tollverðir samanlagt um tíu
kíló.
STJÓRnmál Borgarfulltrúar Vinstri
grænna kærðu sölu hlutar Reykja-
víkurborgar í Landsvirkjun til
félagsmálaráðuneytisins í gær á
þeim forsendum að hún hafi verið
ólögleg. Þeir krefjast þess að
félagsmálaráðherra felli sam-
þykkt borgarstjórnar um söluna
úr gildi.
Íslenska ríkið greiðir þrjá millj-
arða í peningum fyrir hlutinn og
23,9 milljarða í óskráðum skulda-
bréfum sem renna í Lífeyrissjóð
starfsmanna Reykjavíkurborgar.
Árni Þór Sigurðsson, borgar-
fulltrúi Vinstri grænna, segir að
salan sé ólögleg vegna þess að í
lögum er kveðið á um að lífeyris-
sjóður megi ekki eiga óskráð
skuldabréf sem eru meira virði en
tíu prósent af hreinni eign sjóðs-
ins. Með sölunni munu óskráðu
skuldabréfin mynda 67 prósent af
hreinni eign Lífeyrissjóðs starfs-
manna Reykjavíkurborgar. Til
þess að salan gæti gengið í gegn
þyrfti að breyta lögum, segir
Árni.
Árni segir að ákvæðið um
hámarkseign lífeyrissjóða sé í
lögum til að tryggja að lífeyris-
sjóðir ávaxti fé sitt á sem hag-
kvæmastan hátt því óskráð skulda-
bréf, sem auk þess séu með
breytilega vexti eins og í þessu til-
felli, séu illseljanleg. „Lífeyris-
sjóðurinn getur ekki farið með
bréfin á markað og reynt að selja
þau til að ná sér í hagstæðari
skuldabréf. Svona bréf takmarka
svigrúm lífeyrissjóða og þess
vegna er slíkur eignahlutur ólög-
legur,“ segir Árni. - ifv
Borgarfulltrúar Vinstri grænna segja söluna á Landsvirkjun hafa verið ólöglega:
Salan á Landsvirkjun kærð
árni Þór
SigurðSSon
Segir að salan á
hlut Reykjavík-
urborgar hafi
verið ólögleg og
það sýni hversu
illa ígrunduð
hún var.
HeilbRiGði Alþjóðlegi alnæmisdag-
urinn er í dag. Af þessu tilefni
verða Alnæmissamtökin með opið
hús á Hverfisgötu 2 á milli
klukkan 16 og 19. Átta einstakling-
ar hafa greinst HIV-jákvæðir hér
á landi í ár. Starfsmenn Rauða
krossins lýsa yfir áhyggjum sínum
af aukningu alnæmissmita meðal
kvenna um allan heim.
Framkvæmdastjóri RKÍ,
Kristján Sturluson, líkir útbreiðslu
alnæmis í sunnanverðri Afríku við
neyðarástand, en þar eru allt að 40
prósent íbúa smitaðir. Því hefur
Alþjóða Rauði krossinn sent frá
sér neyðarbeiðni um 21 milljarð
króna. - kóþ
Alþjóðlegur alnæmisdagur:
Átta Íslending-
ar greinst í ár
Jón Trausti, kom einhvern
tímann til greina að nefna
tímaritið Eldgamla Ísafold?
Nei, en það kom til greina að nefna
það Ástkæra fósturmold. Því var
hins vegar hafnað.
Blaðamaður tímaritsins Ísafold villti á sér
heimildir og réð sig á elliheimilið Grund í
viku og skrifaði svo grein um aðbúnað-
inn þar. Jón Trausti Reynisson er annar
tveggja ritstjóra tímaritsins.
STJÓRnmál Báðir þingmenn
Framsóknarflokksins í Reykjavík-
urkjördæmi norður, Guðjón
Ólafur Jónsson og Sæunn Stefáns-
dóttir, sækjast eftir öðru sæti á
lista flokksins í kjördæminu.
Jón Sigurðsson formaður
hefur lýst áhuga á að skipa fyrsta
sætið. Guðjón Ólafur skipaði
þriðja sæti listans í síðustu
kosningum og Sæunn það fjórða.
Þau urðu þingmenn þegar Árni
Magnússon og Halldór Ásgríms-
son hættu í pólitík. Kjörstjórn
stillir upp á listann. - bþs
Framsókn í Reykjavík norður:
Guðjón Ólafur
og Sæunn vilja
sama sætið
DÓmSmál Karlmaður var dæmdur
í sextíu daga skilorðsbundið
fangelsi fyrir líkamstjón af
gáleysi í Hæstarétti á fimmtudag.
Dómurinn var staðfesting á dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur frá því
14. febrúar.
Maðurinn var dæmdur fyrir að
hafa ekið gegn rauðu ljósi á
gatnamótum Suðurlandsbrautar,
Laugavegar og Kringlumýrar-
brautar í ágúst á síðasta ári, með
þeim afleiðingum að hann lenti í
harkalegum árekstri við strætis-
vagn. Bílstjóri strætisvagnsins
kastaðist út úr honum og hlaut
áverka á fótum svo að taka varð
þá báða af neðan við hné. - ifv
Sextíu daga fangelsi:
Missti fæturna
neðan við hné
SAmkomA Kveikt verður á
Hamborgartrénu á Miðbakka
Reykjavíkurhafnar kl. 17.00 á
morgun.
Þetta er í fertugasta og fyrsta
sinn sem Hamborgarhöfn sendir
Reykjavíkurhöfn jólatré en það
er þakklætisvottur til íslenskra
sjómanna fyrir matargjafir til
barna í Hamborg eftir síðari
heimsstyrjöldina. - hs
Jólatré á Miðbakka:
Kveikt á trénu
á morgun
kveikt á Jólatré Kveikt verður á jóla-
trénu á Miðbakka á morgun.
BerJaSt um Sæti Guðjón Ólafur og
Sæunn sækjast eftir sama sætinu.
koRTAviðSkiPTi Ekki verður
lengur hægt að sjá upplýsingar
um kortanúmer og gildistíma á
kvittunum frá og með lokum
nóvember að nokkrum þjónustu-
aðilum undanskildum sem hafa
fengið frest að sögn Gísla
Tryggvasonar, talsmanns
neytenda, sem gaf út tilmæli í
ágúst um að látið yrði af birtingu
greiðslukortaupplýsinga á
kvittunum.
„Undanfarin ár hefur verið
hægt að sjá upplýsingar um
kortanúmer á kvittunum sem til
dæmis hefur verið hent og þær
upplýsingar notaðar í kaupum
gegnum net eða síma.“ Gísli
segir töluvert margar verslanir
hafa enn verið með þetta kerfi og
embættinu hafi borist nokkrar
ábendingar um þetta. - sdg
Tekið á kortamisnotkun:
Kvittanir ekki
með númerum
Jegor gaídar Hann gegndi stöðu
forsætisráðherra um hríð á meðan
Boris Jeltsín stjórnaði Rússlandi.
fRéTTaBlaðið/afP