Fréttablaðið - 01.12.2006, Qupperneq 88
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR48
Forsala á þrjá af stærstu viðburð-
um Listahátíðar í Reykjavík 2007
hefst næstkomandi mánudag en
hátíðin fer fram 10.-26. maí. Við-
burðirnir sem hér um ræðir eru
sýningar San Francisco-ballettsins
undir stjórn Helga Tómassonar í
Borgarleikhúsinu, sem verða sjö
talsins og hefjast 16. maí, og tón-
leikar Dmitri Hvorostovsky 20.
maí og Bryn Terfel 21. maí sem
báðir verða í Háskólabíói. Er þetta
í fyrsta sinn sem Listahátíð hefur
miðasölu á völdum viðburðum í
desember. Kynning á heildardag-
skrá hátíðarinnar verður eftir ára-
mót.
San Francisco-ballettinn þarf
vart að kynna fyrir Íslendingum
eftir komu hans hingað til lands á
Listahátíð árið 2000. Nú, sjö árum
síðar, hefur Helgi Tómasson sett
saman sýningu sérstaklega fyrir
Íslendinga sem byggir á ballettum
sem hann hefur samið fyrir flokk-
inn. Er hér um að ræða mörg glæsi-
legustu verk Helga sem öll sýna
afburðahæfni fremstu dansara
hópsins.
Dmitri Hvorostovsky vann á
sínum tíma Bryn Terfel í keppn-
inni Cardiff BBC singer of the
world árið 1989, en síðan hafa þeir
verið taldir tveir fremstu barítón-
ar heims. Á Listahátíð í Reykjavík
gefst einstakt tækifæri til þess að
hlýða á báða þessa stórsöngvara.
Fræg er tónleikaför Hvorostov-
sky um Rússland í boði Pútíns for-
seta þegar hann söng fyrir mörg
hundruð þúsund áhorfendur til
minningar um rússneska hermenn
sem börðust í seinni heimsstyrj-
öldinni. Þekktastur er hann fyrir
hlutverk Onegin í óperu Tchaikov-
sky Eugene Onegin og er stundum
talað um að það hlutverk sé eins og
skapað fyrir hann. Það mun varla
ofsögum sagt að Bryn Terfel sé
einn dáðasti söngvari samtímans.
Miðasalan fer fram á vef hátíðar-
innar www.listahatid.is og í síma
552-8588 alla virka daga frá kl. 10-
16. - khh
Stórviðburðir Listahátíðar
Í dag kl. 17 geta borgarbúar sótt í
Ráðhúsið sitt og hlustað á KaSa
hópinn flytja ljúfa klassíska
kammertónlist. Á efnisskránni
verða verk eftir Mozart, Beet-
hoven, Schubert, Poulenc, Villa-
Lobos og Jón Nordal. Hljóðfæra-
leikararnir í þessari ágætu
kammersveit eru Auður Hafsteins-
dóttir fiðluleikari, Áshildur Har-
aldsdóttir flautuleikari, Helga Þór-
arinsdóttir víóluleikari, Nína
Margrét Grímsdóttir píanóleikari,
Sigurður Bjarki Gunnarsson sell-
óleikari og Sigurgeir Agnarsson
sellóleikari. Dagskrána kalla þau
„Klassísk Reykjavík“ og verður
hún á óformlegum nótum með
spjalli um tónskáldin og verkin til
kynningar. Í lokin verður svo leik-
inn jólasálmur Mozarts, Í dag er
glatt.
KaSa-hópurinn var tilnefndur
annar tveggja tónlistarhópa
Reykjavíkurborgar 2006 og hefur
af því tilefni komið fram á árinu á
Vetrarhátíð, í Norræna húsinu og
nú síðast á tónleikum þann 1. okt-
óber síðastliðinn í menningarmið-
stöðinni Nordatlantens Brygge í
Kaupmannahöfn við góðar undir-
tektir. Tónleikarnir sem helgaðir
voru íslenskri kammertónlist í
sögulegu samhengi voru hljóðrit-
aðir og sendir út af danska ríkisút-
varpinu, einnig stendur til að hljóð-
rita verkin á geisladisk til útgáfu á
næsta ári.
Enn fremur mun KaSa hópur-
inn flytja tónlistarkynningar í
Menntaskólanum í Reykjavík, í
Borgarholtsskóla og á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli á næstunni.
KaSa-tónlistarhópurinn hefur
hlotið styrki til tónlistarverkefna
frá eftirtöldum aðilum: Mennta-
málaráðuneytið/Tónlistarsjóður,
viðskipta- og iðnaðarráðuneytið,
Skandinavia-Japan Sasakawa sjóð-
urinn, Reykjavík-Loftbrú, Menn-
ingarsjóður Íslandsbanka & Sjó-
vár-Almennra, Tíbrá,
Nýsköpunarsjóður tónlistar Musi-
ca Nova, Fitur, Samstarfssjóður
Nuuk-Reykjavíkur-Þórshafnar,
Minningarsjóður Margrétar Björg-
ólfsdóttur, Þróunarsjóður Leik-
skóla, Menningar- og ferðamálaráð
Reykjavíkurborgar og Tónskálda-
sjóður RÚV. Það er því í boði þess-
ara aðila sem áhorfendur geta notið
ljúfra tóna í Ráðhúsinu í dag. - pbb
KaSa í Ráðhúsinu
Kasa-TónlisTarhópurinn Í björtu veðri við Reykjavíkurhöfn á dögunum.
Lúðrasveitin Svanur heldur
árlega jólatónleika sína á sunnu-
daginn.
Efnisskráin er fjölbreytt að
vanda og munu tónleikagestir fá
að heyra allt frá rússneskum
polka yfir í íslensk dægurlög.
Rúmlega þrjátíu hljóðfæraleik-
arar munu taka þátt í tónleikun-
um sem verða með hátíðarbrag
en Einar Jónsson trompetleikari
mun leika með sveitinni.
„Einar leikur með okkur lag
eftir Sæbjörn Jónsson, einn af
heiðursfélögum Svansins, sem
lést á þessu ári. „Lagið „Stars in
a Velvet Sky“ er eftir Sæbjörn
sem lék á trompet með sveitinni
um árabil,“ segir Guðný Jóns-
dóttir hljóðfæraleikari.
Guðný bendir einnig á að
sveitin sé einkar samstillt en
félagar úr henni fóru á lúðra-
sveitamót í Þýskalandi fyrir
skömmu og er Svanurinn því í
toppformi. Stjórnandi lúðrasveit-
arinnar er Rúnar Óskarsson.
Tónleikarnir fara fram í sal í
sal SÁÁ, Efstaleiti 7 í Reykjavík
og hefjast þeir kl. 17 á sunnudag-
inn.
Jólatónleikar Svansins
lúðrasveiTin svanur Blæs til jólatón-
leika á sunnudaginn. fRéttaBlaðið/heiða
sÉrsaMið FYrir ÍslanDsheiM-
sóKn San francisco-ballettinn flytur
verk sem helgi tómasson hefur sett
saman.