Fréttablaðið - 03.02.2007, Síða 30

Fréttablaðið - 03.02.2007, Síða 30
Þ að hefur ekki farið fram hjá áhugafólki um stjórnmál að mikil ólga er í íslensk- um stjórnmálum um þessar mundir. Frjáls- lyndir sleikja sárin eftir innan- flokksátök og Jón Baldvin Hanni- balsson hefur komið inn í umræðuna með eftirtektarverðum hætti. Finnst þér það óheppilegt að hann kom fram með gagnrýni á Samfylkinguna sem kristallast í orðum hans um að flokknum hafi mistekist að vera valkostur við Sjálfstæðisflokkinn? Ég lít svo á að Jón Baldvin sé að brýna okkur til dáða. Jón Baldvin er ákafamaður og það er greinilegt að hann er mjög óþreyjufullur að sjá þessa ríkisstjórn fara frá. Hins vegar mega menn ekki gefast upp þó á móti blási. Við höfum áður séð vondar tölur í skoðanakönnunum og það er engin ástæða til að fara á taugum yfir því. Ég er sannfærð um að ný ríkisstjórn verður ekki mynduð án þess að Samfylkingin fái það góðan stuðning að hún gegni þar lykilhlutverki. Þetta eru sennilega mikilvægustu kosningar í marga áratugi og því skiptir miklu máli að menn stökkvi ekki frá borði þó það gefi tímabundið á bátinn. Þú hefur tjáð þig um að umræða um sérframboð Jóns Baldvins eða að hann sé að safna til sín fólki sé tilhæfulaus. Veistu það með vissu að hann ætli sér ekki að taka hönd- um saman undir merkjum annars framboðs en Samfylkingarinnar? Ég myndi láta segja mér það tvisvar. Ég átti mjög langt og hreinskiptið samtal við Jón Bald- vin og við komumst að sameigin- legri niðurstöðu eftir það samtal. Samfylkingin mun einfaldlega halda sínu striki. Má eiga von á því að sjá Jón Baldvin með sýnilegri hætti í starfi Samfylkingarinnar? Það hefur verið sagt að hann yrði hugsanlega utanþingsráðherra komist Sam- fylkingin í ríkisstjórn. Hafa slíkir möguleikar verið ræddir ykkar á milli? Nei, en ég vil ekki tjá mig frek- ar um það sem okkur Jóni fór á milli. Hitt er annað mál að ég er ekki að stilla upp ráðherralista núna. Fyrst þarf að vinna kosning- arnar. Það hafa verið miklar sviptingar innan Frjálslynda flokksins. Mar- grét Sverrisdóttir hefur sagt sig frá flokknum og ætlar eigin leiðir. Hafið þið Margrét talað saman um að hún komi til samstarfs við Sam- fylkinguna? Margrét hefur verið geðþekkt andlit í þessum flokki á undanförn- um árum og ég held að það hafi verið pólitísk mistök sem þarna áttu sér stað með brotthvarfi henn- ar. Ég er þeirrar skoðunar að hún sé jafnaðarmaður í eðli sínu og ætti mjög vel heima í okkar flokki. En hún verður auðvitað sjálf að taka ákvörðun um það hvernig hún hagar sínu lífi og hvort hún vill bera einhvers staðar niður pólit- ískt eða ekki. En hún og fólkið í kringum hana er í mínum huga jafnaðarfólk í eðli sínu og sinni lífssýn. Þú hefur sagt að kosningarnar í vor megi sjá sem ögurstund í íslensk- um stjórnmálum. Næsta ríkis- stjórn skuli skoðast í þessu ljósi. Núna þegar Frjálslyndir eru vart hluti af svokölluðu kaffibandalagi, gæti hugsast að Framsóknarflokk- urinn kæmi í þeirra stað? Ég kannast ekki við að Frjáls- lyndir séu ekki ennþá hluti af svo- kölluðu kaffibandalagi enda er það ekki kosningabandalag heldur samstarf stjórnarandstöðunnar á þingi og sammæli um að við munum tala fyrst saman eftir