Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 35

Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 35
Bílaævintýri Jóns Garðarsson- ar og Hildar Bruun hófst þegar þau voru fengin til að útvega farartæki fyrir erlenda víkinga- mynd. Síðan eru liðin rúm tíu ár og nú eru hjónin með yfir þrjátíu farartæki sem koma að flestum kvikmyndum sem teknar eru á Íslandi. „Þetta byrjaði allt fyrir tilviljun þegar ég tók að mér að útvega bíla fyrir erlenda víkingamynd sem var tekin hér á landi árið 1994. Þá vantaði bíla til að ferja fólk og tæki ásamt aðstöðu fyrir búninga og leikara,“ segir Jón Garðarsson sem ásamt konu sinni Hildi Bruun rekur kvikmynda- fyrirtækið North by North West sem sér kvikmyndabransanum á Íslandi fyrir bílum og farartækj- um. Farartæki Jóns og Hildar eru innréttuð á margvíslegan hátt, bæði sem búninga- og förðunar- herbergi eða mötuneyti en einnig sem íverustaðir fyrir leikstjóra og leikara. Jón tekur oft þátt í undirbúningi verkefna og er því oft fyrsti maður á staðinn, löngu áður en tökur hefjast. „Mín undirbúningsvinna hefst á að finna leiðir og svæði fyrir bílana ásamt því að skoða töku- stað í samvinnu við sviðsmynda- deild. Það þarf að flytja jarðveg eins og gert var fyrir Flags of our Fathers þar sem við fluttum tonn af sandi, eða þegar við stífluðum lón til að komast í tökur á James Bond á sínum tíma,“ segir Jón. Það þarf oft að byggja heilu þorpin, koma fyrir íverustað fyrir leikara, salernisaðstöðu og mötu- neyti sem síðan er rifið niður eftir tökur. Hjónin hafa komið að stór- myndum eins og Lara Croft Tomb Raider, James Bond, Batman Re- turns og Flags of our Fathers og segir Jón að hvert verkefni sé öðru ólíkt. „Nýjar áskoranir eru alltaf spennandi. Þetta er hálf- gerð sirkus-vinna og maður veit aldrei hvað gerist á morgun, en það er það sem er skemmtilegt við starfið,“ segir Jón. Ásamt því að vera með þrjátíu farartæki á sínum snærum eru Jón og Hildur oft í forsvari fyrir bílaflotann fyrir heila bíómynd og nú síðast fyrir Bjólfskviðu þar sem yfir 90 farartæki komu við sögu. Auk þess að vera með bíla eru þau Jón og Hildur með snjó- bíla, vélsleða, hjólabáta en við gerð Lara Croft Tomb Raider var einmitt farið með þrjá hjólabáta upp Jökulsá og var það verkefni eitt mest spennandi sem hjónin hafa tekið þátt í. Sérstakasti bíll Jóns og Hildar er sérsmíðaður tökubíll, svokall- aður Shotmaker, sem er sex hjóla pallbíll með þremur öxlum og drifi á öllum. „Þetta var hræ þegar ég fékk hann. Ég endursmíðaði hann til að geta tekið bílaskot sem myndi henta íslenskum aðstæðum enda eru menn alveg í skýjunum með hann,“ segir Jón. Nánari upplýsingar um bíla- flota Jóns og Hildar er að finna á netsíðu fyrirtækisins North by North West: www.nnw.is - rh Bílasirkus bíómyndanna Láttu okkur pólýhúða felgurnar í hvaða lit sem er. Þær verða auðveldari í þrifum og endast lengur. Smiðjuvegi 1 • s. 544-5700 • www.polyhudun.is P R E N T S N IÐ HEILDARLAUSNIR Í DRIFSKÖFTUM Landsins mesta úrval af hjöruliðum og drifskaftsvörum Jafnvægisstillingar Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 WPSA-mótaröðin hefst í dag og endar á alþjóðlegu móti í apríl. Fyrsta umferð af sex í WPSA- mótaröðinni í snjókrossi fer fram við höfnina á Húsavík í dag, laug- ardaginn, 3. febrúar. Snjókross hefur notið vaxandi vinsælda í mótorsportinu á undanförnum árum og þetta árið mæta kepp- endur til leiks í enn öflugri keppn- isliðum en fyrr. Síðasta keppni vetrarins er áformuð um miðjan apríl og verður þá alþjóðlegt mót með þátttöku erlendra öku- manna. Keppt verður í þremur flokk- um líkt og áður, þar af einum unglingaflokki. Samanlagður stigafjöldi úr keppnunum sex gefur Íslandsmeistaratitil í við- komandi flokki. Keppnin við Húsavík verður með hefðbundnu sniði. Æfingar hefjast kl. 11 í dag og keppnin sjálf kl. 13. WPSA-mótaröðin í snjókrossi hefst í dag á Húsavík Smurþjónusta fyrir allar gerðir bíla Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla Komdu með bílinn til okkar! Frábær verð og góð þjónusta! Alltaf heitt á könnunni!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.