Fréttablaðið - 01.12.2006, Side 94
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR54
tonlist@frettabladid.is
tónninn gefinn
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Ein af þeim nýju rokk-
sveitum sem hafa vakið
athygli undanfarna mánuði
er brasilíska sveitin CSS
sem er skipuð fimm stelp-
um og einum strák. Lögin
Let’s Make Love and Listen
to Death From Above og
Meeting Paris Hilton hafa
farið eins og eldur um sinu
um netið og fyrsta platan
þeirra Cansei de Ser Sexy
er nýkomin út hjá Sub Pop
útgáfunni. Trausti Júlíus-
son lagði við hlustir.
Brasilíska hljómsveitin CSS er ein
af uppgötvunum ársins í tónlistar-
heiminum. Fyrsta platan hennar,
Cansei de Ser Sexy hefur fengið
frábæra dóma og sveitin hefur
verið að spila grimmt bæði í
Bandaríkjunum og Evrópu undan-
farið og þykir frábær á tónleikum.
Hún stal t.d. senunni á CMJ tón-
listarhátíðinni í New York um dag-
inn, en CMJ er ein aðalhátíðin
vestanhafs.
Stofnuð gegn leiðindum
Sagan af því hvernig hljómsveitin
CSS varð til er tilbrigði við klass-
ískt stef úr rokksögunni. Fyrir
þremur árum ákváðu nokkrar vin-
konur í São Paulo í Brasilíu að
stofna hljómsveit af því að þeim
leiddist flestar þær hljómsveitir
sem voru að spila á tónleikum í
Brasilíu. „Allir þessir strákar með
gítarana sína, bassana og trommu-
settin voru svo alvarlegir og virt-
ust taka hljóðfærin sín svo alvar-
lega,“ rifjar Luiza Sá, ein af
stelpunum fimm í CSS, upp í
nýlegu viðtali. „Það vantaði sár-
lega hvatvísi, litadýrð og húmor í
þetta.“ Þar sem vinkonurnar
kunnu ekki mikið á hljóðfæri þá
byrjuðu þær á því að æfa sig í
kjallaranum heima hjá einni
þeirra, en fóru svo að koma fram í
litlum klúbbum í borginni. Eftir
nokkurn tíma var þetta orðin sex
manna sveit, skipuð fimm stelpum
og einum strák. Lovefoxxx syng-
ur, Carolina Parra spilar á gítar og
trommur, Ana Rezende spilar á
gítar og munnhörpu, Luiza Sá spil-
ar á gítar, trommur og hljómborð,
Iracema Trevizan spilar á bassa
og strákurinn Adriano Cintra spil-
ar á trommur og gítar og syngur.
Vöktu fyrst athygli á netinu
Meðlimir CSS eiga það sameigin-
legt að vera eða hafa verið í list-
námi. Lovefoxxx er hönnuður, Ana
er nemi í kvikmyndagerð, Ira er
fatahönnuður, Carolina er grafísk-
ur hönnuður og Luiza er í mynd-
list. Nafnið CSS er skammstöfun
fyrir Cansei de Ser Sexy, en það
þýðir „þreytt á því að vera sexí“.
Þetta er tilvitnun í viðtal við Bey-
oncé sem stelpurnar rákust á í
tímariti. Þær voru þá að leita að
„heimskulegasta nafninu sem þær
gætu fundið“.
CSS vakti fyrst athygli á net-
inu, en meðlimirnir eru duglegir
að blogga og í fyrstu settu þær
bara myndir af æfingum á netið.
Það vakti athygli á sveitinni áður
en þær höfðu svo mikið sem tekið
upp eitt lag. Seinna fóru lögin Let’s
Make Love and Listen to Death
From Above og Meeting Paris
Hilton að ganga manna á milli á
netinu og á endanum rataði tón-
listin til bandarísku útgáfunnar
Sub Pop sem gerði sveitinni tilboð
um útgáfusamning. Sub Pop er
gamalgróin gæðaútgáfa sem er
enn í dag þekktust fyrir að hafa
uppgötvað Nirvana.
Devendra Banhart harður aðdá-
andi
Tónlist CSS er sambland af gítar-
rokki, elektró-tónlist og poppi.
