Fréttablaðið - 03.02.2007, Side 37

Fréttablaðið - 03.02.2007, Side 37
Ferðaskrifstofan Vesturheimur sf. var stofnuð á síðasta ári og stendur hún fyr- ir ferðum á Íslendingaslóðir í Ameríku. Jónas Þór, eigandi ferðaskrifstofunnar þekkir vel til á slóðum Íslendinga fyrir vestan, því hann lauk magistersprófi í sagnfræði frá háskóla í Winnipeg og bjó þar í tíu ár. Síðustu fjögur ár hefur Jónas verið formað- ur ferða- og fræðslunefndar Þjóðræknisfé- lags Íslendinga á Íslandi en Þjóðræknisfé- lag Íslendinga var upphaflega stofnað árið 1919 í Norður-Ameríku. „Árið 1939 var svo stofnuð deild hér á landi sem hefur eigin- lega starfað óslitið síðan,“ segir Jónas. Þjóðræknisfélagið hefur staðið fyrir reglulegum ferðum á Íslendingaslóðirnar en eftir að ferðaskrifstofan Vesturheimur sf. var stofnuð hefur hún séð um flestar ferðir félagsins. „Núna erum við að skipu- leggja ferðir þessa árs sem verða að minnsta kosti átta. Í ár fer ég til dæmis með kóra á sérstakar hátíðir og eins kennarahópa í kynnisferðir í skóla í Kanada. Svo erum við með þrjár opnar ferðir, vordaga og þjóð- ræknisþing í Winnipeg, bútasaumsferð um Amish-hérað í suðausturhluta Minnesota í vor og Austur-Kanadaferð í haust.“ Markmiðið með ferðum Vesturheims sf. er að sögn Jónasar að efla tengslin við afkomendur vesturfaranna og annað fólk af íslenskum ættum sem búsett er í Ameríku. „Tölvert er af Íslendingum og afkomendum þeirra í Ameríku, því á eftir vesturförunum hafa náttúrulega fleiri farið og má þar nefna konur sem giftust bandarískum her- mönnum á sínum tíma,“ segir hann. Jónas hefur mikla reynslu af því að skipuleggja ferðir fyrir bæði hópa og ein- staklinga. „Ég undirbý alla dálítið vel hérna heima og fer í sögu þeirra svæða sem við ferðumst um. Síðan er ég í stöðugu sam- bandi við deildir Þjóðræknisfélagsins á hverjum stað og þær undirbúa komu hóp- anna, taka á móti þeim og hjálpa fólki að finna ættingja. Ég fór til dæmis út með átta manna fjölskyldu frá Akureyri í fyrra og nærri fjörutíu manns komu til fundar við hana alls staðar að úr Norður-Ameríku og það varð bara stórt fjölskyldumót.“ Jónas segir að fólk virðist leggja meiri áherslu á það nú en nokkru sinni fyrr að finna ættingja í Ameríku. „Áður fyrr var eins og fólk skammaðist sín svolítið fyrir það að einhver úr ættinni skyldi hafa farið til Ameríku en nú er það alveg horfið og fólk er virkilega spennt að finna afkomend- ur þeirra sem fóru vestur.“ Nánari upplýsingar um Þjóðræknisfélag Íslendinga og ferðaskrifstofuna Vestur- heim sf. má finna á heimasíðunni www.inl.is Leitað að ættingjum á Íslendingaslóðum Leyfishafi Ferðamálastofu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.