Fréttablaðið - 01.12.2006, Síða 24
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR24
fréttir og fróðleikur
Leiðtogar Atlantshafs-
bandalagsins reyndu að láta
eins og fundur þeirra í Ríga
hefði tekizt vel. En hann
opinberaði hve djúpstæð
togstreita er innan raða
þess um forgangsröðun
verkefna, deilingu byrða og
samstöðu í reynd.
Leiðtogar NATO sýndu samstöðu-
vilja bandamannanna 26 með því
að árétta á fundi sínum í vikunni,
að þeir myndu koma hver öðrum til
hjálpar í neyð hvar sem er í Afgan-
istan. En skuldbindandi fyrirheit
fengust ekki um að fjölga í herliði
NATO í þeim héruðum landsins
þar sem skæruhernaður talibana
er skæðastur.
Í þessu sambandi munar mestu
um að evrópsku meginlandsveldin
Þýzkaland, Frakkland, Ítalía og
Spánn reyndust ekki reiðubúin til
að senda hermenn til að berjast við
hlið bandamanna frá Bretlandi,
Bandaríkjunum, Kanada og Hol-
landi í Suður- og Austur-Afganist-
an.
Alls eru 32.800 hermenn í fjöl-
þjóðaherliðinu ISAF í Afganistan,
sem NATO stýrir. En á hættuleg-
ustu svæðunum í suður- og austur-
hluta landsins hafa hingað til aðeins
hermenn frá síðarnefndu NATO-
löndunum fjórum boðið skærulið-
um talíbana birginn. Í ljósi þess að
talið er að í röðum talibana-skæru-
liðanna séu virkir að minnsta kosti
tíu þúsund herskáir heimamenn,
sem fá meira en nóg af vopnum
yfir fjöllin frá Pakistan og hafa til
að mynda framið eitt sjálfsmorðs-
sprengjutilræði á dag síðustu daga,
er skiljanlegt að ráðamenn NATO-
ríkjanna sem bera hitann og þung-
ann af þessum átökum þrýsti á um
að þeirri byrði verði deilt á fleiri
herðar bandamanna.
Hætta á nýrri kreppu?
Sumir fréttaskýrendur taka jafn-
vel svo djúpt í árinni, að í þessu
felist hætta á nýrri kreppu NATO-
samstarfsins. „Því þetta bandalag
byggir á hugmyndinni um sam-
stöðu,“ skrifar leiðarahöfundur
þýzka dagblaðsins Die Welt í gær.
„Ef það dregur úr þessari einingar-
tilfinningu er NATO í alvarlegri
hættu.“
Jaap de Hoop Scheffer, fram-
kvæmdastjóri bandalagsins, segir
þó slíkar áhyggjur ástæðulausar.
„Það er ekki hin minnsta ástæða til
svartsýni í Afganistan,“ sagði hann
við lok leiðtogafundarins í Ríga.
Brezki forsætisráðherrann
Tony Blair reyndi líka að túlka nið-
urstöðu fundarins með jákvæðari
hætti. „Það hafa náðst mikilvægir
áfangar í rétta átt,“ sagði Blair, en
bætti við: „Höfum við fengið allt
sem við báðum um? Ekki enn.“
Pólverjar munu senda 1.100
manna liðsauka til Afganistans
eftir áramót. En nýjar liðsauka-
skuldbindingar fengust ekki í Ríga.
Ekki opinberlega, að minnsta kosti.
Að sögn ónafngreindra embættis-
manna hétu þrjú aðildarríki því að
fjölga í sínu liði; Danmörk, Tékk-
land og Kanada.
Í því skyni að sýna í verki að
Ísland skærist ekki úr leik í þessu
erfiða verkefni NATO lýsti Geir H.
Haarde forsætisráðherra því yfir á
fundinum í Ríga að íslenzk stjórn-
völd myndu auka framlög til end-
urreisnar- og þróunarverkefna í
Afganistan, auk þess að standa að
flugfrakt, bæði með flugvélum
íslenskra flugfélaga og erlendra, í
þágu þeirra bandalagsríkja sem
hafa liðsafla í sunnanverðu land-
inu.
Angi af víðtækari umræðu
Togstreitan um það hvernig byrð-
unum í Afganistan er deilt er ann-
ars bara einn angi af víðtækari
umræðu innan bandalagsins, sem
staðið hefur yfir lengi, um breytt
hlutverk NATO eftir að tvípóla ver-
öld kalda stríðsins leið undir lok og
aðlaga þurfti herafla bandalagsins
að ógnum nútímans.
