Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 54
{ Tíska } 14
Þessa dagana standa yfir þorrablót,
árshátíðir og ýmsar skemmtanir.
Oftar en ekki er vandi að finna rétta
klæðnaðinn og vilja flestar konur
vera í sínu fínasta pússi og ekki
spillir fyrir að verða sér úti um ný
klæði. Við skruppum í Smáralind
og kíktum á úrvalið þar. Hér má
sjá brot af þeim spariklæðnaði sem
fyrir augu bar en um þessar mundir
eru útsölur á lokasprettinum og því
jafnvel möguleiki á að finna eitt-
hvað á þeim líka. Annars eru vor-
vörurnar smátt og smátt að tínast
inn og spennandi að sjá hvað þar er
að finna. Þó ekki sé verra að vera
klæddur samkvæmt nýjustu tísku
þá er það nú svo með samkvæmis-
klæðnaðinn að hann er oftast nær
klassískur. Þetta eru yfirleitt sígild
kvenleg snið og dömulegir fylgi-
hlutir. Hins vegar ber töluvert á
styttri kjólum þetta árið, með sniði
sem minnir á sjötta áratuginn. Þá
eru kjólarnir oft aðsniðnir í mittið
og pilsið víkkar út. Auk þess eru
hlýralausir kjólar vinsælir en þó er
algengt orðið að hægt sé að fá hlýra
með sem ýmist er smellt á eða af
eftir óskum hvers og eins. Nóg er til
af svörtum skóm í öllum stærðum
og gerðum.
Támjóu skórnir fást á flestum
stöðum en einnig ber á skóm sem
opnir eru í tána og með frekar
þykkum botni (platform) og minn-
ir það einnig á sjötta áratuginn. Þá
eru hælaháir sandalar til á flestum
stöðum og oft með fallegum smáat-
riðum. Hér má hins vegar sjá eilítið
frábrugðna skó sem setja sinn svip
á hvaða dress sem er.
Eitt parið er með hlébarða-
mynstri sem hefur verið fremur
vinsælt og hinir eru með glimm-
eri og stirnir á þá. Algjörir Ösku-
buskuskór þar á ferðinni. Að
lokum má setja punktinn yfir
i-ið með því að bera fallega
skartgripi og smekklegar
s a m k v æ m i s -
töskur. - hs
Samkvæmiskjólar
í Smáralind
Kjólar og fylgihlutir fyrir þorrablótið eða árshátíðina.
Ef þú ert ekki enn búin að
uppgötva Dizu, þá er rétti
tíminn núna!
peysur 30-50% afsláttur
mikið úrval af bútasaumsefni
á 600 kr/m Ofl ofl.....
Sjón er sögu ríkari.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Opið í dag laugardag 10-18
Mörkinni 6, 108 Reykjavík, sími 588 5518
Opið laugardag og sunnudag
Útsala
50%
Áður Nú
Ullarkápur 29.900 15.000
Mokkakápur 25.900 13.500
Ullarjakkar 12.900 5.900
Úlpur 12.900 5.900
Dúnkápur 22.900 11.500
Rússkinsjakkar16.900 8.500
Pelsar 26.900 13.500
Mörg góð tilboð
Nýbýlavegi 12 • Sími 554 3533
Opið virka daga 10-18 • Laugardaga 10-16
g æ ð i o g g l æ s i l e i k i
Stærðir
36 - 48Flottur
gallafatnaður