Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 48
23. FEBRÚAR 2007 FÖSTUDAGUR10 fréttablaðið sumarferðir
„Það sem er klárlega vinsælast
hjá okkur núna er Orlando-ferð-
irnar en þær hafa verið vinsælar
líka yfir vetrartímann. Það er sá
staður sem Íslendingar vilja ferð-
ast til allt árið um kring,“ segir
Hjörvar Sæberg Högnason, sölu-
stjóri Icelandair, en Orlando er
helsti sólarstaður félagsins.
Icelandair mun auka flugáætl-
un til Bandaríkjanna fyrir sumar-
ið, bæði til Boston og New York.
„Suma daga í sumar verða tvö
flug á dag. Til dæmis verða tíu
flug á viku til New York í sumar.
Þá getum við ferjað nærri 380
farþega á dag,“ segir Hjörvar og
bætir við að þar liggi helstu
áherslur Icelandair fyrir sumar-
ið.
„Við bjóðum líka upp á þrjá
nýja áfangastaði í sumar, sem eru
Bergen, Gautaborg og Halifax en
það hefur komið okkur verulega á
óvart hve mikið er bókað til Berg-
en og Gautaborgar. Allir þessir
nýju áfangastaðir líta mjög vel út
svo það verður spennandi að sjá
hvernig það þróast. Annars erum
við að fljúga allt að 162 ferðir til
útlanda í hverri viku og það er
nokkuð sem við höfum aldrei
boðið upp á áður.“
Hjörvar segir að yfir sumar-
tímann séu alltaf ákveðnir áfanga-
staðir jafnvinsælir eins og flug
og bíll í Þýskalandi. „Svo erum
við með sumaráfangastaði eins
og Mílanó, Madríd og Barcelona
sem eru spennandi staðir fyrir
fólk sem er að fara í sumarfrí.
Þannig að allir ættu að geta fund-
ið eitthvað við sitt hæfi hjá Ice-
landair í sumar því við höfum
aldrei boðið upp á jafnmarga og
fjölbreytta áfangastaði,“ segir
Hjörvar. - sig
„Við erum með svolítið breitt
úrval af ferðum því við erum bæði
með rútuferðir um alla Evrópu og
til Kanada, auk þess að vera með
ævintýraferðir en við bjóðum ekki
upp á beinar sólarlandaferðir,“
segir Hugrún Hannesdóttir hjá
Bændaferðum. „Rútuferðirnar
bókast mjög fljótt upp hjá okkur
fyrir sumarið en við erum tölu-
vert með hjólaferðir og göngu-
ferðir sem eru mjög vinsælar
núna,“ bætir hún við. „Fyrsta ferð-
in okkar á þessu ári er til Kína í
maí en þar er aðaltilgangurinn að
hlaupa maraþon á Kínamúrnum.
Þá eru fjórar vegalengdir í boði en
inni í þeirri ferð er líka hjóla-
ferð.“
Hugrún segir Bændaferðir
bjóða upp á þrenns konar hjóla-
ferðir að auki. „Ein ferð er innan
Þýskalands, önnur í Austurríki og
Slóveníu og sú þriðja í Austurríki
og á Ítalíu en í þessum ferðum er
reiknað með að hjóla 30-70 kíló-
metra á dag á viku til tíu dögum.“
Gönguferðir í kringum Mont
Blanc eru mjög vinsælar líka að
sögn Hugrúnar en einnig stendur
til boða að fara á tindinn í sumar.
„Síðan er ganga í kringum Monte
Rosa en það er mjög mikill áhugi
fyrir útivistarferðunum fyrir
sumarið. Þegar gengið er í kring-
um Monte Rosa er gist í skálum á
leiðinni þannig að það er svona
alvöru fjallaferð en í ágúst verður
gengið í kringum Como-vatn á
Ítalíu og þá er gist ýmist í skálum
eða á fínum hótelum.“ Hugrún
bendir á að allar ferðir Bænda-
ferða séu með íslenskum farar-
stjóra sem leiðir hópana. - sig
Vinsælar útivistarferðir
Í sumar verður gengið á tind Mont Blanc
en hér eru stoltir göngumenn sem náðu
á tindinn síðasta sumar.
Ánægður hópur hlaupara stillir sér upp
að loknu maraþonhlaupi á Kínamúrnum
í fyrra en aftur verður farið í hlaupið í
maí næstkomandi.
Como-vatn er einn fegursti staður Ítalíu og Bændaferðir bjóða upp á göngu í kring-
um vatnið.
Aldrei fleira í boði
Icelandair hefur tekið upp beint flug til Halifax í Kanada að nýju eftir nokkurt hlé og er þegar búið að bóka marga í flug þangað.
Skemmtileg stemmning við hafnarbakka í Bergen en þangað mun Icelandair verða
með reglulegar ferðir í allt sumar.