Hernaðargetugjáin milli Evr-
ópuríkjanna annars vegar og
Bandaríkjanna hins vegar er vandi
sem tengist vandanum í Afganistan
beint með þeim hætti, að herafli
flestra evrópsku NATO-ríkjanna er
enn miðaður að mestu við hefð-
bundnar landvarnir gegn innrás
erlends hers. Aðeins örlítill hluti
allra þeirra tveggja milljóna her-
manna sem skipa raðir NATO-herja
Evrópu er í stakk búinn að vera
sendur í verkefni á borð við það
sem nú er við að etja í Afganistan.
Robert Gates, verðandi varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, lagði
á það áherzlu í skriflegu svari sem
hann veitti í gær við spurningum
varnarmálanefndar Bandaríkja-
þings, að hann hefði trú á framtíð
NATO-samstarfsins, en að banda-
lagið þyrfti á auknu fé og hreyfan-
legum mannafla og búnaði að halda
ef það ætti að geta staðið undir
þeim alþjóðlegu skuldbindingum
sem nú er ætlazt til af því.
Evrópsku NATO-ríkin verja að
vísu til varnarmála yfir helmingi
þess sem Bandaríkin gera, en fyrir
þau útgjöld fæst aðeins um fimmt-
án prósent af útreiknaðri hernaðar-
getu Bandaríkjahers.
NATO og Bandaríkin þrýsta því
á evrópsku bandamennina að taka
til hver í sínum ranni; breyta upp-
byggingu herafla síns úr stað-
bundnu landvarnahlutverki kalda-
stríðstímans og fjárfesta þess í stað
í þjálfuðum sveitum atvinnuher-
manna og hergögnum sem gera
þær hreyfanlegri og betur í stakk
búnar að mæta með skilvirkum
hætti ógnum á borð við hryðjuverk
eða upplausnarástand í fjarlægu
ríki.
Viðbragðssveitir mikilvægur
áfangi
Mikilvægur áfangi á þessari braut
er stofnun hinna svonefndu við-
bragðssveita NATO, sem de Hoop
Scheffer tilkynnti með stolti að
yrðu komnar á laggirnar í byrjun
næsta árs, eftir fjögurra ára undir-
búning. Í þeim á að vera 25.000
manna lið, sem á að vera hægt að
senda með fimm daga fyrirvara í
verkefni svo til hvar sem er í heim-
inum og að halda því þar úti í minnst
þrjátíu daga.
En þetta er þó aðeins áfangi,
eins og heyra mátti á máli verðandi
varnarmálaráðherrans í Washing-
ton. „Bandaríkin geta hjálpað með
því að beita NATO til að fást við
flóknar ógnir nútímans, og með því
að gera bandamönnum sínum ljóst
að við ætlumst til þess að þeir axli
jafnan skerf af byrðunum,“ segir
Robert Gates í þingsvörum sínum.
Að sínu mati væri meginvandi
NATO fólginn í óvilja margra aðild-
arríkjanna til að verja því til varn-
armála sem nauðsyn krefði. NATO
ætlast til þess að aðildarríkin leitist
við að verja minnst tveimur pró-
sentum af landsframleiðslu sinni
til málaflokksins, en útgjöld flestra
Evrópuríkjanna eru á bilinu 1,2-2
prósent.
Einnig þrýst á Ísland
Eystrasaltsríkin þrjú, Eistland,
Lettland og Litháen, hafa sett sér
að ná tveggja prósenta markinu
eftir nokkur ár, þrátt fyrir að
þröngt sé í búi þar eystra. Að NATO
skuli sjá þeim fyrir lofthelgiseftir-
liti, að miklu leyti á kostnað „útgerð-
arríkja“ þotnanna sem sinna því
hverju sinni, hefur aukið þrýsting-
inn á þau að standa sig í að uppfylla
óskir NATO að þessu leyti.
Eins og bent var á í upphafs-
grein greinaflokks um varnarmál
Íslands í Fréttablaðinu 9. nóvem-
ber veldur þetta því að íslenzka
ríkið á nú erfiðara með að komast
upp með að spara sér að mestu
þennan útgjaldalið. Geir H. Haarde
forsætisráðherra finnur greinilega
fyrir því að þessi þrýstingur NATO
beinist líka að Íslendingum. „Auð-
vitað getum við ekki lengur ætlazt
til þess, eins og við höfum gert ára-
tugum saman, að aðrir standi
straum af öllum okkar vörnum,“
hefur Morgunblaðið eftir honum í
gær. Það sé ekki eðlileg krafa leng-
ur og því séu íslenzk stjórnvöld „til-
búin að verja í þessi mál heilmikl-
um peningum.“
Anne-Grete Strøm-Erichsen,
varnarmálaráðherra Noregs, tjáði
Fréttablaðinu í vikunni að Norð-
menn væntu þess að Íslendingar
sýndu vilja til að taka þátt í kostn-
aði af því samstarfi, sem um kynni
að semjast milli þjóðanna um
öryggis- og varnarmál. Geir sagði
hins vegar Ríkisútvarpinu í gær að
það væri ótímabært að velta því
fyrir sér hver sá kostnaður gæti
orðið.