Þetta er mjög fersk og flott blanda
sem hefur stundum verið líkt við
sveitir eins og Le Tigre og jafnvel
Blonde Redhead, en minnir líka á
gamlar post-pönk sveitir eins og
The Slits og Blondie. Textarnir
minna sumir á hina kanadísku
Peaches (í laginu Artbitch syngja
þær „Suck Suck Suck My Art Tit,
Lick Lick Lick My Art Hole“…),
en nöfn laganna segja mikið um
innihaldið: Music Is My Hot Hot
Sex, Alcohol, Fuck Off Is Not The
Only Thing You Have To Show…
Eins og áður segir hefur CSS
spilað mikið á tónleikum á árinu
og þ.á m. á mörgum tónlistarhátíð-
um. Á meðal tónlistarmanna sem
hafa verið að hrósa sveitinni í há-
stert má nefna Devendra Banhart
og bandarísku sveitina Spank
Rock.
Röðin komin að Brasilíu
Wu tAng ClAn - enter tHe Wu tAng
„Einfaldlega besta
plata sem gerð
hefur verið. Tölu-
vert betri en allar
Bítlaplöturnar til
dæmis. Árið var
1993 og hiphop
var það heitasta
sem var í gangi í
New York-borg. Wu Tang spruttu fram
á sjónarsviðið átta eða níu saman og
gerðu allt tryllt. Þeir tóku þetta Kung
fu-konsept og hlaupa algjörlega með
það, allir meðlimirnir til dæmis með
kung fu-nöfn. Á Þessum árum hófst
gullöld hiphops-ins og þeir standa
algjörlega upp úr. Allir kunna til dæmis
lagið Wu Tang clan ain‘t nuthin to fuck
wit. Kynslóðin mín ætti að vera kölluð
Wu tang-kynslóðin.“
gHoStfACe KillAH - fiSHSCAle
Til marks um hvað Wu Tang eru góðir,
þá á einn rappari hljómsveitarinnar,
Ghostface Killah, plötu ársins skuld-
laust. Nú eru 13 ár liðin og Ghostface
er enn þá geðveikur. Að mínu mati er
lagið Kilo best
á disknum, það
fjallar um kókaín
og byrjar á sog-
hljóðum og orð-
unum, „I can‘t
feel my face“.
Ghostface er líka
abstrakt rappari, nær
artí-genginu í efnis-
tökum og yrkjun en
þeir sem eru í hans
nánasta umhverfi.
Hann er
o r ð i n n
að költi.
Marga netverja rak í rogastans þegar þeir
sáu nafn Atla Bollasonar skrifað undir
umfjöllun um tónleika Sufjan Stevens í Frí-
kirkjunni á heimasíðunni Pitchforkmedia.
com, sem er einhver sú virtasta í bransan-
um. „Ég og Leó Stefánsson félagi minn rák-
umst á útsendara Pitchfork á Airwaves og
það fór bara nokkuð vel á með okkur. Við
bentum honum á áhugaverð bönd og Leó
endaði á því að taka myndir fyrir hátíðina
sem birtust á Pitchfork. Síðan hefur rit-
stjórnin verið í sambandi þegar eitthvað
spennandi gerist hér á landi og við höfum
reynt að liðsinna þeim eftir fremsta megni,“
segir Atli. „Jákvæð umfjöllun á Pitchfork
þýðir að bandið þitt er orðið að stórstjörnu
í indí-heiminum. Bönd eins og Arcade Fire
og Interpol væru varla neitt án síðunnar,“
segir Atli um vinsældir og vægi síðunnar en
tekur það líka fram að mörgum þyki
Pitchfork vera hroka- og fordómafullur
miðill. Atli, sem viðurkennir að vera mikill
aðdáandi síðunnar, segist ekki viss um hvort
hann muni skrifa meira, þótt hann sé
vissulega til. „Það er dálítið
spennandi að hundrað þús-
und manns hér og þar um
heiminn muni taka mark
á því sem mér fannst,
einhver völd sem fylgja
því.“ Atli segir að próf-
örk Pitchfork hafi
þó lítillega poppað
upp á enskukunn-
áttu sína í grein-
inni, „Ég veit
ekki einu sinni
hvað „aust-
ere“ þýðir.“
- hal
Skrifar fyrir virt vefrit
> Plata vikunnar
Ampop - Sail to the Moon
HHHH
„Sannfærandi framhald af My
Delusions. Það er greinilega
enginn hörgull á góðum hug-
myndum og flottum lagasmíð-
um hjá Ampop. Ein af plötum
ársins.” TJ
Í SpilARAnUm
the Mountain goats - Get Lonely
Snoop Dogg - Tha Blue Carpet Treatment
Swan lake - Beast Moans
Jónas Sigurðsson - Þar sem malbikið svífur mun ég dansa
tokyo Police Club - A Lesson in Crime
SnooP Dogg JónAS SigurðSSon
fyrSt og SíðASt ágúSt Bent
CSS Hinar raunverulegu
“Brazilian Girls” og strákurinn
Adriano Cintra.
Staðreyndin sem blasir við íslenska poppheiminum í dag er einfaldlega
sú að hann er gjörsamlega staðnaður og hefur hljómað nær alveg eins í
rúm tíu ár. Þetta er sorgleg staðreynd en engu að síður sönn. Ef einhver
getur bent mér á íslenska popphljómsveit sem komið hefur fram á síð-
ustu tíu árum og breytt íslensku tónlistarlandslagi þá má sá og hinn
sami endilega gera það. Þessari gagnrýni vil ég sérstaklega beina að
Senu, gömlu Skífunni, sem er langstærsti útgefandi íslenskrar tónlist-
ar.
Sena fær hins vegar lof fyrir eitt, útgáfan er alltaf gríðarlega stór og
í raun ótrúlegt hvað kemur mikið út af íslenskri tónlist á ári hverju.
Hins vegar hefur Sena með þessari stóru útgáfu sinni náð að kæfa aðra
aðila á markaðnum og íhaldssemin sem ríkir á þeim bænum er til hábor-
innar skammar. Hugmyndafátæktin er algjör og ekkert virðist í kortun-
um sem bendir til þess að eitthvað sé að fara að breytast. Hvenær ætla
menn til dæmis að hætta að gefa út tónlist þar sem textarnir fjalla um
„ástir í djúpum dölum“ og fólk sem „sakna andlits þíns á kodda
mínum“?
Fáir nýliðar hafa komið inn í bransann en í staðinn hefur verið leitað
til eldri jaxla á borð við Stebba Hilmars, Jóns Ólafs, Gunna Þórðar og
Sigurðar Bjólu svo fáeinir séu nefndir. Spurning hvort við fáum ekki að
heyra gullmola aftur á borð við „Síðan liðu árin hratt/ Það kom bleiu-
þvottur, kvöldvinna og Kiwanis/ Og Parket á gólf“ sem hljómuðu á plötu
Sléttuúlfanna, Undir bláum mána. Nýliðaleysið má að mestu eða öllu
leyti skýra út frá þeirri staðreynd að hæfileikaríkir tónlistarmenn á
Íslandi hafa einfaldlega ekki áhuga á að skapa tónlist eins og þá sem
hefur verið fjöldaframleidd undanfarin ár. Um það á tónlistarbransinn
einmitt að snúast, sköpun, en ekki að græða peninga.
Idol-, ábreiðu- og safnplötur fyrir „miðaldra fólk á öllum aldri“ (eins
og var sagt í nýlegum plötudómi) eru hreinlegar orðnar þreyttar og
íslensk popptónlist er einfaldlega orðin alltof einsleit. Eitthvað þarf að
aðhafast í þessum málum. Við getum ekki sífellt verið að gorta okkur af
því að hér sé eitt gróskumesta tónlistarlíf heimsins og neita þessum tón-
listarmönnum um færi á að njóta sín til fulls í stað þess að hjakka alltaf
í sama farinu.
Niðurlæging íslensks popps
Vin
nin
ga
r v
er
ða
af
he
nd
ir h
já
BT
Sm
ár
ali
nd
. K
óp
av
og
i. M
eð
þv
í a
ð t
ak
a þ
át
t e
rtu
ko
m
inn
í S
M
S k
lúb
b.
14
9 k
r/s
ke
yt
ið.
9.
HVERVINNUR!
KEMUR Í
VERSLAN
IR
4. DES!
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ EINTAK!
SENDU SMS BTC MDF
Á NÚMERIÐ 1900
Vinningar eru Met
allica the best of v
ideos • Aðrir DVD
með Metallica
Geislplötur með M
etallica • Aðrar ge
islaplötur • DVD m
yndir og margt fle
ira