Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 2
 Breska varnarmála- ráðuneytið hefur tekið ákvörðun um að Harry prins fari með herdeild sinni til Íraks á næst- unni. Harry hafði sjálfur lýst yfir áhuga sínum á að taka þátt í bardögum. Hann sagði það „ekki koma til greina“ að sitja heima eftir að hafa gengist undir stranga þjálfun í hernum. Varnarmálaráðuneytið hafði þó áður sagt að hægt væri að halda Harry frá aðstæðum þar sem nærvera hans gæti hugsan- lega stofnað félögum hans í hættu. Rúmlega 130 breskir hermenn hafa fallið í stríðinu í Írak. Harry prins fer til Íraks í vor Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS SUBARU LEGACY GL Nýskr. 01.04 - Sjálfskiptur - Ekinn 34 þús. km. - Allt að 100% lán. Verð 1.680 .000. - Allt tal um eignarnám við Þjórsá er frá- leitt, að mati Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra og Einars Odds Kristjánssonar þingmanns. Engir grundvallarhagsmunir krefjist þess að gripið verði til eignarnáms, til að framleiða meira rafmagn. Bændur, landeigendur og sveitarstjórnir koma því til með að ráða hvort farið verði í virkjanir, sögðu þingmennirnir við utandagskrárumræður á Alþingi í gær. Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylking- arinnar, vakti máls á þessu og spurði umhverfisráð- herra meðal annars hvort henni þætti réttmætt að fara út í slíka valdbeitingu. Í svari Jónínu kom fram að það væri afar ólík- legt að sveitarstjórnir gengju svo hart gegn vilja bænda og fyrirspurn Björgvins virtist til þess eins að skaða gagnsemi þarfrar umræðu um umhverfis- mál. Björgvin þakkaði svörin og sagði „ljóst að gömlu rökin um eignarnám vegna stóriðju eigi ekki við lengur“. Þetta hljóti að þýða að náttúruverndarsam- tök geti allt eins boðið í jarðirnar og komið í veg fyrir virkjanir. Fulltrúar frá bönk- unum, sparisjóðum og kortafyrir- tækjum hittast reglulega á fund- um í húsnæði Reiknistofu bankanna í Seðlabanka Íslands. Helgi H. Steingrímsson, forstjóri Reiknistofu bankanna, segir á fundunum sé fyrst og fremst rætt um tæknileg atriði tengd verkefn- um sem Reiknistofan vinnur fyrir bankana. „Fulltrúar bankanna í hinum ýmsu verkefnum hittast til þess að útfæra þann hugbúnað fyrir þau kerfi sem við hönnum fyrir þá,“ segir Helgi. Aðspurður segir Helgi að Fréttablaðið fái ekki afhentar fundargerðirnar frá fundunum því þær séu eingöngu fyrir þá sem sitja þá. Fyrr í mánuðinum neitaði stjórn Samtaka fjármálafyrir- tækja einnig að afhenda Frétta- blaðinu fundargerðir sínar. Reiknistofa bankanna er í eigu Seðlabankans, Landsbankans, Kaupþings, Glitnis, Sambands íslenskra sparisjóða, Visa Íslands og Kredikorta. Jóhanna Sigurðardóttir alþing- ismaður sagði á Alþingi í síðustu viku að sameign bankanna á Reiknistofu bankanna og kredit- kortafyrirtækjum væri tortryggi- leg og beindi hún þeim orðum til Jóns Sigurðssonar viðskiptaráð- herra að hann setti lög sem brytu upp þetta sameiginlega eignar- hald. Í máli Jóhönnu mátti greina að sameiginlegt eignarhald bank- anna á Reiknistofu bankanna gæti skapað grundvöll fyrir að bank- arnir hefðu með sér samráð, meðal annars þegar vextir á lánum eru ákvarðaðir sem og þjónustugjöld. Í svari sínu sagðist Jón treysta Samkeppniseftirlitinu til að fram- fylgja samkeppnislögum. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að fundirnir hafi ekki verið rannsak- aðir sérstaklega hjá embættinu. Hann segir hins vegar að Sam- keppniseftirlitið hafi vakið athygli bankanna á því að huga þyrfti að sameiginlegu eignarhaldi þeirra í fyrirtækjum og þeirri aðstöðu sem þeir eru í, meðal annars hjá Reiknistofu bankanna. Ágúst Ólafur Ágústsson, þing- maður Samfylkingarinnar, segir að Samkeppniseftirlitið gæti þurft að bregðast við og rannsaka hvað fari fram á fundunum, því það sé öllum í hag að engin óvissa sé um þessi mál. Hann segir að ef rann- sóknin leiði í ljós að eitthvað athugavert hafi farið fram þá þurfi að bregðast við því á ein- hvern hátt. Leynd yfir fundum fjármálafyrirtækja Fulltrúar banka, sparisjóða og kortafyrirtækja funda reglulega. Forstjóri Reiknistofu bankanna afhendir ekki fundargerðir. Fundirnir hafa ekki verið rannsakaðir. Samkeppniseftirlitið gæti þurft að bregðast við segir þingmaður. Egypskur klerkur, Osama Hassan Mustafa Nasr, greindi frá því í gær hvernig hann hafi saklaus sætt „verstu gerð pyntinga“ í haldi egypskra yfirvalda eftir að hafa verið rænt á Ítalíu af útsendurum Leyniþjón- ustu Bandaríkjanna (CIA). Var þetta í fyrsta skipti sem hann kom opinberlega fram eftir að honum var sleppt úr haldi. Fyrir nokkrum dögum gaf ítalskur réttur út ákærur á hendur 25 bandarískum leyniþjónustumönn- um og einum foringja í banda- ríska flughernum vegna hins meinta mannráns. Var pyntaður í haldi yfirvalda Hæstiréttur hefur stað- fest sex mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Sævari Óla Helgasyni fyrir að hafa veist að Ólafi Helga Kjartanssyni, sýslumanni á Selfossi, þrifið í öxl hans og brugðið fyrir hann fæti svo hann hrasaði. Sævar hafði áfrýjað héraðsdómnum og krafð- ist sýknu eða mildunar refsingar. Árásin átti sér í Héraðsdómi Suðurlands 1. nóvember árið 2005. Sævar gekk að Ólafi Helga þar sem hann stóð í afgreiðslu héraðs- dóms og krafðist viðtals vegna kæru sem hann vildi fá að leggja fram um meint heimilisofbeldi gagnvart móður sinni. Ólafur Helgi sagði Sævari að hann væri í réttarhaldi og bauð honum því viðtal daginn eftir, en þá átti Sævar að hefja afplánun annars dóms. Við þetta veittist Sævar að Ólafi sem flúði inn í dómsal. Eftir nokkurt orðaskak kom lögreglan á vettvang og hand- tók Sævar. Sævar rauf skilorðsbundinn dóm fyrir líkamsárás þegar hann réðst á Ólaf Helga. Það var í annað sinn sem hann rauf skilorðsbund- inn dóm fyrir líkamsárás og í þriðja sinn á rúmlega þriggja ára tímabili sem hann var fundinn sekur um ofbeldisbrot. Í dómi héraðsdóms kom fram að brot Sævars gagnvart sýslu- manni hafi verið tilefnislaust og gróft og að hann hefði ekki sýnt nein merki iðrunar. Var sex mán- aða fangelsi því talinn eðlileg refsing. Réðst á sýslumann í dómhúsi Ingibjörg, er þungu klámfargi af landinu létt? Rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í Hæstarétti fyrir að slá lögreglu- mann ítrekað með krepptum hnefa í andlitið í október 2004. Þrír mánuðir af dómnum eru skilorðs- bundnir. Hæstiréttur mildaði dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmt hafði manninn í sex mánaða fangelsi, þrjá skilorðsbundna. Lögreglan var að flytja manninn, grunaðan um ölvun við akstur, eftir umferðaróhapp. Hann réðst á lögreglumann í bílnum eftir að honum hafði verið meinað að kveikja sér í sígarettu. Sló lögreglu- mann ítrekað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.