Deiling byrða og samstaða í reynd
Svona erum við
1999 2001 2003 2005
fréttaskýring
Auðunn Arnórsson
audunn@frettabladid.is
reykjavíkurborg hefur greitt 208
milljónir fyrir fjóra hektara lands í
norðlingaholti. Upphæðin er í sam-
ræmi við úrskurð matsnefndar eign-
arnámsbóta sem borgarráð ákvað
í vor að skjóta til dómstóla. Deilur
standa nú yfir um hvort of hátt verð
hafi verið greitt fyrir landið.
Hvað ákvarðar verð eigna?
„Það umhverfi sem eignin stendur
á og það hvað megi gera við landið,
almenna reglan er sú að því minna
sem má hrófla við landinu því
minna virði er það. staðsetningin
skiptir líka máli og þær eignir sem
eru í nálægð þéttbýlis eru meira
virði.“
Eru 208 milljónir of hátt verð fyrir
fjóra hektara?
„ég hef ekki kynnt mér þetta mál
sérstaklega en ég geri ráð fyrir að ef
matsnefnd hefur farið yfir málið sé
þetta markaðsvirði landsins og því
sú upphæð sem seljandi á rétt á að
fá fyrir það.“
Hefur áhugi fólks á jaðarbyggðum
aukist?
„Já, bæði lönd í jaðri þéttbýla og
einnig landakaup á landsbyggðinni.
Það er misjafnt hvernig fólk notar
þá landskika sem það kaupir, sumir
nýta þá til ræktunar, aðrir undir
sumarhús og enn aðrir kaupa jarðir
til að búa á þeim.“
SpURT & SvARAð
UmHVErfi ákVArðAr VErðið
Jaðarbyggðir
vinsælar
mAgnúS lEópoldSSon
Löggiltur fasteignasali.
> fjöldi gæsluvarðhaldsúrskurða
Heimild: Hagstofa Íslands
185
209
174
221
JAAp dE Hoop ScHEffEr Þrátt fyrir þennan áhyggjusvip sagði framkvæmdastjóri
natO svartsýni ástæðulausa. fréttabLaðið/ap
Látum ekki fylgifiska skammdegisins leggja okkur í
rúmið. Styrkjum mótstöðuaflið, höldum heilbrigði
og hreysti með varnarefnum náttúrunnar.
Láttu sérhæft starfsfólk
okkar aðstoða þig
við val á vítamínum.
kókaín hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga. Í fréttum á
miðvikudaginn var greint frá því að tollverðir á keflavíkurflugvelli
hefðu lagt hald á þrjú kíló af kókaíni í fórum Íslendings í Leifs-
stöð í síðustu viku og daginn eftir var sagt frá því að fjöldi
kókaínfíkla á Íslandi hafi tuttugufaldast á nokkrum
árum. Þetta bendir til að kókaínneysla Íslendinga
hafi aldrei verið meiri.
Hefur maðurinn notað kókaín
lengi?
kókaín er unnið úr laufum kókaplönt-
unnar sem vex í mörgum heimshlut-
um. fornleifarannsóknir í Ekvador benda
til að maðurinn hafi notað það í meira en
fimm þúsund ár.
indíánaættbálkar í suður-ameríku sögðu
að kókajurtin væri komin frá guðunum og að
neysla hennar bæri vott um góða stöðu í samfélag-
inu. Í gegnum tíðina hafa menn aðallega tuggið lauf plöntunnar og
tíðkast það enn víða í suður-ameríku. Vesturlandabúar þekkja hins
vegar aðallega unnið kókaín sem er hvítt efni í duftformi.
Hvaðan kemur kókaín?
Megnið af því kókaíni sem notað er í heimin-
um kemur frá kólumbíu, um níutíu prósent,
en alþjóðleg glæpasamtök smygla því þaðan
og til bandaríkjanna og Evrópu, aðallega
sjóleiðina.
nýlega birtust fréttir í fjölmiðlum um að
glæpamenn séu í auknum mæli farnir að
smygla kókaíni með heimatilbúnum kafbát-
um. Á dögunum lögðu yfirvöld á kosta ríka
hald á 2,7 tonn af kókaíni í einum slíkum
fjögurra manna kafbáti úti fyrir ströndum
landsins. söluverðmæti efnisins var talið
vera um 47 milljónir dala.
fBl-grEining: kókaÍn
Kókaínneysla í árþúsundir