Fréttablaðið - 01.12.2006, Side 58
Helgu ÓlafsdÓttur
tískumolar
Nýir tímar í gömlum heimi. Síðan 1950 hefur
Kína ekki viljað samþykkja Tíbet sem sjálfstætt
ríki. Einn af stóru draumum Tíbetbúa hefur
verið að eignast sitt eigið landslið í fótbolta.
Það var danska fyrirtækið Hummel sem reið á
vaðið og sendi í leiðinni sterk skilaboð til
íþróttaheimsins þegar fyrirtækið ákvað að
styrkja landslið Tíbeta. Hummel hannaði
einstaka fótboltatreyju sem á enga sér líka og
er aðeins seld í velvöldum tískuvöruverslunum
víða um heiminn. Þeir sem ekki vilja ganga í
fótboltatreyjum en fíla Hummel í Tíbet,
geta nálgast geggjaðar hettupeysur,
buxur, boli og aukahluti með tíbetskum
innblæstri í Magazin du Nord í Kaup-
mannahöfn eða í síma 5530700 hjá
Hummel Sport Ísland. Að lokum mæli
ég með því að við tökum landslið Tíbet
til fyrirmyndar því liðsmenn fara sínar
eigin leiðir til að skapa menningarlegan
karakter og jafnvægi á milli hins andlega
og veraldlega heims.
Hummel
í tíbet
Fyrir stuttu opnaði Birna Concept
shop dyr sínar á Skólavörðustig 2.
Birna er ungur íslenskur hönnuður
sem hefur lengi verið búsett í
Danmörku.
Árið 2000
setti hún á
laggirnar
sitt eigið
fatamerki í Danaveldi. Núna selur
Birna fötin sínu í fjölmörgum
löndum og flíkur hennar hafa prýtt
síður danskra tískutímarita margoft.
Hvernig væri að rölta niður í bæ og
kíkja á Birnu?
birna
Concept shop
Athugið, allir góðir drengir sem
ekki kunnið að strauja skyrtur eða
binda bindishnút. Hægt er að læra
hvort tveggja á heimasíðunni
www.saevarkarl.is. Núna eru
engar afsakanir teknar gildar,
stilltu tölvunni á borð fyrir framan
straubrettið, safnaðu saman öllum
óstraujuðu skyrtunum þínum,
kveiktu á sýnikennslunni og eftir
tvær til tíu skyrtur er þetta komið.
Þú hefur sparað svo mikinn
hreinsunarpening með straueríinu
að þú getur farið og keypt þér flott
bindi fyrir sparaða aurinn. Og enn
eitt mjög mikilvægt atriði, konan á
heimilinu verður sérlega ánægð
með framtakið.
sannir karlmenn
strauja skyrturnar
Mér var vinsamlega bent á það
að „skórnir sem ég er ástfangin
af“ eru sko heldur betur fáanlegir
á landinu góða Íslandi. Hinir
forkunnarfögru Pedro García fást
hjá Sævari Karli. Hvernig er hægt
að láta ástina framhjá sér fara á
þennan hátt? Ég á ekki til orð. Ég
hugga mig við það að hjá Sævari
Karli hefur Pedro García verið í
góðum félagsskap með ítölsku
vinkonunum Prada og Miu Miu.
Sjáumst í Bankastrætinu!
Sævar Karl selur skóna sem ég elska!
Pedro Garcia
Dökkbrúnir ökklaskór úr rúskinni, dökkbrúnir satín hælaskór með Swarovski-spennu og
millibrúnir hælaskór með leðurskreytingu. Allir skórnir eru frá PEDRO GARCIA.
Svart rúskinn
Svartir rúskinn Miu
Miu skór með
uppfyltum hæl og
æðislega lillabláir að
innan og Peeptoe
svört Miu Miu taska.
Brúnt og blátt
Brún ökklastígvél með háum hæl, ljósbrúnir
skór með stórum Swarovski-steinum og bláir
hælaskór með hæl alsettum Swarovski-
steinum. Allir skórnir eru frá Miu Miu.
SirKuS01.12.06
10 tíska