Fréttablaðið - 03.02.2007, Side 60

Fréttablaðið - 03.02.2007, Side 60
 { Kópavogur } 20 „Rými ætluð almenningi eru vel lýst og án farartálma. Gangar breiðir, merkingar góðar og lyftur og salerni vel staðsett.“ Þessi atriði eru meðal þeirra sem tilgreind voru þegar ferlinefnd Kópavogs veitti Smára- lindinni viðurkenningu fyrir gott aðgengi fatlaðra. Fleira telur nefndin Smáralindinni til gildis. Svo sem að bílastæði fyrir fatlaða séu góð og vel staðsett og að hægt sé að fá hjólastóla lánaða. Einnig að stólpar hafi verið sett- ir upp við rúllustigana til að auka öryggi. Þá sé viðmót starfsmanna á þjón- ustuborði jákvætt gagnvart þörfum fatlaðra. Þetta er í þriðja sinn sem ferli- nefnd Kópavogs veitir viður- kenningu af þessu tagi í tilefni alþjóðadags fatlaðra. Í fyrra hlaut hana fyrsti áfangi Vatnsendaskóla. Ástæðan var sú að þar var ráðist í sértækar ráðstafanir til þess að mæta þörfum eins nemanda. Formaður ferlinefndar Kópavogs er Helga Skúladóttir. Vel lýst og án farartálma Smáralindin hlaut nýverið viðurkenningu ferlinefndar Kópavogs fyrir gott aðgengi fatlaðra. Kópavogsbær og Vátryggingafé- lag Íslands, VÍS, hafa gert samn- ing um slysatryggingu á öllum börnum 18 ára og yngri sem stunda íþróttir eða skipulagða félagsstarfsemi í Kópavogi. Vátryggingin nær yfir það félag sem getið er um í vátrygg- ingarskírteini auk ferða til og frá heimili vegna starfseminnar, til dæmis á íþróttaæfingar og ferða innanlands á vegum viðkom- andi félags til að mynda vegna keppnisferða. Einu gildir hvernig slysið ber að eða hver á sök á, eða hvort slysið verður við nám eða leik. Forsendur bótanna eru andlát, varanleg læknisfræðileg örorka og kostnaður vegna slyss, til dæmis tannbrots. Með kostnaði er þó eingöngu átt við þann kostnað sem ekki fæst endurgreiddur hjá Trygg- ingastofnun ríkisins. Vátrygg- ingartaka, íþrótta- eða tóm- stundafélagi í Kópavogi, er gert að halda skrá yfir vátryggð börn sem falla undir vátrygginguna. Foreldrar og forráðamenn barna og unglinga í Kópavogi eru hvattir til að kynna sér þennan samning ásamt skilmálum. Nánari upplýsingar: www. kopavogur.is Börnin slysatryggð Bjarni Thor Kristinsson bassa- söngvari mun flytja íslensk sönglög og erlend auk þekktra óperuaría fyrir dökka bassarödd í Salnum í dag. Tónleikarnir eru hluti af TÍBRÁ - tónleikaröðinni. Hinn ástsæli píanóleikari Jónas Ingimundarson spilar með Bjarna. Bjarni hefur komið víða við í söng hin síðari ár. Hann hefur verið fastur gestur í Ríkisóperunni í Berlín auk þess að koma fram í óperuhúsunum í Chicago, París, Verona, Flórens, Pal- ermo, Wiesbaden og Dortmund svo eitthvað sé nefnt. Hann hefur m.a. sungið undir stjórn Zubins Mehta, Daniels Barenboim, Kents Nagano, Betrands de Billy og sir Andrews Davis. Næsta haust syngur Bjarni á sviði Íslensku óperunnar eftir langt hlé. Um er að ræða hlutverk Osmin í Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir Mozart. Frumsýning er fyrirhuguð í lok september. Miðaverð á tónleikana í Salnum í dag er 2.000 krónur og hefjast þeir klukkan 16.00. Söngtónleik- ar í Salnum 20–50% AFSLÁTTUR www.zedrus.is Hlíðarsmára 11 S. 534 2288 Lokadagar Útsölunnar ÓTRÚLEGT TILBOÐ! Kínversk teppi 1,60m x 2,48m: 48.800 kr. Heriaz / Keshan Íran 2,05m x 3,03m: 77.600 kr. Nain Kashmar Íran 87cm x 1,31m: 36.600 kr. Hamadan Íran 1,41m x 2,38m: 48.800 kr. Fyrstur kemur fyrstur færwww.zedrus.is Hlíðarsmára 11 S. 534 2288 Helgaropnun 11 - 18 Laugardag og Sunnudag
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.