Fréttablaðið - 01.12.2006, Page 65
FÖSTUDAGUR 1. desember 2006 13
Ljós verða tendruð á Ham-
borgartrénu í fertugasta og
fyrsta sinn á Miðbakka Reykja-
víkurhafnar á laugardag.
Í 41 ár hefur Hamborgarhöfn sent
Reykjavíkurhöfn jólatré og verð-
ur kveikt á ljósum þess á Mið-
bakka Reykjavíkurhafnar laugar-
daginn 2. desember klukkan
17.00.
Ýmsir hafa lagt hönd á plóginn
við að koma trénu til landsins.
Fyrstur var það Karl Konrad skóg-
arhöggsmaður sem felldi tréð.
Þýski herinn flutti það síðan til
Hamborgar og Eimskipafélag
Íslands sá um flutninginn til
landsins.
Við athöfnina á Miðbakka
mun Horst Grubert, full-
trúi blaðamannaklúbbsins
Wikingerrunde í Ham-
borg og sendiherra
Þýskalands á Íslandi,
Johann Wenzl, afhenda
forsvarsmönnum
Reykjavíkurhafnar
tréð. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson borgar-
stjóri ávarpar gesti
og Gísli Gíslason,
hafnarstjóri Faxa-
flóahafna sf.,
tekur á móti
trénu fyrir
hönd hafnar-
innar. Við
afhending-
una syngur
unglinga-
kór Dóm-
kirkjunn-
ar jólalög
undir
stjórn
Krist-
ínar
Vals-
dóttur. Á eftir verður boðið upp á
heitt súkkulaði og meðlæti í Lista-
safni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu.
Árleg afhending trésins er þakk-
lætisvottur til íslenskra sjómanna
fyrir matargjafir til barna í Ham-
borg sem þeir af myndarskap
færðu stríðshrjáðum börnum eftir
síðari heimsstyrjöldina. Upphafs-
menn að þessari hefð voru Her-
mann Schlünz og Werner Hoenig,
báðir félagar í Wikinger-runde-
klúbbnum, sem minntust rausnar-
skapar Íslendinga og ákváðu árið
1965 að þakka fyrir hann með þess-
um hætti.
Hamborgartré í ljóma
Kveikt á Hamborgartrénu í fyrra. Fréttablaðið/VilHelm
Það verður sannkölluð jóla-
stemning á Laugaveginum á
morgun.
Laugavegurinn verður staður
gleði og glaums á löngum laugar-
degi enda aðventan að hefjast.
Kórarnir Raddbandafélag
Reykjavíkur og Kyrjurnar og
brassbönd frá Lúðrasveit verka-
lýðsins og Svaninum verða á ferli
um Laugaveg og Skólavörðustíg
milli 13 og 17 og skemmta vegfar-
endum með ljúfri tónlist. Einnig
er ekki ólíklegt að nokkrir harm-
onikkuleikarar láti sjá sig.
Í bókabúð Máls og menningar
talar Gísli Einarsson um Út og
suður kl. 13.30 og svo verður tón-
listarveisla milli 15 og 16 þar sem
fram koma Lay Low, Pétur Ben og
Toggi.
Í Skífunni verða áritanir, lif-
andi tónlist og óvæntar uppákom-
ur.
Svo má auðvitað ekki gleyma
öllum kaffihúsunum þar sem
rjúkandi kaffi- eða kakóbollar
bíða þeirra sem þurfa að hlýja
sér. Aðventan byrjar vel á Lauga-
veginum.
Aðventubyrjun á
Laugavegi
laugavegurinn er ljúfur í rökkrinu á aðventunni.
toggi spilar í bókabúð máls og menn-
ingar á löngum laugardegi.
Lauga veg 56 • Sími 551 7600
HANSKAR ERU GÓÐ JÓLAGJÖF
HJÁ OKKUR ER MESTA HANSKAÚRVAL LANDSINS
verð 5.400 kr.