Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 28

Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 28
Tunglfarslending heppnast „Við lifum á tímum sérþekk- ingar. Fólk veit ýmist meira og meira eða minna og minna.“ Jón Ævar Ármannsson Við viljum þakka öllum þeim sem með bænum, kerta- logum, blómum, gjöfum, fallegum orðum, faðmlögum, samúðarkveðjum og ýmiss konar hjálp og hafa sýnt minningu ástkærs sonar okkar og bróður virðingu. Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki gjörgæsludeildar Landspítalans við Fossvog. Hjartans kveðjur til ykkar allra og Guð blessi ykkur. Ármann Rögnvaldsson Elísabet Unnur Jónsdóttir Steinunn Birna Ármannsdóttir Ásdís Ósk Ármannsdóttir. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Finnur Einarsson frá Gufuá, Ánahlíð 2, Borgarnesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness þ. 31. janúar sl. Jarðarför verður auglýst síðar. Sólveig Sigríður Finnsdóttir Þorsteinn Vilhjálmsson Guðmundur Finnsson Jenný Halldórsdóttir Sesselja Valdís Finnsdóttir Kristján Björnsson Gróa Finnsdóttir Ólafur Ingi Jónsson börn, barnabörn og barnabarnabörn. 60 ára er í dag Baldur Björn Borgþórsson húsgagnasmiður, Hlíðarhjalla 14 í Kópavogi. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns, Ara Jónssonar Sólbergi. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæslu- og lyflækn- ingadeildar FSA fyrir góða umönnun og hlýju. Fyrir hönd aðstandenda, Svanhildur Friðriksdóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Gunnar Hámundur Valdimarsson, fv. lögreglustjóri á Keflavíkurvelli, lést á Garðvangi, Garði, miðvikudaginn 31. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Gunnar Björn Gunnarsson Sigríður Birna Björnsdóttir Valdimar Ragnar Gunnarsson Sjöfn Eysteinsdóttir Kolbrún Gunnarsdóttir Birgir Bjarnason Jóna Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Jóhönnu H. Stefánsdóttur Hrafnistu Reykjavík, áður til heimilis á Hólagötu 3, Ytri-Njarðvík. Ólína H. Guðmundsdóttir, Kristófer T. S. Valdimarsson, Júlíana Guðmundsdóttir, Hulda Guðmundsdóttir, Þór P. Magnússon, Páll G. Guðmundsson, ömmubörn, langömmubörn og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Þorsteinn Arnar Andrésson Bröttuhlíð 8, Mosfellsbæ, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir hinn 1. febrúar sl. Jarðsungið verður hinn 7. febrúar nk. kl. 13 í Fríkirkj- unni í Reykjavík. Blóm eru vinsamlega afþökkuð en bent er á minningarsjóð FAAS, félags áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga. Friðbjörg Óskarsdóttir Lilja Þorsteinsdóttir Snorri Árnason Kristín Þorsteinsdóttir Aðalsteinn Leví Pálmason Alda Þorsteinsdóttir Vignir Pétursson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær dóttir okkar, litla systir og barnabarn, Katla Rún Jónsdóttir, lést á Barnaspítala Hringsins mánudaginn 29. janúar. Útför hennar fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 3. febrúar kl. 14.00. Jón Ölver Kristjánsson Guðrún Birna Hagalínsdóttir Kristján Hagalín Jónsson Kristján Jónsson Margrét Rósa Jónsdóttir Guðm. Hagalín Guðmundsson Kristjana Arnardóttir Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. Ástkær móðir mín, systir og amma, Ragnheiður L. Ólafsdóttir Nielsen, lést hinn 19. janúar í Danmörku. Útförin fór fram hinn 21. janúar í Sankt Johanneskirke í Kaupmannahöfn. Heidi Maria Pajusalo Daggeir H. Pálsson Helgi Benediktsson Unnur María Benediktsdóttir Brynja Benediktsdóttir barnabörn, Silas og Lucoa María. Elskulegur sambýlismaður minn, Jóhannes Ólafsson (áður Olsen), Klapparhlíð 2, Mosfellsbæ, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 29. janúar. Unnur Finnbogadóttir Ingólfur Jóhannesson Svala Ingvarsdóttir Björn Jóhannesson Jóhanna Birgisdóttir Kristín Ólafsdóttir Eiður Magnúsdóttir Finnbogi Óskarsson Jóhanna Karlsdóttir og barnabörn. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu, samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru Jóhönnu Björnsdóttur læknis, Bergþórugötu 9, Reykjavík Ásta Ásbjörnsdóttir Hulda Ásbjörnsdóttir Jónína Ósk Pétursdóttir Pétur Björnsson Margrét Þorvaldsdóttir Hólmsteinn Björnsson Þorgerður Ása Tryggvadóttir Guðrún R. Björnsdóttir Lilja V. Björnsdóttir Jón Ómar Finnsson Birna Björnsdóttir Ríkharður Reynisson og fjölskyldur. Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands var í gær afhent málverk af dr. Gylfa Þór Gíslasyni, fyrrverandi próf- essor deildarinnar. Málverkið er gjöf frá nokkrum af fyrrverandi nemendum Gylfa og vel- unnurum hans sem vildu heiðra minn- ingu hans með þessum hætti. Gylfi Þ. Gíslason var einn af stofnendum við- skipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands. Hann starfaði fyrst sem hag- fræðingur við Landsbanka Íslands og stundakennari og dósent við Viðskipta- skóla Íslands 1939-41, forvera viðskipta- og hagfræðideildar. Gylfi gegndi stöðu prófessors við deildina, með nokkurra ára hléi þó, fram til ársins 1987. Gylfi hefði orðið níræður miðvikudaginn 7. febrúar, en hann lést árið 2004. Bolli Héðinsson, hagfræðingur og fyrrverandi nemandi Gylfa, afhenti málverkið við hátíðlega athöfn í Hátíðarsal Háskóla Íslands en það kom í hlut Gylfa Þorsteins Gunnlaugssonar, barnabarnabarns Gylfa, að afhjúpa mál- verkið. Auk þess flutti Jón Sigurðsson, fyrr- verandi forstjóri NIB, ávarp um Gylfa, Karlakórinn Fóstbræður söng lög og Friðrik Már Baldursson, forseti við- skipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands, flutti þakkarávarp. Gáfu málverk af Gylfa Þ. Gíslasyni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.