Fréttablaðið - 01.12.2006, Qupperneq 111
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR70
Hrósið …
Sýningar á Jóladagatali Sjón-
varpsins, sem að þessu sinni er
sagan um stjörnustrákinn Bláma
og Ísafoldu eftir Sigrúnu Eldjárn,
hefjast í dag. Þættirnir, sem Kári
Halldór leikstýrði, voru frum-
sýndir fyrir fimmtán árum og
endursýndir árið 1998. Aðalleikar-
arnir voru þá allir nýkomnir inn í
leiklistarbransann. Fréttablaðið
athugaði hvar þau eru stödd í dag.
„Ég er að leikstýra jólasýningu
hjá Stopp leikhópnum og kenni við
Háskólann í Reykjavík,“ sagði Sig-
urþór A. Heimisson, sem hefur
haldið sig innan leiklistargeirans.
Hann heldur að þættirnir standist
tímans tönn með prýði. „Þetta er
líka tekið upp úti um borg og bæ,
það er gaman að sjá hvernig borg-
in hefur breyst,“ sagði Sigurþór,
sem aftók ekki að hann myndi
fylgjast með dagatalinu í ár. „Ég á
sex ára strák sem mun fylgjast
spenntur með. Ég kann líka ákaf-
lega vel við stjörnustrákinn
Bláma,“ sagði hann.
Kristjana Pálsdóttir, sem fór
með hlutverk Ísafoldar, er búsett
fyrir norðan þar sem hún hefur
kennt leiklist og sett upp sýningar
með nálægum grunnskólum. „Ég
hef komið að einhverju leiklistar-
tengdu á hverju ári frá því að ég
útskrifaðist,“ sagði Kristjana, en
hlutverk Ísafoldar var eitt fyrsta
hlutverk hennar. „Þó ég segi sjálf
frá finnst mér þetta nú vera með
skemmtilegri jóladagatölunum,“
sagði Kristjana. „Ég hef þá trú að
þetta sé ekkert leiðinlegra núna.“
Guðfinna Rúnarsdótt-
ir fór með þriðja
aðalhlutverkið í
þáttunum, sem
hún kallar sjálf
Fruntalegu kell-
inguna. „Þetta
var algjört
draumahlutverk, hún var alltaf að
þykjast vera eitthvað annað en
hún var, svo ég fékk ótal gervi,“
sagði Guðfinna, en Fruntalega
kellingin var fyrsta stóra hlutverk
hennar. Guðfinna einbeitir sér nú
að þýðingum og heldur námskeið í
upplestri og framsögu fyrir nem-
endur í 7. bekk. Guð-
finna segir börnum
hennar finnast býsna skemmtilegt
að fá að sjá dagatalið aftur. „Sonur
minn hafði nú einhverjar áhyggj-
ur af því að honum myndi finnast
mamma hans eitthvað hallærisleg
núna, enda var þetta mjög ýkt per-
sóna,“ sagði Guðfinna hlæjandi.
„Ég vona bara að fólk hafi gaman
af þessu, en ég vildi helst að það
væru framleidd ný jóladagatöl á
hverju ári,“ bætti hún
við.
sunna@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁrÉTT 2 viðbót 6 ung 8 tvöfalt 9
heiður 11 til 12 stjörnuár 14 hirsla 16
tveir eins 17 blekking 18 umfram 20
óreiða 21 gefa frá sér reiðihljóð.
LóðrÉTT 1 hvæs 3 berist til 4 ógæt-
inn 5 tímabil 7 dröfnóttur 10 fæða 13
kærleikur 15 vingjarnleiki 16 efni 19
íþróttafélag.
LAUSN
LÁrÉTT: 2 ábót, 6 ný, 8 tví, 9 æra, 11
að, 12 sólár, 14 taska, 16 tt, 17 tál, 18
auk, 20 rú, 21 urra.
