Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 80
Ekki fengið svona fá mörk á mig síðan í 4. flokki Það var sögulegur leikur í kvennakörfunni í gær þegar tvær konur dæmdu saman leik í fyrsta skipti og allir á vellinum voru því konur. Fyrr í vetur dæmdi kona í fyrsta skipti leik í efstu deild í körfubolta á Íslandi þegar Indíana Sólveig Marquez dæmdi leik ÍS og Keflavíkur og eftir það hefur Georgía Olga Kristiansen bæst í hópinn. Þær dæmdu síðan saman leik Hauka og Breiðabliks í Iceland Express-deild kvenna í gær. Konur dæmdu saman leik Forsvarsmenn stærsta tennismóts heims, Wimbledon, hafa loks látið undan þrýstingi og jafnað verðlaunaféð til karla og kvenna á mótinu. Wimbledon var eina risamótið í tennis þar sem sigurvegarar í karla- og kvenna- flokki fengu ekki jafnhá verð- laun. Á opna ástralska og banda- ríska mótinu er verðlaunaféð jafnhátt en opna franska mótið er aðeins með sama verðlaunaféð hjá meisturum en konur í næstu sætum fá minna en karlar í sömu sætum. Jafna verð- launaféð Íslandsmeistarar ÍBV í kvennaboltanum munu klára leik- tímabilið í DHL-deildinni. Það var niðurstaða tveggja funda hjá aðal- stjórn ÍBV og handknattleiks- deildar ÍBV í gær. Flest benti til þess að kvenna- liðið yrði dregið úr keppni enda hópur liðsins orðinn ákaflega þunnskipaður og varamenn marg- ir hverjir í kringum 15 ára aldur- inn. Liðið er einnig úr leik í bik- arnum og í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn og því ljóst að handknattleiksdeildin mun aðeins tapa peningum það sem eftir lifir tímabils en ÍBV á enn eftir að spila níu leiki. Í yfirlýsingu sem aðalstjórn ÍBV sendi frá sér í gærkvöldi kemur fram að „ekki komi til greina af hálfu ÍBV að draga liðið úr keppni. Stjórn félagsins, leik- menn, þjálfarar og allir stuðnings- menn ÍBV nær og fjær eru ein- huga um að þjappa sér saman og yfirstíga þá erfiðleika sem við er að etja“ segir meðal annars í yfir- lýsingunni. „Þetta eru ungar stelpur sem mikið mun reyna á en þær eru til- búnar í verkefnið. Við leggjum ekki árar í bát,“ sagði Jóhann Pét- ursson, formaður aðalstjórnar ÍBV, í gærkvöldi en sá mannskap- ur sem stendur eftir tapaði fyrir Val á dögunum með 18 marka mun. „Það eru lið þarna sem hafa tapað flestum leikjum en þau hafa ekki gefist upp frekar en við.“ Eins og áður segir mun hand- knattleiksdeild ÍBV safna skuld- um það sem eftir lifir tímabils en það breytir litlu í huga Eyja- manna. „Við brúum bara það bil og pen- ingar eru ekki rök til að draga lið úr keppni þegar einn þriðji er eftir af Íslandsmótinu. Það myndi hafa veruleg áhrif á mótið ef við mynd- um hætta og þeir hagsmunir vega meira en peningar. Svo er orðspor félagsins einnig í húfi,“ sagði Jóhann en ÍBV er ekki byrjað að spá í næsta vetur en ljóst er að Hlynur Sigmarsson mun hætta með deildina og lítill mannskapur er fyrir hendi. „Fyrsta verkefni er að klára veturinn og svo förum við að skoða framhaldið,“ sagði Jóhann. Munu ekki draga kvennaliðið úr keppni KR-ingar settust í topp- sætið í að minnsta kosti sólarhring eftir 89-81 sigur á nýkrýndum bik- armeisturum ÍR-inga í spennandi og sveiflukenndum leik í Iceland Express-deild karla í körfubolta í gær. ÍR-ingurinn Keith Vassell fékk á sig tæknivillu fyrir að mót- mæla dómi í stöðunni 81-79 þegar rétt rúm mínúta var eftir og KR- ingar settu niður öll fjögur víti sín og náðu sex stiga forskoti sem gerði út um leikinn. Í framhaldinu tóku ÍR-ingar mikla áhættu sem gekk ekki upp. ÍR komst mest níu stigum yfir í þriðja leikhlutanum en frábær lokasprettur KR-liðsins í leikhlutanum endaði með þriggja stiga flautukörfu frá Tyson Patt- erson og kom muninum niður í tvö stig, 67-69, fyrir lokaleikhlutann. Þar var jafnt á öllum tölum þar til að Keith missti stjórn á skapi sínu en fram að því hafði hann reynt mikið í sókninni án árangurs. „Ég held að allir hafi haldið að við myndum skíttapa þessum leik. Við mættum og áttum hrikalega góðan leik í 34 mínútur og sýndum það að þegar við erum einbeittir eins og við vorum meirihluta leiks- ins þá gengur þetta vel hjá okkur,“ sagði besti maður ÍR-inga, Svein- björn Claessen, eftir leik. „KR-ingar eru meðal þriggja bestu liða landsins og það er ekki að ástæðulausu og ekki síst vegna þess að þeir klára svona leiki. Þar lá munurinn á liðunum í dag,“ bætti Sveinbjörn við en hann skor- aði 20 stig í leiknum. „Þeir sem héldu að þeir væru að fara að horfa á okkur valta yfir ÍR, vegna munarins á stöðu lið- anna í deildinni, voru algjörlega á villigötum. Þetta ÍR-lið hefur hæfileika, breidd og ýmislegt annað til þess að verða eitt að fjór- um efstu liðunum,“ sagði Bene- dikt Guðmundsson, þjálfari KR, eftir leikinn. „Ég er mjög ánægður með að vinna leikinn þótt ég sé ekkert í skýjunum með spilamennskuna. Við erum svolítið ryðgaðir eftir þetta langa hlé en vonandi bætum við úr því þegar við förum að spila reglulega aftur,“ sagði Benedikt að lokum. Jeremiah Sola fór mikinn fram- an af leik en þegar á leið leikinn tók Tyson Patterson upp hanskann fyrir hann og var illviðráðanlegur á lokasprettinum. Annars var það góð liðsvörn sem lokaði á ÍR-sókn- ina í lokin og tryggði sigurinn. KR- ingar fóru upp fyrir Njarðvíkinga í toppsætið þar sem þeir unnu fyrri leik liðanna en sá síðari fer einmitt fram í Njarðvík á mánu- dagskvöld. Njarðvíkingar spila á móti Keflavík í kvöld og komast aftur á toppinn með sigri. ÍR-ingar eru pottþétt með eitt af átta bestu liðum landsins en þeir þurfa engu að síður að passa sig á lokasprettinum ef þeir ætla að komast inn í úrslitakeppnina. Bikarmeistarar ÍR spiluðu vel í vesturbænum og komust mest 9 stigum yfir en þeir gáfu eftir í lokin og eru langt frá því að vera öruggir í úrslitakeppnina. Iceland Express-deild karla: Iceland Express-deild kvk: UEFA-bikarinn: Meistaradeildin í körfu:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.