kosningar ef ríkisstjórnin fellur. Á því hefur enn engin breyting orðið. Ég lít svo á að enginn geti útilokað neitt í þeim efnum. Það er fátítt í íslenskum stjórnmálum að flokkur útiloki samstarf. Við verðum ein- faldlega að lúta þeim dómi sem kjósendur fella í kosningum og taka mið af þeirri niðurstöðu sem þar fæst. Hins vegar er alveg ljóst að ég er þeirrar skoðunar að Framsóknarflokkurinn hafi alltof mikil völd í íslensku samfélagi og langt umfram það sem lýðræðis- legt umboð hans hrekkur til. Þú sagðir í ræðu nýlega að Sam- fylkingin gyldi fyrir að vera of pól- itískur flokkur. Hvað áttirðu við með því? Eitt er að hafa skoðanir og annað er að benda á lausnir til að leiða mál til lykta. Þar stendur Samfylkingin sterkust allra flokka. Ég fullyrði að enginn flokkur hefur mótað jafn skýra stefnu eins og birtist til dæmis í virkjana- stór- iðju- og náttúruverndarmálum. Við erum óhrædd við að tala um pólitík. Þetta er pólitík; að setja fram sýn og benda á leiðir í stað þess að þegja og bíða af sér kosn- ingar. Kjósendur eiga rétt á því að vita fyrir hvað flokkarnir standa, hvaða grunngildi þeir hafa og hvernig þeir ætla að standa að framkvæmd þeirra. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur hins vegar verið gjarn á að fela sitt raunverulega eðli fyrir kosningar en fram- kvæma svo hefðbundna hægri pól- itík sem hefur stóraukið ójöfnuð á Íslandi á sama tíma og stórir hópar eins og eldri borgarar og öryrkjar hafa mátt sætta sig við smánarleg kjör. Samfylkingin lítur á það sem forgangsverkefni nýrrar ríkis- stjórnar að endurreisa velferðar- kerfið svo allir geti lifað mann- sæmandi lífi – ekki bara sumir. Nú hefur gagnrýni á Samfylk- inguna verið áberandi að undan- förnu. Hver er þín sýn á þessa gagnrýni? Já, það er ekkert ofmælt að spjótin standa á okkur þessa dag- ana og það er heldur ekkert óeðli- legt við það. Samfylkingin er flokkur sem á góða möguleika á því að taka frjálslynt fylgi frá öllum hinum flokkunum og þeir reyna að verjast því. Samfylkingin er framsækin og setur mál á dag- skrá. Hún er umbótaflokkur sem vill stuðla að breytingum þar sem almannahagsmunir eru hafðir að leiðarljósi í stað sérhagsmuna. Því verðum við að taka upp umdeild mál sem þarf að ryðja braut. Tekur þú gagnrýni á flokkinn til þín persónulega? Nei, ekki umfram það sem eðli- legt er. Það er auðvitað erfitt að aðgreina flokk og formann þannig að gagnrýni á flokkinn beinist líka að mér. En ég hef ekki tekið það persónulega, nei. Sá sem vill setja mark sitt á pólitíkina verður að þola gagnrýni. Ég reyni að segja það sem ég meina og meina það sem ég segi. Af hverju er Samfylkingarfólk í sveitarstjórnum ekki í öllum tilfell- um samstíga flokkslínunni í virkj- ana- og stóriðjumálum, eins og með virkjun jökulánna í Skagafirði? Ríkisstjórnin firrir sig ábyrgð í stefnumótun í virkjana- og stór- iðjumálum og er búin að tvístra henni til orku- og stóriðjufyrirtækj- anna og sveitarfélaganna. Ég er þeirrar skoðunar að það eigi að vernda jökulárnar í Skagafirði og treysti okkar fólki í sveitarstjórn til að leysa það mál farsællega. Rík- isstjórnin hefur hins vegar att fólki og fyrirtækjum saman, efnt til kapphlaups, sem þýðir að