Fréttablaðið - 01.12.2006, Qupperneq 12
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR
VíSinDi Hægar heilabylgjur djúpsvefns styrkja
minnið. Þetta kemur fram í grein sem birtist í hinu
virta fræðiriti Nature í gær, en rannsóknin er
mastersverkefni Höllu Helgadóttur, diplom sálfræð-
ings, sem hún vann ásamt samstarfsmönnum sínum
við háskólann í Lübeck í Þýskalandi undir leiðsögn
sálfræðingsins Jan Born, sem stjórnar taugainn-
kirtlafræðistofnun skólans.
„Rannsóknin gekk út á það að auka hægar heila-
bylgjur í svefni með vægri raförvun á höfuð. Þannig
má dýpka svefninn, en það hefur ekki verið gert áður
með þessum hætti,“ segir Halla. Hún segir að
niðurstöður minnisprófa, sem lögð voru fyrir
þátttakendur rannsóknarinnar, sýndu að minni þeirra
styrktist meira yfir nótt þegar þeir fengu raförvun
heldur en við venjulegan svefn. „Þetta bendir til þess
að hægar heilabylgjur í djúpsvefni gegni því hlut-
verki að festa í minnið upplýsingar sem við höfum
lært yfir daginn. Rannsóknin útskýrir með nýjum
hætti mikilvægi góðs nætursvefns til að viðhalda
minni og muna lengur það sem við upplifum.“
Halla er alkomin heim og vinnur nú að svefn-
rannsóknum á Landspítalanum auk heilalínurits-
rannsókna á Alzheimer-sjúkdómnum, ofvirkni og
athyglisbresti hjá fyrirtækinu Mentis Cura. - shá
Íslenskur sálfræðingur birtir fræðigrein um svefnrannsóknir í tímaritinu Nature:
Góður svefn styrkir minnið
Halla Helgadóttir
Hið virta fræðitímarit Nature
birtir í dag grein hennar um
svefnrannsóknir.
nAUðGAniR Hópnauðgunum á Ís-
landi hefur fjölgað úr átján í tutt-
ugu milli ára, þegar enn er rúmur
mánuður til ársloka. Einnig hafa
fleiri nauðgunarmál komið inn á
borð neyðarmóttöku Landspítal-
ans en í fyrra. Í lok þessa mánaðar
höfðu 134 mál borist, en þau voru
130 alls í fyrra. Af þessum 134
málum hafa einungis 43 mál verið
kærð til lögreglu, eða 32 prósent.
Eyrún B. Jónsdóttir, deildar-
stjóri á neyðarmóttökunni, segir
að hlutfall kærðra hópnauðgana
sé enn minna, því að einstaklingur
sem lendir í því að vera nauðgað
af tveimur gerendum eða fleiri
upplifi sig svo niðurlægðan að
sjaldan sé farið með málið lengra.
Að auki komi oft fyrir að líði yfir
fórnarlambið í hópnauðgunum og
því geti verið erfitt að segja til um
hverjir komu að máli.
Til hópnauðgana teljast þau
mál þar sem fleiri en einn gerandi
fremur glæpinn. Einnig ber fólki
skylda til að koma fórnarlambi
kynferðisglæps til hjálpar og telst
það því hópnauðgun þegar horft
er upp á nauðgun, án beinnar þátt-
töku. Hið sama á að sjálfsögðu við
þegar annar gerandinn heldur
fórnarlambi föstu meðan hinn
kemur fram vilja sínum. - kóþ
Tölur frá neyðarmóttöku nauðgana á Landspítala:
Tuttugu hópnauðg-
anir á árinu
landspítali – HáskólasjúkraHús fréttablaðið/GVa
inDlAnD Þriggja ára drengur lést
þegar hópur svína réðst á hann í
útjaðri höfuðborgar Indlands,
Delí, og banaði honum. Þetta
kemur fram á fréttavef breska
ríkisútvarpsins, BBC.
Drengurinn eigraði burt
heiman frá sér meðan fjölskylda
hans tók sér hádegisverðarhlé.
Þegar móðir hans hóf leit að
honum sá hún svín nágranna síns
japlandi á einhverju og þekkti þar
rifrildi úr fötum sonar síns, að
sögn lögreglu. Konan henti grjóti í
svínin, en þau réðust þá gegn
henni. Hún æpti upp yfir sig og
komu nágrannar henni þá til
bjargar, en drengurinn var látinn.
Eigandi svínanna hefur verið
handtekinn, sakaður um manndráp
af gáleysi. - smk
Harmleikur á Indlandi:
Hópur svína át
lítinn dreng
sönn fantasía
Ákveðið hefur verið að þema Evr-
ópusöngvakeppninnar, sem fram
fer í Helsinki næsta vor, verði „sönn
fantasía, eða „true fantasy“.
Finnland
CAJ P’S HELGARSTEIK
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Meindl
Colorado GTX
Jólatilboð
17.900 kr.
verð áður 19.900 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
35
20
0
11
/0
6
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI