Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 12
Yfir tuttugu Hafn-
firðingar hafa greitt atkvæði utan
kjörfundar í íbúakosningunum 31.
mars um nýtt deiliskipulag í
Straumsvík. Steinunn Þorsteins-
dóttir, upplýsingafulltrúi í Hafn-
arfirði, segir að gríðarlegur áhugi
sé á kosningunum og straumur í
atkvæðagreiðslu utan kjörfundar
hafi aukist síðustu daga.
„Við höfum fengið yfir 20 þús-
und heimsóknir á heimasíðuna
okkar á viku sem er nokkrum þús-
undum fleiri en áður. Við tengjum
það við kosningarnar. Við höfum
líka fengið margar fyrirspurnir í
tölvupósti og töluvert er hringt
frá útlöndum,“ segir hún.
Steinunn segir að Hafnfirðing-
ar, sem búa erlendis en hafa lög-
heimili í Hafnarfirði, séu greini-
lega að velta fyrir sér hvort þeir
geti greitt atkvæði. „Okkur ber
ekki skylda til þess þar sem ekki
er um lögbundnar kosningar að
ræða en við erum að skoða með
hvaða hætti yrði staðið að þessu ef
sá möguleiki kæmi upp,“ segir
hún.
Tuttugu hafa þegar kosið
Reykjavíkurborg bíður nú eftir svari frá
Háspennu við tilboði sem borgin gerði fyrirtækinu
vegna fyrirhugaðs spilasalar í Mjódd. Fréttablaðið
hefur heimildir fyrir því að svar muni sennilega
berast um eða eftir helgi.
Borgaryfirvöld vilja ekki gefa upp hvað felst í
tilboðinu en borgarstjóri hefur áður sagt að vel komi
til greina að Reykjavíkurborg greiði Háspennu skaða-
bætur gegn því að hætt verði við að setja upp
spilasalinn, sem Háspenna hefur þó fengið öll
tilskilin leyfi fyrir. Ekki náðist í forsvarsmenn
Háspennu vegna málsins.
Háspenna hefur undanfarið fundað reglulega með
fulltrúum frá borginni vegna fyrirhugaðs spilasalar,
sem olli miklum deilum í kringum áramótin.
Barátta borgarstjóra, Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar,
gegn spilasalnum hófst eftir að íbúasamtök í Breið-
holti stóðu fyrir undirskriftasöfnun gegn salnum.
Fyrst beindi borgarstjóri spjótum sínum að Happ-
drætti Háskóla Íslands og sakaði Háskólann um
yfirgang. Brynjólfur Sigurðsson, forstjóri HHÍ, og
Páll Hreinsson, stjórnarformaður HHÍ, hafa báðir
vísað gagnrýni borgarstjóra á bug, og bent á það að
HHÍ reki ekki spilasali, heldur leigi einungis út
spilakassa, og það sé einkafyrirtækið Háspenna sem
muni reka fyrirhugaðan sal í Mjódd.
Rauða ljónið á
Eiðistorgi fær ekki starfsleyfi
áfram að því er fram kemur á vef
Seltjarnarnesbæjar. Á vefnum
segir að á grundvelli upplýsinga
lögreglu um ítrekuð brot á
áfengislögum og skilyrðum fyrri
leyfisveitinga hafi bæjaryfirvöld
ekki getað fallist á framlengingu
veitingaleyfis fyrir staðinn.
Þá segir enn fremur á vefnum
að einu spilakassarnir á Seltjarn-
arnesi hafi verið starfræktir á
Rauða ljóninu og með lokun
staðarins hafi spilakassar verið
gerðir útlægir af Nesinu.
Tæplega þúsund spilakassar eru á
landinu öllu.
Rauða ljónið
fær ekki leyfi
Með því að fella
deiliskipulagstillöguna og fresta
þar með stækkun álvers í
Straumsvík úr 180 í 460 þúsund
tonn í íbúakosningunum 31. mars
gefa Hafnfirðingar Íslendingum
tækifæri og ráðrúm til að móta
stefnu til frambúðar í stóriðju- og
orkumálum landsins. Þetta er mat
Jóns Baldvins Hannibalssonar,
fyrrverandi formanns Alþýðu-
flokksins.
Einstaklingar innan Samfylk-
ingarinnar í Hafnarfirði stóðu
fyrir umræðufundi um deiliskipu-
lagstillöguna sem heimilar
stækkun álvers í Hafnarfirði í
Bæjarbíói í Hafnarfirði í gær.
Frummælendur voru, auk Jóns
Baldvins, Tryggvi Harðarson og
Þórunn Sveinbjarnardóttir. Hátt í
200 manns mættu á fundinn.
Getur gefið ráð-
rúm til stefnu
Framboðs-
listar Samfylkingarinnar í
Reykjavík fyrir þingkosningarn-
ar í vor voru kynntir í fyrra-
kvöld.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
leiðir listann í Reykjavík suður. Í
öðru sæti er Ágúst Ólafur
Ágústsson, Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir skipar þriðja
sætið, Mörður Árnason það
fjórða, Kristrún Heimisdóttir
það fimmta og Reynir Harðar-
son, stofnandi CCP, það sjötta.
Össur Skarphéðinsson leiðir
listann í Reykjavík norður.
Annað sætið skipar Jóhanna
Sigurðardóttir, Helgi Hjörvar
það þriðja, Steinunn Valdís
Óskarsdóttir það fjórða, Ellert
B. Schram það fimmta og
Valgerður Bjarnadóttir það
sjötta.
Framboðslistar
ákveðnir