Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 36
BLS. 6 | sirkus | 23. FEBRÚAR 2007
Það var troðfullt í Eurovisionpartíi á
skemmtistaðnum Bistro á Laugavegi á
laugardaginn. Þar sáust meðal annars
skötuhjúin Geir
Sveinsson,
skólastjóri Íþróttaakademíunnar í
Reykjanesbæ, og Kastljóssdrottningin
Jóhanna Vilhjálmsdóttir. Vinkonurnar
Heiða og Halla Vilhjálmsdóttir voru einnig
á svæðinu sem og Friðrik Ómar, sem
kíkti við áður en hann fór að
skemmta á Hótel Íslandi.
Hann virtist alveg vera
búinn að jafna sig á því að
hafa lent í öðru sæti á eftir
Eiríki Haukssyni í
Eurovision.
Starfsfólk húsbúnaðarversl-
unarinnar Habitat hélt
árshátíð sína á laugardaginn. Þar var fyrst
boðið upp á fordrykk í
húsakynnum Habitat í
Kópavogi áður en haldið var
á Nordica í mat. Eftir það
var síðan farið á
skemmtistaðinn Domo og
var annar eigendanna,
Jón Arnar Guðbrands-
son, hrókur alls fagnaðar
á staðnum.
Hverjir voru hvar
P áll Óskar Hjálmtýsson stóð fyrir Eurovision-partíi á NASA á laugardagskvöldið ásamt Base
Camp, skipuleggjendum forkeppni
Eurovison, sem lauk þá um kvöldið.
Fullt var út að dyrum og var stemning-
in frábær. Rúmenski hjartaknúsarinn
Mihai tók lagið sitt vinsæla Tornero
við mikil fagnaðarlæti og Eiríkur
Hauksson tók að sjálfsögðu framlag
Íslendinga til Eurovision í ár, lagið „Ég
les úr lófa þínum“ eftir Svein Rúnar
Sigurðsson við texta Kristjáns
Hreinssonar. Flestir þátttakendur í
Eurovison-keppninni í Loftkastalan-
um fyrr um kvöldið voru mættir á
NASA auk þess sem kynnirinn og
Kastljósdrottningin Ragnhildur
Steinunn Jónsdóttur var á staðnum
ásamt unnusta sínum Hauki Inga
Guðnasyni.
ELDHEIT EUROVISION-
STEMNING Á NASA
SÆTAR SÖNGKONUR Heiða, Regína Ósk
og Halla Vilhjálms voru sætar saman á
NASA. SIRKUSMYND/DANÍEL
GESTGJAFINN Páll Óskar Hjálmtýsson var skipuleggjandi veislunnar á NASA og hélt
uppi stuðinu með gömlum og nýjum Eurovision-lögum. SIRKUSMYND/DANÍEL
BEIBIN FRÁ BÚKAREST
Þessar tvær rúmensku
þokkagyðjur mættu á
NASA og vöktu aðdáun
karlpeningsins á
staðnum.
SIRKUSMYND/DANÍEL
HEILINN MINN Heiða virtist vera sátt
þrátt fyrir að lag hennar og Dr. Gunna
næði ekki einu af þremur efstu
sætunum. Hér sést hún ásamt manni
sínum Elvari Geir Sævarssyni á NASA.
SIRKUSMYND/DANÍEL
BROSIÐ BJARTA Bríet Sunna Valdemars-
dóttir brosti breitt í félagsskap ungs
manns sem gleymdi skyrtunni sinni
heima.
SIRKUSMYND/DANÍEL
SIGURSÆLT SÖNGVASKÁLD
Kristján Hreinsson (til hægri) átti
texta við níu af þeim 24 lögum
sem kepptu í Eurovision þetta árið.
Hann átti textann við sigurlag
Sveins Rúnars Sigurðssonar og
fagnaði því vel á NASA ásamt vini
sínum plötuútgefandanum Óttari
Felix Haukssyni.
SIRKUSMYND/DANÍEL