Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 76
Ferðaþjónustan er í upp-
námi eftir að Hótel Saga
úthýsti gestum hvataferðar
fólks innan klámiðnaðarins.
Hótelið tapar vel á þriðju
milljón vegna afbókunar á
gistingu gestanna. Þrýst-
ingur frá borgaryfirvöldum
gerði útslagið.
„Við hljótum að kalla eftir við-
brögðum samtaka ferðaþjónust-
unnar við þessum sterku við-
brögðum borgaryfirvalda og
stjórnmálamanna. Þetta setur
alveg nýjan tón í ferðaþjónustu
hér á landi og þarf að ræðast við
formenn stjórnmálaflokka og
borgaryfirvöld: Ætlum við að
velja inn til landsins fólk á grund-
velli þess hvort það er samboðið
yfirvöldum?“ segir Hrönn Greips-
dóttir, hótelstýra á Hótel Sögu.
Hinni umdeildu hvataferð –
Snowgathering 2007 – aðila í klám-
iðnaði sem hingað ætluðu að koma
og dvelja dagana 7. til 11. mars
hefur verið aflýst. Að sögn Christ-
inu Ponga, eins skipuleggjenda,
var ekki annað í stöðunni eftir að
Radison SAS hótelið, Hótel Saga,
ákvað að synja þátttakendum um
gistingu.
Ákvörðun var tekin af hálfu
Bændasamtakanna, eigenda hót-
elsins, fyrst og fremst vegna
þrýstings frá borgaryfirvöldum
sem og hafi það komið fram í máli
formanna stjórnmálaflokkanna
að þessi hópur væri óæskilegur
og óvelkominn til Reykjavíkur.
Hrönn segir þetta setja fyrirtæki í
ferðaþjónustu í mjög erfiða stöðu.
Hún dregur heldur ekki dul á að
staða hótelsins hafi verið mjög
erfið undanfarnar vikur eftir að
fram kom hvaða atvinnu hinir
fyrrum væntanlegu gestir stund-
uðu. Og með hafi komið fram ásak-
anir um tengsl við barnaklám og
mansal að sögn Hrannar. Eitthvað
sem Bændasamtökin vilja ekki
undir nokkrum kringumstæðum
tengja sig við.
„Við fundum fyrir mjög sterk-
um viðbrögðum frá samfélaginu.
En vendipunkturinn er yfirlýsing
frá borgarstjóra og borgarráði um
að fólkið væri hingað óvelkomið.
Erfitt er fyrir okkur sem starf-
andi ferðaþjónustufyrirtæki að
standa gegn slíku.“
Hrönn segir einnig að áhrif hafi
haft yfirlýsingar nýsetts lögreglu-
stjóra um að hópurinn yrði vakt-
aður. Taka yrði tillit til annarra
gesta sem á hótelinu eru með til-
liti til hugsanlegra mótmæla.
Bókun hópsins tók til 49 fyrir-
tækja og voru um 60 með bókað en
ekki 150 eins og fram hefur komið
í fréttum. Að sögn framkvæmda-
stjóra Bændasamtakanna, Sigur-
geirs Þorgeirssonar, er beint tap
hótelsins vegna þessa á þriðju
milljón. Eru þá ótalin hugsanleg
viðskipti sem orðið hefðu vegna
komu gestanna óæskilegu.
„Afstaða stjórnar Bændasam-
takanna byggist á þeim forsendum
að vilja leggja sitt lóð á vogarskál-
ina til að andæfa gegn klámiðn-
aði,“ segir Sigurgeir.
„Hótelið varð hreinlega að láta
undan þessum þrýstingi sem
komið hefur frá yfirvöldum í land-
inu,“ útskýrir Christina Ponga,
talsmaður Snowgathering-ráð-
stefnunnar.
Ponga segir að þau hafi leitað
sér lögfræðilegrar aðstoðar og
útilokar ekki málsókn enda hafi
ráðstefnugestir ekki brotið neitt
af sér. Hún segir að ráðstefnu-
haldarar hafi þegar fengið vilyrði
frá lögregluyfirvöldum á Íslandi
um að komið yrði fram við þá eins
og hverja aðra ferðamenn. Á vef-
síðunni kemur jafnframt fram að
það hljóti að koma útlendingum
spánskt fyrir sjónir í ljósi þessar-
ar ákvörðunar að land skuli meina
fullorðnu fólki að fækka fötum en
kjósi frekar að drepa dýr í útrým-
ingarhættu. „Framkoma íslenskra
yfirvalda er hreint út sagt rudda-
leg,“ segir Christina.
Ruddaleg
framkoma
„Jú, jú, þetta eru ánægjuleg tíð-
indi og ekki mun ég sakna þeirra.
Þetta er þeirra niðurstaða [Hótel
Sögu] og skynsamleg hjá þeim,“
segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri um þá ákvörðun
Bændasamtakanna að meina
hópi í tengslum við Snowgater-
ing 2007 gistingu á Hótel Sögu.
Erna Hauksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar, segir ferðaiðnað-
inum mikill vandi á höndum ef
nauðsynlegt reynist að kanna
bakgrunn hvers einasta ferða-
langs sem hingað kemur en þeir
eru um 400 þúsund á ári.
„Þetta snýst ekki um klám,
margt er ólöglegt hér á landi sem
er löglegt annars staðar, og erfitt
getur reynst að flokka fólk út frá
því,“ segir Erna. Hún spyr hvort
von sé á reglugerð frá stjórn-
völdum um hverjir séu æskilegir
hér á landi og hverjir ekki?
Spurður um hvort það að hót-
elfólk hafi talið sig nauðbeygt til
að vísa hópnum frá, meðal ann-
ars vegna þrýstings frá yfirvöld-
um, setji ekki ferðaþjónust-
una í uppnám segist
Vilhjálmur ekki sjá að
svo sé. Og vilji ferða-
þjónustan tala við
borgaryfirvöld
vegna þessa máls
verði orðið við því.
„En fólk hefur hér
ferðafrelsi og ég veit
ekki til þess að stjórn-
völd hafi verið með
aðgerðir að banna
þessu fólki
að koma.
Engum datt
það í hug.
Ágætlega
hefur geng-
ið hingað til
að taka á
móti ferða-
mönnum.
Einstök atvik hafa komið upp
eins og þau er varða Vítisengla
og Falun Gong-liða. En ég tel
ekki að það þurfi að koma til
sérstakra aðgerða. Þetta
voru aðeins viðbrögð
mín og borgaryfir-
valda við þessu til-
tekna máli.“
Borgarstjóri sakn-
ar ekki klámfólks