Fréttablaðið - 01.12.2006, Page 16
16 1. desember 2006 FÖSTUDAGUR
KolaKarl í Kína Þessi kolanámu-
maður í héraðinu Xiaoqinghe Shanxi
brosir breitt að vakt lokinni með tvo
stóra kolamola í fanginu sem hann
ætlar að fara með heim til sín.
fréttablaðið/ap
NoReGUR, AP Armur laganna
reyndist óvenju langur í Norður-
Noregi á mánudag, þegar honum
tókst að stöðva hreindýr á flótta.
Lögreglustjórinn Klemet
Klemetsen fékk tilkynningu um
hrein nokkurn sem hundar höfðu
hrætt. Tarfurinn hljóp dauð-
skelfdur eftir glerhálum þjóðvegi
nærri Kautokeino, svo bílstjórar
bifreiða sem á móti honum komu
þurftu að taka á öllu sínu til að
koma í veg fyrir slys.
Klemetsen ók af stað og þegar
hann kom auga á hreindýrið
kveikti hann á bláu ljósunum og
færði bílinn upp að tarfinum,
opnaði gluggann og teygði
hendina út. Hann greip um
hálsinn á dýrinu, sem var á um 30
km/klst hraða, og saman hægðu
þeir svo smám saman á sér.
„Ég held ekki að nokkur
lögreglumaður hafi náð hreindýri
á þennan hátt áður,“ sagði
Klemetsen í samtali við frétta-
menn. - smk
Óvenjulegur eltingarleikur:
Lögregla stöðv-
aði hreindýr
Hreindýr lögreglustjóri í Noregi stöðv-
aði hreindýr svipað þessu fyrr í vikunni.
UmFeRðARmál Ökumenn yfir 72
ára aldri eru 2,5 sinnum líklegri til
að látast í slysi en aðrir ökumenn.
Eldri ökumenn eru einnig líklegri
til að valda slysi en aðrir öku-
menn. Þeir sem eru 68 og eldri eru
um tvisvar sinnum líklegri til þess
að hljóta meiri meiðsl en aðrir
ökumenn.
Þetta eru niðurstöður Guðmund-
ar Freys Úlfarssonar, verkfræð-
ings og prófessors við Washington-
háskóla í St. Louis, sem hefur
rannsakað umferðaróhöpp og
meiðsli eldri ökumanna. Niðurstöð-
ur Guðmundar Freys sýna einnig
að óhöppum eldri ökumanna fjölg-
ar hraðar en annarra ökumanna.
Eldri ökumenn hafa verið skil-
greindir sem 72 ára og eldri en
áður hafa þeir oft verið skilgreind-
ir sem 65 ára og eldri. Mörkin eru
áætluð út frá tölfræðilegu spálík-
ani fyrir meiðsli þar sem mismun-
ur eftir aldurshópum er athugað-
ur. Marktækur munur á öllum
meiðslaflokkum byrjar að sjást
við 68 ára aldur en þá eru um
tvisvar sinnum meiri líkur á að
ökumaður hljóti meiri meiðsl en
aðrir ökumenn.
Ástæða rannsóknar Guðmund-
ar, sem styrkt var af rannsóknar-
ráði umferðaröryggismála, er að
meiðsli eldri ökumanna eru alvar-
legri og dánartíðni þeirra hærri
auk þess sem slysatíðni eldri öku-
manna á ekinn kílómetra er hærri
í hverju gefnu slysi. Hingað til
hafa rannsóknir umferðarslysa
snúist um unga ökumenn og að
ökumönnum almennt. Guðmundur
notaði gögn frá slysaskrá Umferð-
arstofu frá tímabilinu 1999 til 2004
og áttu 28.137 ökumenn í hlut.
- shá
Rannsóknir á umferðaróhöppum sýna að eldri ökumenn skera sig úr:
Eldri ökumenn líklegri til að valda slysi
Áfram veginn Eldri
ökumenn forðast að keyra
við vond skilyrði eða þegar
umferð er mikil.
STjóRNmál Allsherjarnefnd
Alþingis leggur til að þrettán
umsækjendum verði veittur
íslenskur ríkisborgararéttur.
Alls 21 óskaði þess við nefndina
að fá íslenskan ríkisborgararétt
nú um áramót.
Fólkið sem verður íslenskir
ríkisborgarar nú er fætt í tíu
ríkjum; Indónesíu, Taílandi,
Nígeríu, Tógó, Bandaríkjunum,
Frakklandi, Póllandi, Litháen,
Þýskalandi og á Íslandi.
Elsti nýi Íslendingurinn í þessum
hópi er fæddur 1946 en sá yngsti
er níu ára. - bþs
Allsherjarnefnd Alþingis:
Þrettán fá ríkis-
borgararétt
Keyrði út af
Karlmaður keyrði út af í aftakaveðri
í Svínadal, sem er um 18 kílómetra
frá búðardal, síðdegis á þriðjudag.
Ökumanninn sakaði ekki en bifreiðin
er nokkuð skemmd. Mikill krapi og
hálka var á veginum.
lÖgreglufréttir
Andrea Ólafsdóttir Auður Lilja Erlingsdóttir Álfheiður Ingadóttir Árni Þór Sigurðsson Benedikt Kristjánsson Elías Halldór Ágústsson
Emil Hjörvar Petersen Erlendur Jónsson Guðfríður Lilja Grétarsd. Guðmundur MagnússonFriðrik Atlason Gestur Svavarsson
Kolbrún Halldórsdóttir Kristín Tómasdóttir Kristján HreinssonJóhann Björnsson Katrín Jakobsdóttir Kári Páll Óskarsson
Paul F. Niklov Sigmar ÞormarÓlafur Arason Steinar Harðarson Steinunn Þóra ÁrnadóttirMireya Samper
Sveinbjörn M. Njálsson Wojciech Szewczyk Þorleifur Friðriksson Þórir Steingrímsson Ögmundur JónassonSvala Heiðberg
Kosningarétt hafa allir félagar í Reykjavíkur-
kjördæmunum og Suðvesturkjördæmi sem skráðu
sig í hreyfinguna fyrir lokun kjörskrár þann 25.
nóvember.
Kjörfundur er kl. 10-22.
--
Haldin verður sameiginleg kosningavaka í Iðnaðar-
mannasalnum, Skipholti 70, húsið opnar klukkan
21.30.
Kjörstaðir:
Reykvíkingar, aðrir en þeir sem búa í Árbæ, Grafarvogi
og Grafarholti og Seltirningar kjósi í Suðurgötu 3.
Kópavogsbúar, Garðbæingar, Álftanesbúar og
Hafnfirðingar, kjósi á Strandgötu 11 í Hafnarfirði.
Reykvíkingar sem búa í Árbæ, Grafarvogi og
Grafarholti, Mosfellsbæingar og Kjalnesingar kjósi í
Hlégarði í Mosfellsbæ.
Á morgun verður kosið í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu.
VINSTRIHREYFINGIN – GRÆNT FRAMBOÐ
Forval í Reykjavíkurkjördæmum og Suðvesturkjördæmi
2. desember 2006