sveitar- stjórnarmenn á landsbyggðinni ótt- ast það að ef þeir hafa sig ekki í frammi þá sitji þeir eftir. Ýmsir sveitarstjórnarmenn liggja undir ámælum fyrir þetta en ég veit að tvennt er rauði þráðurinn í þeirra starfi. Að sjá til þess að það sé atvinna í byggðarlaginu og hins vegar þjónusta. Ég hef ekki enn kynnst þeim sveitarstjórnarmanni sem ber ábyrgð á rekstri sveitarfé- lags sem treystir sér til þess að hafna atvinnutækifæri sem býðst fyrir byggðarlagið. Hver telur þú verða mikilvægustu málin í komandi kosningabaráttu? Mennta- og samgöngumál eru í mínum huga meðal mikilvægustu kosningamálanna því þau eru afgerandi fyrir framtíðina. Ég er sannfærð um að framundan sé mikið vaxtarskeið og það er verk- efni stjórnmálamanna að sjá til þess að vöxturinn verði stöðugur og í jafnvægi þannig að allir hópar samfélagsins njóti góðs af honum. Einnig málefni aldraðra og öryrkja sem eru dæmdir til fátæktar sökum gallaðs bótakerfis og harðra tekju- tenginga. Það verður að gefa fólki kost á því að afla sér aukatekna og taka þátt í samfélaginu á sínum for- sendum.Það er ekki mikil mannúð að setja fólki stólinn fyrir dyrnar með þessum hætti. Á Ísland að ganga í Evrópusam- bandið? Treystir þú þér til að svara því afdráttarlaust? Ég er þeirrar skoðunar já, að við eigum að láta reyna á umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Við eigum að vera þar sem ákvarð- anir eru teknar. Það skiptir máli fyrir okkur sem þjóð og alla okkar hagsmuni. Við verðum að tryggja hér jafnvægi og ég held að krónan sé ekki gott tæki til þess. Við eigum að láta reyna á samninga við ESB en svo er það þjóðarinnar að dæma um hvort þeir samningar sem nást séu fullnægjandi. Það má síðan spyrja hvort íslenskt við- skiptalíf sé ekki að taka þessa ákvörðun fyrir okkur. Mér sýnist allt benda til þess að fyrirtækin leiði þessa þróun en stjórnmála- menn muni í fyllingu tímans fylgja í humátt á eftir. Samfylkingin nýtur þar algjörrar sérstöðu sem eini flokkurinn með skýra og jákvæða afstöðu til Evrópusam- bandsins. Evrópumálin munu samt ekki brenna á fólki sem kosninga- mál núna, því þau eru í eðli sínu langtímaverkefni. Ef horft er fram yfir kosningar og Samfylkingin nær ekki sínu kjör- fylgi munt þú þá líta á það sem van- traust á þig og jafnvel snúa þér að öðrum verkefnum? Ég vinn út frá þeirri fullvissu að Samfylkingin nái góðum árangri í næstu kosningum og verði ekki með minna fylgi en hún hafði í síðustu kosningum. Það er það verkefni sem við munum einhenda okkur í fram að kosningum. Eftir kosning- ar tekst ég á við þann veruleika sem þá blasir við. En ég hlakka mjög til baráttunnar, nú fer í hönd spenn- andi og skemmtilegur tími. Ég meina það sem ég segi Ég átti mjög langt og hreinskiptið samtal við Jón Baldvin og við komumst að sameiginlegri niðurstöðu eftir það sam- tal. Samfylkingin mun einfaldlega halda sínu striki. Gagnrýnisröddum á Samfylkinguna virðist fjölga, ef mark er tekið á niðurstöðum nýlegra skoðanakannana. Teikn eru á lofti í íslenskum stjórnmálum og Svavar Hávarðsson spurði því Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formann Samfylkingarinnar, hvernig hún læsi í þau.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.