LóðrÉTT: 1 fnæs, 3 bt, 4 óvarkár, 5
tíð, 7 ýróttur, 10 ala, 13 ást, 15 alúð,
16 tau, 19 kr.
stjörnustrákur: jóladagatal sjónvarpsins endursýnt á ný
Stenst tímans tönn
sTjörnusTrÁkur Á skjÁinn Á ný jóladagatal sjónvarpsins er nú endursýnt í annað
skiptið, en það var framleitt árið 1991.
Trúir Á sTjörnu-
sTrÁk kristjönu Páls-
dóttur finnst þetta
vera eitt skemmti-
legasta jóla-
dagatalið.
frÁbærT fyrsTa
HLuTverk Guðfinna
rúnarsdóttir var
hæstánægð með
Fruntalegu
kerlinguna,
sem var fyrsta
stóra hlutverk
hennar.
Fréttablaðið/rósa
„Þetta er samstarf sjálfstæðu leikhúsanna og
alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar, markmiðið er
að reka þarna leikhús og bíóhús saman,“ segir
Gunnar Gunnsteinsson, framkvæmdastjóri
bandalags sjálfstæðra leikhúsa. Nú stendur til
að efla starfsemi Tjarnarbíós, bæta og breyta
húsnæðinu á ýmsan hátt. Gera á betri aðstöðu
fyrir leikhópa baksviðs, og í skýrslu um fram-
tíðarsýn á húsinu kemur fram að gera eigi það,
„tæknilega fullbúið fyrir leik-, dans- og kvik-
myndasýningar“.
„Við köllum þetta Masterplan,” segir Gunn-
ar, en ekki er enn búið að fullfjármagna fram-
kvæmdirnar. „Við fengum smá pening frá rík-
inu og núna erum við í umræðum við
Menningar- og ferðamálaráð.“ Fái áætlunin að
ganga eftir má með sanni segja að menningar-
líf borgarinnar eflist til muna. Ekki hefur verið
rekið grasrótar kvikmyndahús í Reykjavík
síðan Fjalarkötturinn var og hét og með til-
komu betri aðstöðu mun gatan fyrir sjálfstæða
leikhópa aldrei hafa verið jafn greið. „Þetta er
svona um það bil, næstum því að detta inn,“
segir Gunnar að lokum en ekki hefur endanleg
ákvörðun verið tekin hjá eiganda hússins, en
það er Reykjavíkurborg. - hal
Nýtt og betra Tjarnarbíó í bígerð
breyTir Tjarnarbíói Gunnar segir breytingarnar, „um
það bil næstum því að detta inn“.
Tjarnarbíó til stendur að gera húsið „tæknilega full-
búið fyrir leik-, dans- og kvikmyndasýningar”.
„Ég byrjaði nú ferilinn þarna,
þannig mér líður eins og ég sé að
snúa aftur heim,“ segir Kristján
Kristjánsson hárgreiðslumaður
sem hefur keypt hlut Baldurs Rafns
Gylfasonar í hárgreiðslustofunni
Mojo.
Kristján hefur unnið á Rauðhettu
og úlfinum undanfarin sex ár og
fannst orðið tímabært að söðla
um. „Þetta er auðvitað allt í
góðu, þetta er frábær
vinnustaður. Mér fannst
bara kominn tími til að
breyta til.“ Baldur Rafn
mun hafa ákveðið að selja sinn hlut í stof-
unni til að geta einbeitt sér að heildsölu
hárvara. „Ég var að vinna á Mojo frá 1992
til 1996 og hef þekkt Guðmund Hallgríms-
son, meðeiganda Baldurs, síðan þá. Hann
bauð mér að kaupa þegar Baldur ákvað að
selja sinn hlut í stofunni, og mér fannst það
of gott tilboð til að hafna. Við Gummi
munum því reka stofuna saman og ég
hlakka til að vinna með honum aftur.“ Mojo
er ein vinsælasta hárgreiðslustofa landsins
og þykja eigendaskiptin nokkuð stór tíðindi
í heimi hártískunnar hér á landi.
Kristján vinnur út annasamasta mánuð
ársins hjá Rauðhettu og úlfinum en hefur
störf á Mojo strax á nýju ári. Hann segir að
nýjum eigendum fylgi alltaf einhverjar
breytingar en vill ekki úttala sig um þær að
svo stöddu. „Það kemur í ljós þegar þar að
kemur.“
Kristján kaupir hlut Baldurs í Mojo
baLdur rafn
selur sinn hlut í stofunni
og ætlar að einbeita sér að
heildsölu.
krisTjÁn krisTjÁnsson byrjaði feril sinn á Mojo
og líður eins og hann sé að fara aftur heim.
sÁTTur við bLÁma
sigurþór Heimisson
kann enn ákaflega vel
við stjörnustrákinn
bláma og mun fylgj-
ast með framvindu
mála ásamt syni
sínum. Fréttablaðið/
Hörður
…fær Daníel Alvin Haralds-
son, sem bar höfuð og herðar
yfir jafnaldra sína í nýaf-
staðinni rímnaflæðikeppni
Miðbergs og hlaut fyrsta sætið
að launum.
Ekkert lát er á umfjöllun breskra
fjölmiðla um Eggert Magnússon
og kaup hans á West Ham. breska
blaðið the Guardian birti í fyrradag
ummæli talskonu Eggerts um
ástæður þess að hann keypti West
Ham. tilvist þessarar talskonu kom
mörgum í opna skjöldu því Eggert
hefur hingað til ekki kippt sér upp
við að svara sínum síma sjálfur og
fyrir mál sín. Þegar Fréttablaðið
hafði samband við Eggert kom
hann enda af fjöllum,
sagðist enga talskonu
hafa á sínum snærum
og bætti því við að
þetta sýndi hversu
mikið væri að marka
breska fjölmiðla,
þeir væru
farnir að
skálda upp
persónur.
Jón Viðar Jónsson,
leiklistargagnrýnandinn
grimmi, „is back and
he’s angry”. Í dómi
sem birtist í tímaritinu
Ísafold um amadeus í
borgarleik-
húsinu
hjólar
hann
með
slíkum
ósköpum í leikstjórann Stefán
Baldursson að varla eru nema
rjúkandi rústir einar eftir. segir að
sem betur fer sé hans „alltof, allt
of löngu valdatíð” í Þjóðleikhús-
inu lokið þar sem hann misnot-
aði aðstöðu sína og setti upp
flatneskjulegar stjörnusýningar.
Guðjón Pedersen, sem telur sig
nútímamann í leikhúsi, hlýtur ákúr-
ur frá jóni Viðari, fyrir að hleypa
hinu ófrjóa stjörnuleikhúsi
stefáns afturgengnu í
borgarleikhúsið og
Hilmir Snær, ætti,
vilji hann ávaxta sitt
pund sem leikari, að
svipast um eftir öðrum
leikstjóra en stefáni
baldurssyni.
- fgg/jbg
frÉTTir af fóLki
59.900 kr.
Trier er elsta borg Þýskalands og þar er nóg
um að vera á aðventunni. Borgin er böðuð
ljósum og skreytingum og allt iðar þar af
mannlífi. Tilvalið er að klára jólainnkaupin á
skemmtilegum jólamörkuðum í ekta þýskri
hátíðarstemningu. Gist verður á þriggja stjörnu
hóteli í hjarta borgarinnar. Innifalið í verði er flug,
gisting í þrjár nætur, morgunverður, rúta og
spennandi skoðunarferðir.
AÐVENTUFERÐ
TIL TRIER
Verð:
PAKKAFERÐIR
VIÐ ALLRA HÆFI
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
8.–11. des.
64.900 kr.
Nú er Kylie Minogue mætt aftur en hún hóf
tónleikaferð sína í Ástralíu á dögunum. Kylie
verður í Manchester 19. janúar og auðvitað
verða Express Ferðir á svæðinu. Gist verður á
þriggja stjörnu hóteli, miðsvæðis í Manchester.
Innifalið er flug, gisting og miði á tónleika
Kylie Minogue.
TÓNLEIKAR MEÐ
KYLIE MINOUGE
19–21. janúar
Verð frá:
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI